Morgunblaðið - 18.11.2019, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 18.11.2019, Blaðsíða 25
HANDBOLTI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Valsmenn eru komnir áfram í fjórðu umferð Áskorendabikars Evrópu í handknattleik eftir samanlagðan tíu marka sigur gegn austurríska efstu- deildarliðinu Bregenz en báðir leik- irnir fóru fram í Rieden Vorkloster- höllinni í Bregenz í Austurríki. Fyrri leik liðanna, hinn 16. nóvember, lauk með 31:31-jafntefli en Valsmenn keyrðu yfir austurríska liðið í seinni leiknum sem fram fór í gær og urðu lokatölur leiksins 31:21, Valsmönnum í vil. Hreiðar Levy Guðmundson átti stórleik í marki Valsmanna í seinni leiknum og varði alls sextán skot. Hann var afar sáttur við frammistöðu liðsins í leikjunum í Austurríki og tel- ur að í leikjunum tveimur hafi Vals- menn sýnt sína bestu frammistöðu á tímabilinu til þessa. „Ég er ótrúlega ánægður með karakterinn, liðið og spilamennskuna í heild, sérstaklega í seinni leiknum,“ sagði Hreiðar í sam- tali við Morgunblaðið í gær. „Við vorum búnir að fara vel yfir þá og það var í raun ekkert í þeirra leik sem kom okkur þannig séð á óvart. Það kom hins vegar á óvart að við skyldum vinna þá með tíu mörkum í seinni leiknum. Þeir virkuðu hálf- þreyttir í dag (gær) og við nýttum okkur það bara mjög vel. Við keyrð- um vel á þá og refsuðum þeim grimmilega. Þessir tveir leikir okkar gegn þeim voru að mínu mati okkar besta frammistaða til þessa á tíma- bilinu og vonandi getum við byggt of- an á hana. Við markmennirnir stóð- um okkur ekki nægilega vel í fyrri leiknum en við áttum mjög flottan leik í dag (í gær).“ Staðráðinn í að stíga upp Hreiðar var ósáttur við sína frammistöðu í fyrri leiknum þar sem hann varði tíu skot og var hann stað- ráðinn í að gera mun betur í seinni leiknum sem hann og gerði en mark- varslan var það sem skildi liðin að í tíu marga sigri Valsmanna í gær. „Þeir skutu dálítið eftir plani, bæði í fyrri leiknum sem og í þeim seinni. Þetta eru góðir skotmenn og það er öðruvísi hraði á skotunum hjá þeim. Þetta eru öðruvísi skyttur en heima á Íslandi en þetta snerist fyrst og fremst um sjálfan mig og ég var í raun staðráðinn í að gera betur í seinni leiknum. Ég tók aðeins á mig þetta jafntefli í fyrri leiknum því strákarnir stóðu sig frábærlega. Ég sagði þeim eftir fyrri leikinn að ef ég og Danni verðum sjö til tíu skot í við- bót myndum við fara áfram úr einvíg- inu og það gekk eftir. Þetta er sterkt lið sem væri að berjast í efri hluta ís- lensku úrvalsdeildarinnar. Þetta væri topp-fjórir- topp-fimm-lið heima á Ís- landi. Ég bjóst við hörkuleik gegn þeim í dag (gær) og það bjóst enginn við því að klára þá svona sannfærandi, hvað þá í fyrri hálfleik.“ Valsmenn byrjuðu tímabilið illa en liðið var með þrjú stig eftir fyrstu sex umferðirnar. Liðið hefur hins vegar verið að klifra upp töfluna í undan- förnum leikjum og hefur nú unnið fjóra leiki í röð í Olísdeildinni. Háleit markmið fyrir tímabilið „Við vorum að glíma við ákveðin meiðsli í upphafi tímabilsins en það er góð breidd í hópnum. Auðvitað munar um meiðsli lykilmanna og það myndi hvaða lið sem er finna fyrir þeim, líkt og við höfum gert. Þetta er hins vegar allt að smella saman og ég er mjög bjartsýnn á framhaldið. Það er nefni- lega hörkustígandi í þessu hjá okkur þessa dagana og það er ekkert leynd- armál að markmiðið í byrjun tímabils var að berjast um alla þá titla sem í boði eru. Við förum í hvern einasta leik til að sækja sigur, sama á móti hvaða andstæðingi við spilum, og það var ekkert öðruvísi gegn Bregenz. Við mættum í þetta einvígi með kassann úti og það er ekkert grín að spila tvo erfiða útileiki á tveimur dögum. Að vinna tíu marka sigur í tveimur leikj- um er þess vegna gríðarlega sterkt.“ Hreiðar Levy byrjaði tímabilið meiddur en hann hefur komið inn með mikinn kraft í lið Valsmanna í síðustu leikjum og átti meðal annars stórleik gegn KA í síðustu umferð deildarkeppninnar þar sem hann varði 14 skot og var með 56% mark- vörslu. „Þetta hefur gengið vel hjá mér í síðustu leikjum en mér finnst ég ennþá eiga mikið inni. Vonandi verð ég sömuleiðis betri og betri eftir því sem líður á tímabilið, en það hefur að- eins verið gegnumgangandi á mínum ferli að mér finnst ég alltaf eiga eitt- hvað inni til þess að gefa. Stundum þarf maður hins vegar að stoppa bara og læra að vera ánægður með eigin frammistöðu.