Morgunblaðið - 18.11.2019, Side 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2019
✝ Anton Narvaézfæddist 22.
september 1948 í
Valparaiso í Síle.
Hann varð bráð-
kvaddur 9. nóv-
ember 2019. For-
eldrar hans voru
Oscar Oswaldo
Narvaéz, ættaður
frá Argentínu, f.
5.2. 1918, d. 7.2.
1955 í Copiapo í
Síle, og Norma Elide Corvetto
Monighetti, ættuð frá Ítalíu, f.
26.2. 1920 í Arica í Síle, d. 13.5.
2013 í Blistrup í Danmörku.
Systir Antons er Heda Hansen,
f. 3.4. 1942, búsett í Danmörku,
hún á fjögur börn.
Anton flutti frá Síle til Dan-
merkur þegar hann var 15 ára.
Þar kynntist hann Ragnhildi
Jónu Þorgeirsdóttur, f. 23.3.
1948, og þau fluttu til Íslands
árið 1967 og voru gift í 20 ár.
Börn þeirra eru: 1) Helena
Sandra, f. 1969, maki Stefán
Þór Kristjánsson, f. 1964, börn
þeirra eru Særós, f. 1994, sam-
býlismaður Jón Örn Eyjólfsson,
f. 1987, Smári, f. 1998, og
Snorri f. 2007. Stefán á soninn
Sindra Þór, f. 1986, maki Auð-
ur Snorradóttir, f. 1990, og
eiga þau börnin Sesar Mána,
Natalíu Nótt og Aþenu Sól. 2)
Anton Kevin, f. 1970, sambýlis-
kona Katherine Harris, börn
ýmist í Danmörku og Svíþjóð
og þar bjó fjölskyldan um tíma
með honum. Árið 1973 fékk
hann íslenskan ríkisborgararétt
og þar með þurfti hann að
breyta nafninu sínu úr Nol-
berto Antonio Narvaez Corv-
etto.
Anton bar titilinn þúsund-
þjalasmiður með rentu. Hann
smíðaði bátinn Farsæl GK 162 í
Svíþjóð, sem tengdafaðir hans
og mágur sigldu á til Íslands
með búslóðina, og seldi hann
þeim bátinn. Þar með settist
hann að á Íslandi árið 1982
ásamt eiginkonu og þremur
börnum og bjuggu þau í Hafn-
arfirði. Fjölskyldan opnaði sinn
fyrsta veitingastað, El Som-
brero, á Laugavegi 73, árið
1984. Árið 1988 opnaði hann
veitingastaðinn Argentínu
steikhús ásamt þremur öðrum.
Þann stað smíðaði hann einnig
frá grunni sem og alla hina
staðina, hann opnaði alls tíu
veitingastaði og var með sinn
ellefta og síðasta í smíðum,
Mamma Mía, sem átti að opna á
næstu dögum í Keflavík.
Eitt af stórum verkum hans
er hjá Einhamri Seafood ehf. í
Grindavík. Er það í eigu dóttur
hans, Söndru, og Stefáns. Hann
var mjög fjölhæfur og talaði
sex tungumál. Anton hafði
sterkar taugar til fæðingar-
lands síns Síle en hér átti hann
alltaf heima.
Útför hans fer fram í
Grindavíkurkirkju í dag, 18.
nóvember 2019, klukkan 14.
Kevins eru Aron
Kristinn, f. 1992,
og Angelina Tália,
f. 2002. 3) Natalie
Terez Narvaéz
Antonsdóttir, f.
1978, maki Þórir
Kjartansson, f.
1975, börn Natalie
úr fyrra hjóna-
bandi eru Victoría
Sigurðardóttir, f.
2001, og Leandro
Óskar Sigurðsson, f. 2011. Þór-
ir á son úr fyrra sambandi,
Kjartan Þór, f. 2005. Anton
eignaðist með sambýliskonu
sinni Kristínu Guðmundsdóttur,
f. 14.5. 1962, d. 27.10. 2014,
dótturina Sylvíu Mekkín, f.
1988, búsett í Þýskalandi, maki
Bobby Donchev, f. 1986, börn
þeirra eru Ísabel Jasmín, f.
2013, og Valentína Rós, f. 2018.
Árið 1997 kvæntist Anton Guð-
nýju Sigurhansdóttur, f. 10.3.
