Morgunblaðið - 18.11.2019, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 18.11.2019, Blaðsíða 32
Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og Steef van Oosterhout slagverks- leikari í Dúó Stemmu héldu barna- tónleika fyrir fullu húsi í Konzert- haus í Berlín í gær undir yfir- skriftinni Kindur jarma í kofunum. Tónleikarnir voru hluti af hátíð í húsinu sem nefnist Sounds of Ice- land. Á efnisskrá tónleikanna voru íslensk þjóðlög og þulur. Dúóið mætti með fulla ferðatösku af hljóðfærum á staðinn, s.s. hesta- kjálka og steinaspil Páls á Húsafelli. Kindur jarma í kof- unum í Konzerthaus MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 322. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Íslenska karlalandsliðið í knatt- spyrnu lauk riðlakeppninni í undankeppni EM 2020 með 2:1- sigri í Moldóvu í gær. Ísland fékk 19 stig í riðlakeppninni og hafnaði í 3. sæti riðilsins. Við tekur umspil í mars þar sem fjórar þjóðir keppa um eitt laust sæti. Birkir Bjarna- son og Gylfi Þór Sigurðsson skor- uðu mörkin í gær. »27 Luku riðlakeppninni með sigri í Moldóvu ÍÞRÓTTIR MENNING Íslenska kvennalandsliðið í körfu- knattleik átti sér ekki viðreisnar von gegn körfu- boltaþjóðinni Grikklandi í gær í undan- keppni EM. Þær grísku unnu stór- sigur, 89:54, en sextán stig- um munaði á lið- unum strax að loknum fyrsta leik- hluta. »26 Erfiður dagur hjá okkar konum í Grikklandi Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Birna Margrét Haukdal Jakobs- dóttir, fyrsta árs nemandi í nýsköpun og verkefnastjórnun við háskólann í Østfold í Noregi, hefur farið fyrir skólasystkinum sínum í verkefnum að undanförnu og sigrað þrívegis í keppni. Nýjasta afrekið er brúarsmíði yfir vatnið Börtevann, sem er á milli Fredrikstad og Sarpsborgar. Birna segir að verkefni allra hópanna hafi falist í því að byggja brú á sem skemmstum tíma. „Meira fengum við ekki að vita í fyrstu,“ segir hún og áréttar að engar upplýsingar hafi fengist um efni og stöðu, aðeins að hún ætti að vera 15 til 25 metra löng. Daginn áður en keppnin hófst feng- ust nánari upplýsingar og þá hófst undirbúningsvinnan undir stjórn Birnu. „Þá máttum við byrja að teikna og eftir að dómnefnd hafði metið öryggi og búnað daginn eftir og veitt samþykki sitt gátum við haf- ið smíðina.“ Hengibrú var málið Hópur Birnu ákvað að búa til hengibrú og fékk hann nemendur á fjölmiðlabraut til þess að mynda framganginn. Fjórir staðir komu til greina fyrir brú yfir vatnið og var dregið um hvaða hópur fékk hvaða svæði. „Við fengum erfiðustu leiðina, en vorum vel undirbúin, vorum með- al annars með kajak tilbúinn til þess að draga brúna og flytja turn til þess að festa hana við á hinni hlið vatns- ins.“ Allt gekk eins og í sögu nema hvað tröppurnar voru svolítið hálar. „Það var frost og við áttuðum okkur ekki á áhrifum þess á tröppurnar eftir að hafa dregið brúna yfir vatnið en leystum úr því,“ segir Birna. Bætir við að síðan hafi þau þurft að strekkja á köðlunum og það hafi ekki tekið langan tíma. „Við vorum 100 mínútur að setja 25 metra langa brúna upp og hlaupa yfir hana til baka,“ heldur hún áfram. „Tíminn hefði getað verið betri en ein stelpan var lofthrædd og þorði ekki yfir svo við þurftum að fá annan til þess að hlaupa fyrir hana.“ Áður hafði Birna unnið með nem- endum á þriðja ári í velferðarmálum við verkefni sem fólst í því að að leysa vanda ósyndra unglinga í hópi flótta- manna í nýju og breyttu umhverfi. „Við útbjuggum sex vikna sund- námskeið og gerðum ráð fyrir því að sjálfboðaliðar úr hópi eldri fólks yrðu unglingunum til aðstoðar. Með þessu fyrirkomulagi töldum við að krakk- arnir aðlöguðust norsku umhverfi best, kynntust öryggi í vatninu, lærðu að tala málið og hefðu eitthvað gott og uppbyggilegt fyrir stafni.“ Fyrsta verkefnið fólst í því að skipuleggja vinnudaginn hjá stórfyr- irtæki í Fredrikstad 2040. „Ég stjórnaði mínum hópi og við höfðum umhverfisvæn samskipti í huga,“ segir Birna. Þau hafi gengið út frá því að aðeins rafmagnsbílar væru til- tækir og starfsfólk fyrirtækisins og viðskiptavinir þess færu á milli í sér- stökum rútum. Drónar væru notaðir til samskipta og fólk væri með sér- stök fjölvíddargleraugu til að fylgjast með og ráða ráðum sínum. „Vegna tækninnar gerðum við ráð fyrir að fólk þyrfti hvorki að fljúga né keyra heldur vera bara á sínum stað og vinna út frá honum,“ útskýrir Birna og bætir við að eftir sigurinn hafi þau verið fengin til að kynna hugmyndina fyrir stjórnendum fyrirtækisins. Nemendurnir þurftu að ljúka tveimur fyrstnefndu af þessum þremur verkefnum til þess að fá að taka próf. Birna segir að sigurinn sé rós í hnappagatið og ánægjulegur eftir allt stritið. „Álagið hefur verið mikið og nemendur komast ekki upp með neitt múður,“ segir Birna. „Við erum markvisst brotin niður áður en við erum byggð upp á ný.“ Brotin markvisst niður til að byggja upp Göngum yfir brúna Siri Mac lætur sig hafa það og félagarnir fylgjast með.  Birna Margrét hefur verið sigursæl í Noregi að undanförnu Sigurvegararnir Brúarhópur Birnu Margrétar, sem er önnur frá hægri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.