Morgunblaðið - 18.11.2019, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 18.11.2019, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2019 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Bandaríski popp- og graffití- listamaðurinn Keith Haring var aðeins 31 árs gamall er hann lést úr alnæmi árið 1990. Verk hans hafa notið mikillar hylli allar götur síðan. Í liðinni viku var ein- stakt sköpunarverk hans, vegg- myndir sem hann málaði í æsku- lýðsmiðstöð kirkju einnar á Manhattan, selt á uppboði fyrir 3,86 milljónir dala, hálfan milljarð kr. Haring málaði verkið á einu kvöldi í stigagangi, en áður en byggingin var seld nýverið lét safn- aðarstjórnin skera myndirnar af veggjunum til að geta selt þær. Það var flókin aðgerð sem kostaði nær milljón dali en hagnaðurinn af söl- unni réttlætti kostnaðinn, segja stjórnendur við blaðamann The Art Newspaper, og nýtist féð við rekst- ur kirkjunnar. Skáru mynd Har- ings af veggjum Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Ungfrú fótbolti er bók sem inni- heldur sögu um tvær fótboltaóðar unglingsstelpur á upphafsárum kvennafótboltans. Sagan á sér stað árið 1980 innan um hálfbyggðu hús- in í Breiðholtinu. Brynhildur Þór- arinsdóttir er höfundur bókarinnar. Hún segir að þarna sé á ferðinni ungmennabók fyrir ungmenni á öll- um aldri. Ungfrú fótbolti er sext- ánda bók Brynhildar. „Þær eru alltaf í götubolta með vinum sínum, bæði stelpum og strákum. Það dugar þeim ekki. Þær vilja spila á alvöruvelli eins og strákarnir, þær langar að spila og keppa en það gengur brösuglega því það er árið 1980 og kvennafót- boltinn er rétt að stíga sín fyrstu skref,“ segir Brynhildur. Það er því erfitt fyrir þrettán ára unglingsstelpur að fá að æfa fót- bolta. „Það eru engir yngri flokkar og bara örfá lið komin með meistara- flokk. Það er ansi mikið bil á milli þess að vera 13 ára og fullorðin kona að spila. Þær fara af stað í baráttu til þess að mark sé tekið á þeim. Þær vilja sýna að þeim sé al- vara og að þær eigi fullt erindi í þetta.“ Vigdís Finnbogadóttir, fyrsti kvenforseti í heimi, leikur stórt hlutverk í sögunni en sagan gerist sama sumar og hún býður sig fram til forseta. Hefðir og kerfi hindra ekki „Mér fannst gaman að tefla þess- um sögum saman því hún er auð- vitað að heyja sömu baráttu og stelpurnar. Það er ekki tekið mark á henni í fyrstu og hún er þarna að fara inn á keppnisvöll karlanna því það eru karlar í öllum stjórnunar- stöðum og það hefur ekki hvarflað að neinum að kona geti orðið forseti áður en Vigdís stígur fram,“ segir Brynhildur. Stelpurnar sjá Vigdísi sem fyrir- mynd. „Stelpurnar í sögunni átta sig á því hversu mikilvægt það er að kon- ur láti til sín taka og láta hvorki hefðirnar né kerfið stoppa sig. Þetta er saga um það að fólk eigi að láta drauma sína rætast og stelpur og strákar eigi að hafa sömu tæki- færi til að sinna því sem þau hafa áhuga á eða hæfileika til,“ segir Brynhildur sem tekur fram að rammar utan um kynjahlutverk hafi einnig komið niður á strákum og því séu einnig gerð skil í bókinni. Brynhildur vinnur með mikilvægi fyrirmynda í Ungfrú fótbolta. „Ég byggi svolítið á minni reynslu því ég var fótboltastelpa og ég þekki þetta bras við að reyna að æfa og reyna að láta taka mark á manni í boltanum. Þegar ég stund- aði fótbolta á níunda áratugnum höfðum við engar kvenkyns fyr- irmyndir því þetta var svo nýtt og það var bókstaflega ekkert fjallað um kvennafótboltann í fjölmiðlum.