1956, þau skildu. Eftirlifandi
eiginkona Antons er Olena Ko-
bets frá Úkraínu, f. 25.3. 1957.
Anton flutti ungur til Dan-
merkur og þar fór hann í skóla
og lærði bátasmíði. Hann flutti
til Íslands 1967 og fór að vinna
hjá Skipasmíðastöðinni Dröfn
og Blikksmiðju Hafnarfjarðar
hjá Gústa blikk en hætti þar og
fór að vinna hjá álverksmiðj-
unni ÍSAL í Straumsvík og það-
an var hann sendur að vinna
Elsku pabbi minn er nú far-
inn frá okkur, ég minnist hans
með svo miklu þakklæti og hlý-
hug í hjarta. Ég átti mörg góð
tímabil með honum. Minnis-
stæðast er þegar við unnum
saman á Mamma mía í Keflavík
og það var þá sem ég virkilega
kynntist pabba mínum, ég var
nýfermd og fannst svo spenn-
andi að pabbi væri að fara að
opna pítsustað, mig langaði að
vinna hjá honum og flutti til
Keflavíkur. Hann kenndi mér
að vinna, allt frá því að smíða,
elda og þrífa. Þegar ég var
fimm ára opnaði hann El
Sombrero, fyrsta staðinn sinn
af ellefu. Ég fékk að sópa og
hjálpa honum þar líka, stóð uppi
á stól og bakaði pítsu.
Pabbi var algjör snillingur í
höndunum, að skapa, teikna,
elda, smíða, og hann tjáði allt
sem hann var með vinnu. Það
var hans ástríða og það gat eng-
inn stoppað hann í því og það
má segja að hann hafi verið
samkvæmur sjálfum sér í því.
Ég var ekki alltaf sammála hon-
um, en hann fór sína leið, drif-
kraftur hans og ástríða leiddu
hann áfram og ég ber virðingu
fyrir því hversu fylginn sér
hann var og ofboðslega kær-
leiksríkur. Það var stundum
erfitt að vinna fyrir hann, því
hann vissi nákvæmlega hvernig
hann vildi hafa hlutina og mað-
ur varð að vinna eins og hann,
en vá hvað ég lærði mikið, það
þýddi ekkert hálfkák í kringum
hann. Við lærðum að vinna sam-
an og það gekk svo vel hjá okk-
ur.
Hann var einstaklega góður
alltaf við mig og mína fjöl-
skyldu, börnin mín minnast
hans sem svo góðs afa, þótt þau
sæju hann ekki oft, en þegar
þau hittu hann sleppti hann
þeim ekki, sýndi þeim áhuga,
talaði við þau og knúsaði. Hann
gaf þeim alltaf eitthvað, þótt
ekki væri nema 500-kall, hann
var svo gjafmildur maður. Hann
gaf allt sem hann átti og gat.
Ég man þegar hann ætlaði að
gefa mér hjól. Það var fyrsta
hjólið mitt, ég var um fimm ára.
Einn daginn kom hann heim
með forljótt og ryðgað hjól og
ég sagði „hvað er þetta“, þá
sagði hann „hjólið þitt“ og ég
fór að hágráta og sagði „nei
þetta er svo ljótt“. Hann hugg-
aði mig og sagði: „Pabbi ætlar
að laga það og gera það fínt.“
Það liðu ekki margir dagar þar
til hann kom með fallegt og
„nýtt“ hvítt hjól og ég var svo
ánægð, þá hafði hann gert það
algjörlega upp og það var svo
fallegt. Þetta lýsir pabba svo
vel, svona var hann; sá alltaf
það fallega í öllu og það var
ekkert sem ekki var hægt að
laga og gera fínt.
Við áttum fáar en góðar
stundir sem snerust um and-
legu hliðina, pabbi var ekkert
mikið að tala um tilfinningar
heldur sagði hann allt með
vinnu og verkum. En þær fáu
stundir sem við áttum töluðum
við um trú og ég deildi með
honum minni trú. Honum þótti
það gott og sagði eitt sinn ekki
alls fyrir löngu: „Ég vil þetta,“
og við báðum saman. Svo bað
hann mig oft að biðja fyrir sér
eða hinu og þessu. Ég veit að í
dag er hann hjá Jesú, hann
trúði á Jesú og það gaf honum
frið í erfiðum aðstæðum.
