Morgunblaðið - 18.11.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 18.11.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2019 Stefna borgaryfirvalda í skipu-lags- og húsnæðismálum hefur í megindráttum verið sú að auka við byggingar á dýrum svæðum en draga úr byggingum annars staðar. Þetta stafar af því að núverandi borgaryfirvöld telja að megintilgangur starfa þeirra sé að þétta byggð og þá verði annað að víkja. Óhjákvæmi- leg afleiðing þess- arar einstrengings- legu stefnu hefur verið ört hækkandi íbúðaverð og offramboð af dýrum íbúðum í miðbænum og nágrenni en skortur á hagstæðum íbúðum austar í borginni.    Þetta hefur valdið mörgum erfið-leikum við að finna húsnæði sem hæfir kaupgetunni, en þeir geta tekið gleði sína á ný því að borgarstjóri er búinn að finna lausnina á þessum heimatilbúna vanda.    Í samtali við Morgunblaðið umhelgina lýsti hann þeirri skoðun sinni að bankarnir ættu að breyta greiðslumati sínu til að gera fólki kleift að kaupa dýru íbúðirnar sem hann hefur lagt ofuráherslu á að séu byggðar í borginni.    Borgarstjóri segir að með því aðkaupa vel staðsettar íbúðir geti fólk sparað eldsneytiskaup og önnur útgjöld vegna bifreiðar og ætti þannig að geta keypt dýrara húsnæði, bara ef að bankarnir hækkuðu greiðslumatið og lánin.    Þetta hlýtur að vera notaleg til-hugsun fyrir unga fólkið sem er að spara fyrir fyrstu íbúð. Verði Degi að ósk sinni getur það sleppt bílnum og borgað í staðinn meira til bankanna. Þetta er alger drauma- tillaga. Dagur B. Eggertsson Bílverðið til bankanna STAKSTEINAR Ályktun um alþjóðlegan jafnlaunadag var sam- þykkt einróma í mannréttindanefnd allsherjar- þings Sameinuðu þjóðanna (Sþ) í New York á föstudaginn var. Ísland hafði forystu um gerð ályktunarinnar en auk þess stóðu sjö ríki að henni, Ástralía, Kanada, Nýja-Sjáland, Panama, Suður-Afríka, Sviss og Þýskaland. Um hundrað ríki til viðbótar voru með- flytjendur að ályktuninni. Um er að ræða nýja ályktun, en öll ríkin sem stóðu að ályktuninni eru einnig hluti af alþjóðlegum samtökum ríkja um að tryggja jöfn laun. Upphaf ályktunarinnar má rekja til mannrétt- indaráðs Sþ í Genf, sem fyrir tilstilli Íslands og fleiri ríkja samþykkti í júlí sl. einróma ályktun um jöfn laun til handa konum og körlum. „Íslensk stjórnvöld hafa beitt sér fyrir jafnlaunastefnu á al- þjóðavettvangi í samræmi við áherslur ríkisstjórn- arinnar. Það er stór áfangi að aðildarríki Samein- uðu þjóðanna ákveði að vekja athygli á mikilvægi launajafnréttis með þessum hætti,“ er haft eftir Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra í frétt utanríkisráðuneytisins. gudni@mbl.is Alþjóðlegur jafnlaunadagur  Ályktun að frumkvæði Íslands var samþykkt Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið Mannréttindanefnd Helen Inga Von Ernst sendiráðsritari (t.v.), fulltrúi Íslands í nefndinni. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is alnabaer.is Úrval af gluggatjaldaefnum, þykk, þunn, blúndur, kappar og allt þar á milli. Við erum sérhæfð í gluggatjöldum GLUGGATJÖLD Botnplatan í grunni nýja Lands- bankans við Austurbakka 2, við hlið Hörpu, var steypt á laugardaginn var. Steypuvinnan hófst aðfaranótt laugardagsins og var stöðugur straumur steypubíla fram á kvöld. Í botnplötuna fóru um 1.500 rúmmetr- ar af steypu og voru notaðir 50 steypubílar frá BM Vallá sem fóru um 190 ferðir með steypu í miðborg- ina. ÞG verk annaðist framkvæmdina og fékk verktakinn heimild Reykja- víkurborgar til að loka hægri akrein Kalkofnsvegar í átt að Lækjargötu. Þá var mynduð tvístefna á um 100 metra kafla við gatnamót Kalkofns- vegar og Geirsgötu. Nýjar höfuðstöðvar Landsbank- ans eru sérhannaðar fyrir þarfir bankans. Bankinn hefur verið með starfsemi sína á mörgum stöðum í miðborginni, að stórum hluta í leigu- húsnæði. Starfsemin verður sam- einuð á um 10.000 fermetrum í nýja húsinu en það er um 60% af flatar- máli hússins. gudni@mbl.is Morgunblaðið/Hari Nýr Landsbanki Botnplatan var steypt á laugardaginn var. Stöðugur straumur af steypubílum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.