Morgunblaðið - 18.11.2019, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 18.11.2019, Blaðsíða 12
FRÉTTASKÝRING Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Ríkisolíufyrirtæki Sádi-Arabíu, Saudi Aramco, tilkynnti á sunnudag að það muni setja 1,5% af félaginu á markað, samtals um þrjá milljarða hlutabréfa, og er óskað eftir til- boðum á bilinu 30 til 32 ríöl á hlut. Jafngildir það því að olíurisinn sé 1.600 til 1.700 milljarða dala virði. Er þetta nokkru lægra verð en stjórnvöld höfðu áður vonast til að fá og hafði krónprinsnn Mohammed bin Salman, sem annast daglega stjórn landsins, greint frá að hann teldi 2.000 milljarða dala sanngjarnt verð fyrir stærsta olíufyrirtæki heims. Undanfarnar vikur og mánuði hafa bæði innlendir og erlendir markaðsgreinendur verið nokkuð einróma um að 2.000 milljarðar dala væri of hátt mat. Þá hefur ekki hjálpað að órói hefur verið í þessum heimshluta og er þess skemmst að minnast þegar gerð var drónaárás á aðalolíuhreinsunarstöð Aramco í september. Eins varð morðið á blaðamanninum Jamal Khashoggi, í sendiráði Sádi-Arabíu í Istanbúl fyrir rösku ári, ekki til þess að auka velvild erlendra fjárfesta. Þá hafa sumir fjárfestar áhyggjur af að stjórnvöld hafi of mikil afskipti af stefnu og rekstri olíufélagsins. Vill fjölbreyttara hagkerfi Miðað við núverandi viðmiðunar- verð Aramco gæti hlutafjárutboðið orðið það stærsta í sögunni og aflað félaginu jafnvirði 25,6 milljarða dala, að því er Reuters greinir frá. Fyrra met var slegið af Alibaba þegar kínverski netverslunarrisinn nam land á bandarískum hluta- bréfamarkaði og seldi hluti fyrir 25 milljarða dala. Með því að setja ríkisolíufélagið á markað vilja stjórnvöld afla fjár sem nota á til að byggja upp aðra geira atvinnulífsins, skapa ný störf og gera hagkerfi landsins minna háð útflutningi á olíu. Vildi krón- prinsinn upphaflega selja 5% hlut og hafði vonast til að afla þannig allt að 100 milljarða dala til að verja til ýmissa verkefna. Gangi hluta- fjárútboð Aramco vel má vænta þess að meira af eignum ríkisins fari á markað í framhaldinu. Ekkert fyrirtæki í heiminum er rekið með meiri hagnaði en Saudi Aramco og greiddi félagið út 75 milljarða dala í arð á síðasta ári. Er það fimmfalt hærri upphæð en Apple greiddi sínum hluthöfum á sama tímabili, en bandaríska tækni- fyrirtækið er það verðmætasta í S&P 500-vísitölunni. Verður borið uppi af innlendum kaupendum Að sögn FT má greina verulegan mun á áhuga innlendra og erlendra fjárfesta á olíufélaginu og horfur á að Aramco muni ekki leggja sig mikið fram við að laða að erlent fjármagn en þess í stað reiða sig að stærstum hluta á innlenda fjárfesta og sjóði. Hafa erlendir sérfræðingar enda verðmetið Aramco á 1.200 til 1.500 milljarða dala, sem er vel und- ir væntingum félagsins. Á undan- förnum vikum hafa fulltrúar olíu- risans m.a. heimsótt Rússland og Kína til að glæða áhuga fjárfesta þar sem gætu viljað styrkja tengsl- in við Sádi-Arabíu með því að eign- ast skerf í Aramco. Búið er að taka frá 0,5% hlut fyr- ir sádiarabíska fjárfesta og greinir FT frá að þrýst sé á fjársterkar fjölskyldur og sjóði um að gera gott tilboð í hlutafjárútboðinu. Þá eru sádiarabískir bankar mjög fúsir að lána þeim sem vilja eignast hlut í Aramco. Endanlegt útboðsverð mun liggja fyrir hinn 5. desember. Sjötti hver vill kaupa hlut Almenningur í Sádi-Arabíu virð- ist mjög áhugasamur um hlutafjár- útboðið og hefur krónprinsinn talað um það sem tækifæri fyrir hinn al- menna borgara að eignast hlut í þessu „krúnudjásni“ þjóðarinnar. Hafa bankar í landinu þurft að lengja hjá sér afgreiðslutímann til að anna fyrirspurnum frá viðskipta- vinum sem vilja taka þátt í útboð- inu. Almennum kaupendum stendur til boða að fá útgefið eitt auka- hlutabréf fyrir hver tíu sem þeir eiga að því gefnu að þeir selji ekki hluti sína á fyrstu 180 dögunum frá útboðinu. Sádiarabískir fjölmiðlar telja að um fimm milljón manns hyggist freista þess að eignast hlut í Aramco, en samtals eru íbúar landsins tæpar 33 milljónir talsins. Saudi Aramco setur mark- ið