“ Brynhildur og vinkonur hennar í boltanum voru því í sífelldri jafn- réttisbaráttu. „Bara einfaldir hlutir eins og að fá að æfa á grasi eins og strákarnir. Fá almennilega æfinga- tíma, fá fólk til að mæta, fá fjöl- miðlafólk til að mæta, sem er enn vandamál í dag, alla vega miðað við karlmennina, en það hafa auðvitað orðið miklar framfarir. Íslenska kvennalandsliðið hefur náð langt á heimsmeistara- og Evrópumótum og stelpur alveg niður í fjögurra ára eru á flottum æfingum.“ Í sögunni byggir Brynhildur á heimildum. „Þetta er ekki söguleg skáldsaga en til dæmis er allt sem viðkemur framboði Vigdísar sótt í heimildir og líka það sem viðkemur kvennaknattspyrnunni þótt ég setji það kannski í annað samhengi,“ segir Brynhildur og tekur sem dæmi sögu af því þegar dómarar mættu ekki á úrslitaleik meistara- flokks kvenna. Saga sem má ekki gleymast Spurð hvers vegna Ungfrú fót- bolti sé mikilvæg fyrir ungmenni samtímans segir Brynhildur: „Mig hafði lengi langað að gera upphafi kvennaknattspyrnunnar skil á einhvern hátt. Mér finnst að þessi saga megi ekki gleymast. Það kostaði átök að koma þessu á kopp- inn og við höfum náð heilmiklum árangri en við erum samt enn að ströggla við ýmislegt.“ Brynhildur segir einnig að hún hafi viljað halda heiðri Vigdísar á lofti. „Nú er það langt síðan hún var forseti að fjöldi krakka þekkir ekki til hennar. Það var svo mikil- vægt á þessum tíma að fá kvenkynsfyrirmyndir, bæði fyrir stelpur og stráka. Eins og segir í bókinni: „Það að eitthvað hafi alltaf verið svona eru verstu rök í heimi.“ Maður á að storka staðalmynd- unum og storka hefðunum.“ Annar þráður sem Brynhildur vill gera skil í Ungfrú fótbolta er Breiðholtið sem spennandi og skemmtilegt uppvaxtarsvæði. „Ég flutti í Breiðholtið þegar ég var níu ára og strax þá var búið að skilgreina hverfið sem vandræða- svæði og svæði sem væri hreinlega óhollt börnum. Vissulega var hérna fullt af fólki í basli en þetta var líka ótrúlega skemmtilegt hverfi til að alast upp í. Það var allt morandi í krökkum og mikill leikur og mikil samstaða og mikið um ævintýri. Það var nokkuð sem mig langaði að ná fram, að Breiðholtið hefði verið annað en þessi ímynd sem fólk hef- ur af því.“ Ungfrú fótbolti er sextánda bók Brynhildar. Það er því ekki úr vegi að spyrja hana hvernig það sé að skrifa bókmenntir fyrir börn og ungmenni.„Það er alveg ótrúlega skemmtilegt. Börn og unglingar eru alveg frábær lesendahópur. Þau eru líka svo hreinskilin, þau láta mann alveg vita hvað virkar og hvað ekki. Maður finnur það strax,“ segir Brynhildur, sem er nú meira að færa sig úr barnabókum og yfir í ungmennabókmenntir þar sem þær henti breiðu aldursbili. „Að skoða heiminn frá sjónar- horni ungs fólks gefur okkur svolít- ið holla sýn og aðra sýn á það sem er að gerast. Það eru svo margir sem njóta þessara bókmennta þótt kennitalan þeirra passi ekki endi- lega inn í markhópinn.“ Brynhildur hefur nú þegar fengið jákvæð viðbrögð á Ungfrú fótbolta. „Þótt það sé ekki langt síðan hún kom út hef ég fengið viðbrögð frá stelpum og konum sem hafa ein- hvern tímann verið að æfa fótbolta eða ólust upp í Breiðholtinu á sín- um tíma. Þeim finnst gaman að lesa svona bækur sem þær geta lifað sig inn í og speglað sig í.“ Á keppnisvelli karlmanna  Í Ungfrú fótbolti segir Brynhildur Þórarinsdóttir sögu um tvær fótboltaóðar unglingsstelpur Morgunblaðið/Hari Fyrirmyndir Að skoða heiminn frá sjónarhorni ungs fólks gefur okkur svolítið holla sýn og aðra sýn á það sem er að gerast, segir Brynhildur Þórarinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.