Ég kveð pabba minn með
miklum söknuði og ég vil láta
eitt vers fylgja að lokum:
Drottinn láti sína ásjónu lýsa
yfir þig og sé þér náðugur!
Drottinn upplyfti sínu augliti
yfir þig og gefi þér frið.
(4. Mós. 6:25-26).
Elska þig að eilífu pabbi
minn. Þín dóttir,
Natalie T. Narvaéz
Antonsdóttir.
Elsku pabbi minn. Takk fyrir
allt og takk fyrir að vera þú. Þú
varst ekki bara pabbi heldur
líka minn besti vinur. Við vor-
um alltaf saman, unnum saman
og bjuggum saman þegar ég
var á Íslandi. Hann var svo vel
liðinn alls staðar, átti marga
góða vini, hann talaði alltaf svo
fallega um alla, hann vildi alltaf
hjálpa og ráðleggja. Hann gafst
aldrei upp.
Ég man svo vel þegar ég var
lítill, þá vildi ég alltaf fara með
honum allt, t.d. þegar hann var
að lengja bátinn Farsæl í Sví-
þjóð og þegar hann var að laga
bílana sína og margt fleira.
Hann er og var mín fyrirmynd
og ég leit svo upp til hans. Ég
lærði svo mikið af honum að
það er með ólíkindum.
Þegar við fjölskyldan fluttum
til Íslands var ég þrettán ára.
Þá stofnaði hann sinn fyrsta
veitingastað, EL Sombrero. Þá
var sko ekkert elsku mamma;
þar byrjaði allt ævintýrið, þar
lærði ég mikið af honum varð-
andi að smíða og nota verkfæri.
Ég fylgdist vel með og hlustaði
og Sandra systir mín var orðin
fær með hjólsög og ég líka.
Þegar staðurinn var opnaður
fór ég að baka pítsur.
Og frá og með þeim stað var
ég með honum á öllum stöðum
sem hann opnaði; allt frá því að
smíða og innrétta og stundum
aðstoðaði ég hann við að hanna.
Við vorum svo líkir og hugs-
uðum oft eins. T.d. á síðasta
staðnum sem við vorum að inn-
rétta í Keflavík og ætluðum að
eiga saman, Mamma Mía, þar
sá ég virkilega hvað við vorum
líkir og mér finnst það svo fal-
legt og skemmtilegt. Oft þegar
við vorum komnir heim eftir
langan vinnudag, alveg búnir á
því oftast, fengum við hug-
myndir og töluðum saman um
það sem þyrfti að gera. Við
gerðum nánast allt saman sjálf-
ir, smíðuðum og innréttuðum.
Hann var svo klár, ég var svo
montinn af pabba mínum. Hann
var sko þúsundþjalasmiður,
kunni svo margt, nema eitt;
hann vildi ekki koma nálægt
rafmagni, það var mitt hlutverk,
við vorum eitt.
Og það var svo gaman að
vera með honum dags daglega,
ekki bara í vinnu. Hann gat ver-
ið stríðinn, oft svo orðheppinn
og fyndinn, hann fékk mig svo
oft til að hlæja og þegar hann
kom með það á spænsku þá
passaði það svo vel og varð
ennþá fyndnara, en spænska
var eitt af tungumálunum sex
sem hann kunni.
Ég mun sakna hans svo mik-
ið, það er ekki til orð yfir hve
mikill söknuðurinn er. Hann
verður alltaf, alltaf í hjarta
mínu. Ég get skrifað endalaust
um okkur, elsku pabbi minn. Þú
ert núna kominn á góðan stað
og munt hvíla í friði. Elska þig
svo mikið elsku pabbi minn.
Þinn sonur,
Anton Kevin Antonsson.
Langar að minnast Antons,
fyrrverandi mannsins míns.
Við kynntumst í Danmörku
þá 18 ára gömul, þar bjó og býr
systir hans Heda og fjögur
börn.
Við Anton komum til Íslands,
giftum okkur 1969, mamma
hans Elide kom frá Síle í brúð-
kaupið, bjó með okkur þá í
Hafnarfirði. Ég var svo heppin
að læra bæði spænskuna og að
elda síleskan mat. Mamí, eins
og hún var kölluð, var frábær
kokkur og yndisleg við börnin
okkar; Söndru þá sex mánaða
og son okkar Kevin, sem fædd-
ist einu og hálfu ári síðar.
Við flytjum öll svo út til Sví-
þjóðar 1972. Þar fæðist Natalie
1978, bjuggum þar í 10 ár.