“ Enginn átti von á stórsigri gegn Bregenz í Austurríki  Hreiðar Levy Guðmundsson hefur komið sterkur inn í síðustu leikjum Vals Morgunblaðið/Hari Öflugur Reynsla Hreiðars Levýs nýttist Valsmönnum vel í Austurríki. ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2019 V E R T Heilsutvenna uppfyllir daglega vítamín- og steinefnaþörf Íslendinga í tveimur perlum. - því að sumt virkar betur saman Stundum þarf tvo til Undankeppni EM kvenna A-RIÐILL: Grikkland – Ísland................................ 89:54 Búlgaría – Slóvenía .............................. 64:72 Staðan: Slóvenía 2 1 0 142:128 4 Grikkland 2 1 1 153:124 2 Búlgaría 2 1 1 148:141 2 Ísland 2 0 2 123:173 0 1. deild karla Álftanes – Vestri................................... 73:90 1. deild kvenna Tindastóll – Keflavík b......................... 73:70 Njarðvík – Hamar ................................ 83:45 Spánn Valencia – Zaragoza ........................... 92:74  Tryggvi Snær Hlinason skoraði 3 stig og tók 2 fráköst á 14 mínútum hjá Zaragoza. Þýskaland Ludwigsburg – Alba Berlín ............... 81:77  Martin Hermannsson skoraði 16 stig og gaf 6 stoðsendingar fyrir Alba Berlín. Rússland Parma Perm – UNICS Kazan ............ 88:89  Haukur Helgi Pálsson var ekki í leik- mannahópi Kazan. Svíþjóð Köping Stars – Borås.......................... 75:67  Elvar Már Friðriksson skoraði 12 stig, gaf 10 stoðsendingar og tók 4 fráksöt fyrir Borås. KÖRFUBOLTI EHF-bikar karla 32 liða úrslit, fyrri leikir: SKA Minsk – RN Löwen ..................... 28:32  Alexander Petersson skoraði 1 mark fyr- ir Löwen. Kristján Andrésson þjálfar. Winterthur – Bjerringbro/Silkeb ..... 33:36  Þráinn Orri Jónsson skoraði 1 mark fyr- ir Bjerringbro/Silkeborg. Þýskaland Kiel – Hannover-Burgdorf................. 32:23  Gísli Þorgeir Kristjánsson lék ekki með Kiel vegna meiðsla. Göppingen – Balingen ........................ 26:32  Oddur Gretarsson skoraði 3 mörk fyrir Balingen. Stuttgart – Bergischer ....................... 25:31  Elvar Ásgeirsson skoraði ekki fyrir Stuttgart.  Arnór Þór Gunnarsson er meiddur og Ragnar Jóhannsson skoraði ekki fyrir Bergischer. Ludwigshafen – Nordhorn ................ 19:12  Geir Sveinsson þjálfar Nordhorn. Leverkusen – Metzingen .................... 24:25  Hildigunnur Einarsdóttir skoraði 2 mörk fyrir Leverkusen.  Eftir frábæran sigur gegn Íslands- og bikarmeisturum Vals á dög- unum var liði HK kippt niður á jörðina á laugardaginn af liði Hauka þegar liðin mættust á Ás- völlum í Olís-deild kvenna í hand- knattleik. Haukar unnu 29:23 og munar nú einu stigi á liðunum í deildinni en HK er í 5. sæti með átta stig en Haukar, sem byrjuðu tíma- bilið illa, eru með sjö stig. Hafnfirð- ingarnir virðast vera að finna takt- inn en liðið komst einnig áfram í bikarnum á dögunum. Hin sænska Sara Odden átti stórleik og skoraði 10 mörk fyrir Hauka en Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var marka- hæst hjá HK með sex mörk. Íslandsmeistarar Vals eru komn- ar aftur á beinu brautina eftir átta marka sigur gegn nýliðum Aftur- eldingar í Mosfellsbæ í gær. Leikn- um lauk með 27:19-sigri Vals en staðan í hálfleik var 16:13, Vals- konum í vil. Lovísa Thompson skor- aði níu mörk fyrir Val en Roberta Ivanauskaite var markahæst hjá Aftureldingu með átta mörk. ÍBV beit frá sér á móti Fram í Vestmannaeyjum en topplið Fram landaði eins marks sigri, 24:23, eft- ir að ÍBV hafði verið yfir 13:12 að loknum fyrri hálfleik. Steinunn Björnsdóttir skoraði sigurmark Fram þegar 20 sek- úndur voru eftir af leiknum eftir sendingu frá Hildi Þorgeirsdóttur. „Hildur elskar að gefa á Steinunni og Steinunn elskar að skora þessi mörk,“ sagði Stefán Arnarson, þjálfari Fram, við mbl.is að leiknum loknum en Steinunn skoraði alls átta mörk eins og Ragnheiður Júlíusdóttir. Sunna Jónsdóttir skor- aði einnig átta mörk fyrir ÍBV. sport@mbl.is Haukar kipptu HK niður á jörðina Morgunblaðið/Árni Sæberg Sigurmark Steinunn Björnsdóttir tryggði Fram sigur í Eyjum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.