á 1.700 milljarða dala  Almenningur í Sádi-Arabíu hefur mikinn áhuga og bankar eru fúsir að lána AFP Von Krónprinsinn Mohammed bin Salman vill renna fleiri stoðum undir atvinnulíf landsins. Gangi hlutafjárútboð Aramco vel má vænta þess að fleiri félög í ríkiseigu fylgi í kjölfarið. Tekjurnar á að nota til að styrkja aðra geira. Undirstaðan » Olía fannst fyrst í Sádi- Arabíu árið 1938. » Árið 2017 var áætlað að í lindum Aramco væru 260 millj- arðar fata af olíu og ætti að endast í 54 ár. » Saudi Aramco framleiddi 10,3 milljónir fata af olíu á dag á síðasta ári. » Tveir þriðju af olíu- framleiðslu landsins fara til kaupenda í Asíu. » Hagnaður félagsíns í fyrra nam 111 milljörðum dala. 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2019 N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið KEBE Hvíldarstólar Tegundir: Rest og Fox Opið virka dag a 11-18 laugardaga 11-15 Stan Deal, sem stýrir flugvélafram- leiðslusviði Boeing, segir fyrirtækið gera sér fulla grein fyrir að það þurfi að ávinna sér aftur traust bæði flug- vélakaupenda og almennings. Deal lét þessi ummæli falla á fundi með blaðamönnum í upphafi flugsýning- arinnar í Dúbaí sem hófst á sunnu- dag og greinir Reuters frá. Að vanda taka fulltrúar flugfélaga og ríkis- stjórna stefnuna á viðburðinn, sem haldinn er í Sameinuðu arabísku furstadæmunum annað hvert ár, til að leggja þar drög að kaupum á far- þegaþotum jafnt sem herflugvélum. Markaðsgreinendur munu fylgj- ast náið með þeim viðtökum sem Bo- eing fær í Dúbaí en orðspor flug- véla fyrirtækisins hefur beðið mikið tjón í kjölfar þess að galli í tækni- búnaði varð til þess að tvær 737 MAX-farþega- þotur fórust með sex mánaða millibili árin 2018 og 2019. Bæði olli það flugfélögum miklu tjóni þegar 737 MAX-vélarnar voru kyrrsettar, en einnig virðist al- menningur afhuga því að fljúga með Boeing-vélum. Bandarísk könnun sem gerð var um mitt þetta ár leiddi þannig í ljós að rösklega 40% svarenda sögðust reiðubúin að velja óhentugri eða dýr- ari flugleið til að komast hjá því að fljúga með 737 MAX og aðeins 14% bandarískra flugfarþega sögðust óhikað myndu fljúga um borð í 737 MAX fyrstu sex mánuðina eftir að flugmálayfirvöld leyfa notkun flug- vélanna að nýju. Fyrr í haust sagði bandaríska flugfélagið United Airlines að það myndi koma til móts við farþega með því að leyfa þeim að breyta flugmiða sínum sér að kostnaðarlausu, ef þeir bóka fyrir misgáning flug með 737 MAX. ai@mbl.is Boeing þarf að ávinna sér aftur traust almennings  Vandlega fylgst með þróun mála á flugsýningunni í Dúbaí Ríkisfréttastofan Xinhua greindi frá því um helgina að bandarískir og kínverskir embættismenn hefðu átt „uppbyggilegan“ símafund á laugardag þar sem rætt var um lausn á viðskiptadeilum landanna. Liu He, einn af nánustu sam- starfsmönnum forsætisráðherra Kína, fundaði þar með bæði Robert Lighthizer, viðskiptafulltrúa Bandaríkjastjórnar, og Steven Mnuchin fjármálaráðherra. Sam- kvæmt Xinhua var fundurinn nýtt- ur til að fara yfir nokkur lykilmál sem leysa þarf úr í aðdraganda þess að samningar náist á milli þjóð- anna. Liðnir eru sextán mánuðir síðan tollastríð brast á milli Kína og Bandaríkjanna og nú síðast á fimmtudag hleypti það aukinni bjartsýni í markaði um allan heim þegar haft var eftir Larry Kudlow, efnahagsráðgjafa Hvíta hússins, að stutt væri í að samkomulag væri í höfn. ai@mbl.is Sátt Þeir Robert Lighthizer og Liu He virðast hafa náð vel saman. Góður tónn í viðræðum  Vísbendingar um að endir á tollastríð- inu sé í sjónmáli AFP Benedikt Ólafsson, fjármálastjóri Skeljungs, hefur sagt upp störfum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skeljungi. Benedikt starfaði fyrir fyrirtækið í tæp fjögur ár en hann sat í stjórn Skeljungs frá 2013 til 2016, áður en hann tók við starfi fjármálastjóra. Áður starfaði Benedikt hjá Stefni og Arion banka. Benedikt hefur einnig unnið við stýringu erlendra framtakssjóða. Ekki náðist í Benedikt við vinnslu fréttarinnar. Fjármála- stjóri hættir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.