Við flytjum til Íslands 1982.
Anton var þá búinn að smíða 40
tonna bát, Farsæl GK162, sem
við eignuðumst með pabba og
Hafsteini bróður mínum, siglt
var til Grindavíkur með alla
okkar búslóð.
Anton var þúsundþjalasmið-
ur, lærði strax íslensku.
Eignuðumst síðar pítsustað-
inn El Sombrero á Laugavegi
73, sem hann hannaði frá
grunni.
Við öll fjölskyldan unnum í
að innrétta, lærðum mikið af
Antoni ég og börnin, hann var
einstaklega hlýr, kurteis og
gjafmildur, vorum gift í 20 ár.
Hvíl í friði, elsku vinur, minn-
ist þín með hlýhug.
Kær kveðja,
Jóna Þorgeirsdóttir.
Það var mér reiðarslag að
frétta af andláti Antons.
Það er mér minnisstætt þeg-
ar ég hitti hann fyrst. Þá kom
hann frá Danmörku með Jónu
systur, þau bjuggu við Garða-
veg 9 í Hafnarfirði.
Hann tók utan um mig eða
eiginlega umfaðmaði mig. Ég
varð mjög vandræðalegur því
ég átti þessu ekki að venjast.
Þótt það væri vandræðalegt
þótti mér mjög vænt um þetta
og hugsaði að fyrst mér þætti
vænt um það hlyti öðrum að
þykja það líka. Ég fór að gera
þetta við annað fólk; fyrst í
litlum mæli en geri þetta mikið
í dag. Það kemur varla sá dagur
að ég faðmi ekki fólk. Eiginlega
á hverjum degi.
Ég man þegar ég kom frá
Kanaríeyjum 1976 og var búinn
að vera fullur í þrjár vikur og
með mikinn móral vegna þess
hvernig ég hagaði mér. Ég var
eina nóttina inni í stofu og var
að reyna að sofna en gat það
ekki. Þá bjuggum við á Mar-
argötu 1 í Grindavík. Þá kom
hann til mín því þau Jóna voru
að fara til Svíþjóðar þar sem
þau bjuggu. Hann spurði hvern-
ig ég hefði það og ég sagði að
mér liði mjög illa. Hann spurði
hvort ég vildi ekki taka mig á
því þetta væri ekkert líf. Ég gat
ekki svarað honum því ég eig-
inlega gat ekki hugsað þá. Svo
kvaddi hann og sagði: „Ég vona
að þú hugsir þín mál og gerir
eitthvað í þessu, Ragnar minn.“
Mér þótti mjög vænt um þessa
heimsókn því ég vissi að honum
var ekki sama um mig. Og það
þótti mér vænt um.
Mér líkaði alltaf vel við hann.
Við hittumst ekki mjög oft en
þegar við hittumst föðmuðum
við hvor annan eins og ekkert
væri sjálfsagðara.
Ég vona að þú sért hjá Guði
og ég bið hann að blessa þig.
Ég hef beðið fyrir þér síðan
þú fórst og ætla að halda því
áfram.
Þinn vinur og bróðir Jónu,
Ragnar Rúnar Þorgeirsson.
Elsku fallegi og duglegi
pabbi minn. Mikið er sorgin
óbærileg, ég trúi ekki að þú
sért farinn frá okkur. Þetta
gerðist alltof snöggt, varst að
leggja lokahöndina á veitinga-
staðinn ykkar Kevins þegar
kallið kom og einmitt þar. Þú
gast ekki valið betri stað, það
var nefnilega þitt yndi að vinna,
þú þekktir ekki annað og þú
elskaðir að hanna og innrétta.
Þú sagðir við mig að þetta væri
síðasti staðurinn sem þú myndir
innrétta og opna, þú lofaðir mér
því. Ætlaðir að fara að hafa það
gott og njóta, sem þú hefðir átt
að gera fyrir löngu, elsku pabbi
minn, þú nefnilega gast ekki
slakað á, það var þín uppáhalds-
iðja að gera upp staði eða hús.
Þú varst þúsundþjalasmiður og
það lék allt í höndunum á þér.
