Morgunblaðið - 18.11.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.11.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2019 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 595 1000 Tenerife eða Kanarí Flugsæti í janúar til Flug frá kr. 59.900 Sæti báðar leiðirmeð tösku og handfarangri Vaknaði við logandi hús  Hús sem kviknaði í á Akureyri í gærmorgun er gjörónýtt og var rifið með vélarafli  Að sögn nágranna var húsið að hluta til nýuppgert og málað í sumar Ragnhildur Þrastardóttir Guðrún Hálfdánardóttir Birgir Skjóldal, íbúi á Norðurgötu 1 á Akureyri, vaknaði við ófagra sjón á sunnudagsmorgun þegar húsið við hliðina á honum var alelda. Þegar blaðamaður Morgunblaðsins náði tali af Birgi í gær var vinnuvél mætt á staðinn til að rífa húsið. Það er gjörónýtt. „Ég vaknaði við eldsvoðann rétt fyrir hálfsex í morgun,“ sagði Birgir í gær. Húsið sem kviknaði í stóð við Norðurgötu 3 en í húsinu voru þrjár íbúðir. Íbúar tveggja þeirra náðu að koma sér út en sá þriðji var ekki á svæðinu þegar slökkviliðsmenn bar að garði. Eldurinn kom upp um fimmleytið í fyrrinótt. Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni á Akur- eyri var mikill eldsmatur í húsinu, sem var þriggja hæða timburhús. „Það var frekar óþægilegt að vakna við þetta,“ sagði Birgir. „Eins og þú heyrir er verið að rífa húsið því það er gjörónýtt.“ 300 gráða hiti Erfiðlega gekk að ráða niðurlögum eldsins en allar vaktir slökkviliðsins á Akureyri voru kall- aðar út og á þriðja tug slökkviliðsmanna tók þátt í slökkvistarfinu. Húsið var alelda um tíma og slökkviliðsmenn komust ekki inn til þess að slökkva eldinn innan frá. Þegar tveir slökkviliðsmenn reyndu að fara inn í logandi húsið urðu þeir frá að hverfa. „Þeir fóru inn í smástund en voru komnir inn í 300 gráða hita strax. Það var farið að hrynja úr loftinu þannig að þeir hörfuðu út aftur,“ segir Ólafur Stefánsson, slökkviliðsstjóri á Akureyri. Talsverðan reyk lagði yfir hluta Oddeyrarinn- ar, þar sem húsið stóð, og fólk var beðið að loka hjá sér gluggum vegna þess. Birgir býr við hlið hússins sem brann en segir að reykurinn hafi ekki valdið sér óþægindum. „Við erum sunnan við húsið og það var sunn- anátt og lagði til norðurs svo reykurinn barst ekki til okkar. Fyrir okkur var það ágætt í sjálfu sér en fyrir fólk hérna norðan við húsið var þetta verra.“ Málað í sumar og leit vel út Þrátt fyrir að húsið hafi verið gamalt segir Birgir að það hafi verið í góðu standi. „Það var í ágætis ásigkomulagi, ein íbúðin var nýuppgerð, hafði nýlega verið tekin í gegn frá A til Ö og risið var mjög gott. Ég veit svo sem ekki hvernig ástandið var í þriðju íbúðinni. Húsið var nýmálað, málað í sumar, og leit bara mjög vel út. Svo húsið var alls ekki illa til haft,“ segir Birgir. Þrír eigendur eru að húsinu og segir Birgir að hingað til hafi þeir ekki verið viljugir að veita fjölmiðlum viðtöl. Eldsupptök eru enn ókunn en rannsókn er í höndum rannsóknardeildar lögreglunnar. Morgunblaðið/Margrét Þóra Þórsdóttir Ónýtt Slökkviliðsmenn rífa eins mikið og þarf af húsinu eða þar til hættir að loga. Að öllum líkindum verður ekkert eftir nema grunnurinn, að sögn Ólafs. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ég held að flest fyrirtæki á alþjóðavísu séu að spá í það hvernig hægt er að gera umbúðir umhverfisvænni. Þetta er stórt skref sem við erum að fara að stíga,“ segir Mál- fríður Guðný Kolbeinsdóttir, sérfræðingur í umbóta- stjórnun hjá Ölgerðinni. Í byrjun næsta árs verða allar plastflöskur sem fyrir- tækið selur framleiddar úr 50% endurunnu plasti. Fram til þessa hafa allar plastflöskur sem neytendur á Íslandi kaupa verið úr nýju plasti. Munar um minna því Ölgerðin selur á hverju ári 20 milljón plastflöskur. „Þetta þýðir að 50% af öllu hráefni sem notað verður í okkar drykkjarvöruumbúðir eru endurnýttar plastflöskur sem hafa verið þvegnar, brotnar niður og blandað saman,“ segir Málfríður. Aðspurð segir hún að ef allir framleiðendur myndu skipta yfir í 100% endurunnið plast væri ekki til nægilega mikið hráefni. „Hér á Íslandi er mjög gott skilahlutfall á plasti en erlendis er það ekki alls staðar jafn gott. Mark- aðurinn þarf því í byrjun að stefna í 50 prósent,“ segir hún. Ölgerðin framleiðir sem kunnugt er Pepsi og stórfyr- irtækið PepsiCo hefur sett sér það markmið að fyrir 2025 muni allar flöskur vera úr 25% endurunnu plasti. Ljóst er því að Ölgerðin stígur mun stærra skref í fyrstu atrennu. Auk þess verða allar 0,5 lítra plastflöskur léttar um 1,5 grömm, sem minnkar plastnotkun enn frekar. Segir Mál- fríður að frá árinu 2008 hafi allar plastflöskur fyrir- tækisins verið léttar um fjögur grömm. Ölgerðin fékk nýlega verkfræðistofuna Eflu til að gera vistferilsgreiningu á umbúðum fyrirtækisins. Leiddi hún í ljós mikinn ávinning af því að vera með framleiðslu hér á landi. Eins sýnir greiningin að skiptin yfir í endurunnið plast skila mun minna kolefnisspori en þær plastflöskur sem notast er við í dag. Skipta yfir í endurunnið plast  Ölgerðin tekur fyrst fyr- irtækja í notkun plastflöskur úr 50% endurunnu plasti Sífellt minna kolefnisspor Grömm CO2 ígilda Glerfl aska PET fl aska Áldós 50% rPET 130 77 50 71 Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu á laug- ardagskvöld og aðfaranótt sunnu- dags. Um sjötíu mál voru skráð hjá lögreglu frá klukkan sjö að kvöldi til klukkan fimm um nótt. Sjö gistu fangaklefa. Meðal þess sem kom upp var að maður var handtekinn með þýfi nokkrum mínútum eftir að hann braust inn í Gerðarsafn í Kópavogi. Stúlka fannst í annarlegu ástandi í Grafarholti og var henni komið í hendur læknis. Afskipti voru höfð af erlendum manni í miðbæ Reykjavíkur en hann var að áreita fólk. Á honum fundust fíkniefni og var hann vistaður í fanga- klefa. Nokkrir voru stöðvaðir fyrir að aka undir áhrifum áfengis eða vímuefna. Í miðbænum var ökumaður stöðv- aður vegna ölvunar en hann ók á móti einstefnu. ragnhildur@mbl.is Maður braust inn í Gerðarsafn  Um 70 mál voru skráð hjá lögreglu Erill Nóttin var nokkuð annasöm. Bókin Ekkert að fela – á slóð Sam- herja í Afríku kemur út í dag en hún er afrakstur margra mánaða rannsóknarvinnu þeirra Helga Selj- an, Aðalsteins Kjartanssonar og Stefáns Aðalsteins Drengssonar um starfsemi og viðskiptahætti Sam- herja í Afríku, að því er segir í frétt frá útgefanda, Vöku-Helgafelli. Í bókinni er ítarlega gerð grein fyrir því sem útgefandi kallar vafa- söm vinnubrögð útgerðarfyrirtæk- isins Samherja við Afríkustrendur og niðurstöður úr Samherjaskjöl- unum svokölluðu dregnar saman. Afsala sér öllum greiðslum Samkvæmt fréttatilkynningunni afsala höfundar sér öllum greiðslum vegna útgáfunnar og er stefnt að því að höfundarlaun renni til hjálparstofnunar eða mannúðar- samtaka sem beita sér í Afríku. rosa@mbl.is Gefa út bók um Sam- herjamálið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.