Þú varst búinn að plana ferð
til Síle sem þú ætlaðir að fara í
ásamt systur þinni. Þú áttir
ekki auðvelt líf; misstir föður
þinn sjö ára og ólst upp með
móður þinni og systur, þú
fékkst ekki að upplifa þessa föð-
urást sem ég og við systkinin
fengum. Ég held að vegna þess
hafi tengslin á milli þín og Ke-
vins bróður verið svona mikil,
þið voruð svo samrýndir og þú
vildir svo sannarlega sýna hon-
um þessa föðurást sem þú
fékkst ekki að kynnast. 15 ára
flytur þú til Danmerkur til syst-
ur þinnar, þú fórst þangað í
nám og svo kynntust þið
mamma sumarið 1966, þú alveg
að verða 18 ára. Flytjið svo til
Íslands um haustið, giftið ykkur
í desember 1969, ég er sex mán-
aða. Mami amma flytur til okk-
ar og býr hjá okkur og flytur
svo með okkur til Svíþjóðar. Ég
var svo heppin að alast upp með
ömmu því að hún kenndi mér
svo margt, spænsku og að elda
marga góða rétti frá Síle. Árið
2012 fór ég til Síle og þegar ég
steig út úr flugvélinni fékk ég
gæsahúð og fann að ég var
komin heim, þið amma voruð
svo oft að rifja upp góðar minn-
ingar um landið. Ég heimsótti
fæðingarbæinn þinn Valparaiso
og einnig fór ég til Coquimbo
þar sem þú ólst upp og ég fór
að sjá æskuheimilið þitt, það
var magnað að fá að upplifa
þetta allt saman. Mikið hefði
verið gaman að fá að upplifa
það að fara með þér til Síle en
því miður varð aldrei úr því. Þú
kenndir mér svo margt, eitt
verð ég að nefna, það var
stærðfræði. Þú varst mikill
stærðfræðingur, ég var alltaf
með þeim hæstu í stærðfræði.
Þegar ég varð stúdent fékk ég
þrjár viðurkenningar; fyrir
skólasókn, spænsku og stærð-
fræði. Þú varst svo hreykinn og
stoltur yfir þessum viðurkenn-
ingum og sérstaklega fyrir
stærðfræðina.
Manstu þegar ég gifti mig, þá
leiddir þú mig upp að altarinu.
Þú varst svo stressaður að þú
ætlaðir að strunsa upp að alt-
arinu og ég þurfti að halda fast
í þig svo ég dytti nú ekki. Miss-
ir okkar er mikill en Kevins þó
mestur, samrýndari feðgar voru
ekki til og svo sannarlega voruð
þið vinirnir saman í lífi, leik og
starfi. Við systkinin stöndum
saman sem klettar og ætlum að
passa hvort annað í kærleik út
þetta líf. Þakklæti er mér efst í
huga fyrir allt sem þú kenndir
mér, pabbi minn, og mun minn-
ing þín alltaf lifa í hjarta mér.
Þín dóttir,
Sandra Antonsdóttir.
Anton Narvaéz
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar koma
fram upplýsingar um hvar og
hvenær sá sem fjallað er um
fæddist, hvar og hvenær hann
lést og loks hvaðan og klukkan
hvað útförin fer fram. Þar mega
einnig koma fram upplýsingar
um foreldra, systkini, maka og
börn. Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum, sem
er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
Minningargreinar
Sálm. 16.11
biblian.is
Kunnan gerðir þú
mér veg lífsins,
gleðignótt er fyrir
augliti þínu, yndi í
hægri hendi þinni
að eilífu.
Elskulegur bróðir minn og frændi okkar,
VÖLUNDUR GUÐMUNDSSON
frá Helgastöðum, Eyjafjarðarsveit,
lést á hjúkrunarheimilinu Grenilundi 12.
nóvember. Útför hans fer fram frá
Akureyrarkirkju fimmtudaginn 21.
nóvember kl. 13:30.
Daníel Guðmundsson
Jón Ólafur Daníelsson
Guðmundur Kári Daníelsson Jónína Þórunn Friðjónsdóttir
Rósa Guðrún Daníelsdóttir Guðmundur Bergur Þórðarson
og fjölskyldur
Elsku hjartans Steini minn, pabbi okkar,
tengdapabbi og afi,
STEINAR SIGURÐSSON
arkitekt,
Ljárskógum 10,
er látinn. Útför auglýst síðar.
Helga Sigurjónsdóttir
Sigurjón Árni
Þorbjörg Anna Hannes Ólafur
Una Margrét
Kristjana Björk Einar Ísfjörð