Morgunblaðið - 21.11.2019, Síða 64
64 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2019
BAKSVIÐ
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Sú ákvörðun Sænsku akademíunnar
(SA) að veita austurríska höfund-
inum Peter Handke Nóbelsverð-
launin í bókmenntum árið 2019 sætti
strax harðri gagnrýni. Fannst mörg-
um ótækt að verðlauna mann sem
gert hefði lítið úr stríðsglæpum sem
Bosníuserbar frömdu í stríðinu á
Balkanskaga 1992-95, mært Slob-
odan Miloševic og farið gagnrýnum
orðum um stríðsglæpadómstóllinn í
Haag sem réttaði yfir Miloševic og
fleirum leiðtogum Bosníuserba.
Fljótlega eftir að ákvörðunin var
tilkynnt var stofnað til undirskrifta-
söfnunar á netinu þar sem skorað
var á SA að ógilda ákvörðunina og
hafa nú þegar rúmlega 55 þúsund
manns skrifað undir. Fyrr í þessum
mánuði efndu ýmis samtök sem
berjast fyrir þolendum og vitnum að
þjóðarmorðunum í Bosníustríðinu til
friðsamlegra mótmæla fyrir framan
sænska sendiráðið í Sarajevo þar
sem ákvörðun SA var fordæmd.
Samtökin Mæður Srebrenica eru
meðal þeirra sem boðað hafa til mót-
mælaaðgerða gegn Handke í Stokk-
hólmi á Nóbelsdeginum sem haldinn
er 10. desember og þeirra sem skrif-
að hafa SA bréf þar sem þess er
krafist að SA afturkalli ákvörðunina.
„Það er augljóst að við lítum bók-
menntaverk Peters Handke ólíkum
augum,“ skrifar Anders Olsson,
fyrrverandi ritari SA, í nýlegu svar-
bréfi sínu til samtakanna sem
Sænska útvarpið (SVT) fjallaði um í
fyrradag. Í bréfi sínu tók Olsson
fram að SA væri sammála samtök-
unum um að skilgreina bæri blóð-
baðið í Srebrenica sem þjóðarmorð.
„Nóbelsnefndin segist horfa til
niðurstöðu stríðsglæpadómstólsins í
Haag, en samt velur hún að verð-
launa Handke sem afneitar niður-
stöðunni. Það er mótsagnakennd og
hræsni,“ skrifar Murat Tahirovic,
formaður samtaka sem berjast fyrir
þolendum og vitnum þjóðarmorðs-
ins, í svarbréfi til SVT.
Í bókmenntaheiminum hafa ýmsir
bent á að Handke hljóti verðlaunin
fyrir framúrskarandi ritstörf og fólk
verði að geta aðgreint bókmennta-
verkinn og höfundinn. Til útskýr-
ingar og réttlætingar á vali sínu
hafa bæði Henrik Petersen, með-
limur sérstakrar Nóbelsnefndar
sem hafði það hlutverk að velja
verðlaunahafa áranna 2018 og 2019
eftir krísuna innan SA sem hófst í
árslok 2017 (með ásökunum á hend-
ur Jean-Claude Arnault, eiginmanns
Katarinu Frostenson fyrrverandi
meðlims SA), og Eric M. Runesson,
meðlimur SA, í annars vegar
Dagens Nyheter og hins vegar
Spiegel vísað í bækurnar Der mit
seinem Jugoslawien eftir Lothar
Struck frá 2013 og Peter Handke
und „Gerechtigkeit für Serbien“
eftir Kurt Gritsch frá 2016. Báðar
bækur verja þá afstöðu Handke að
efast um grimmdarverk Bosníu-
serba og styðja þau sjónarmið
Handke að fréttaflutningur frá
Bosníustríðinu hafi verið ósanngjarn
í garð Bosníuserba.
Réttlæta valið með bókum sem
byggja á samsæriskenningum
Bandaríski blaðamaðurinn Peter
Maass og höfundur verðlaunabókar-
innar Love Thy Neighbor: A Story
of War frá 1997 um Bosníustríðið
fjallar ítarlega um val SA á Handke
og bækur Struck og Gritsch í grein
sem birtist nýverið í The Intercept.
Þar gagnrýnir hann Petersen og
Runesson harðlega fyrir að glepjast
af bókum sem byggi augljóslega á
samræmiskenningum um Bosníu-
stríðið sem eigi ekki við rök að styðj-
ast. Bendir hann á að bæði Struck
og Gritsch geri sjónarmið Jacques
Merlino sem birtist í bók hans Les
verites Yougoslaves ne sont pas
toutes bonnes a dire frá 1993 að sín-
um, en Merlino hélt því fram að
bandaríska almannatengslafyrir-
tækið Ruder Finn Global Public
Affairs hefði á tímum Bosníustríðs-
ins staðið fyrir herferð þar sem
grimmdarverk Bosníuserba voru
stórlega ýkt í því skyni að hafa áhrif
á almenningsálitið á Vesturlöndum.
Í grein sinni rekur Maas hversu
fjarstæðukennd þessi samsæris-
kenning er, sem lifi enn góðu lífi í
ýmsum öfgahópum og hjálpaði
Handke að hljóta Nóbelsverðlaunin
í bókmenntum. Maas bendir sam-
tímis á að Gritsch vísi ítrekað í bók
sinni til þýska blaðamannsins
Thomas Deichmann, sem mun vera
þekktur fyrir tilraunir sínar til að
endurskrifa söguna þegar kemur að
Bosníustríðinu og bar vitni fyrir
hönd Dusko Tadic sem dæmdur var
í 20 ára fangelsi fyrir glæpi gegn
mannkyni vegna stríðsglæpa sinna í
Omarska. Deichmann var helsti
ferðafélagi Handke til Serbíu og
Bosníu á tíunda áratug síðustu ald-
ar áður en Handke sendi frá sér
ferðabækurnar Eine winterliche
Reise zu den Flüssen Donau, Save,
Morawa und Drina oder Gerechtig-
keit für Serbien og Sommerlicher
Nachtrag zu einer winterlichen
Reise árið 1996. Að mati Maass fel-
ur val SA á Handke í sér að nær
gleymdar samsæriskenningar fái
byr undir báða vængi á ný, sem sé
bæði afturför og áhyggjuefni.
Akademían harðlega gagnrýnd
AFP
Mótmæli Mæður Srebrenica mótmæla fyrir framan sænska sendiráðið í
Sarajevo. Þær halda á mynd af Peter Handke sem mun vera tekin 1996 þeg-
ar hann heimsótti Srebrenica þar sem um 8.000 drengir og menn voru myrt-
ir í fjöldamorðum Bosníuserba á Bosníumúslimum í júlí 1995. Handke hefur
gert lítið úr stríðglæpum Bosníuserba og dáðst að Slobodan Miloševic.
»Bergmál, nýjasta
kvikmynd leikstjór-
ans Rúnars Rúnars-
sonar, var frumsýnd í
fyrr í vikunni. Í mynd-
inni eru ofnar saman 58
örsögur sem allar eiga
sér stað á aðventunni og
um jólin. Leikstjórinn
segist aldrei vita hvaða
mynd verði hans síðasta.
Bergmál Rúnars Rúnarssonar frumsýnt í Háskólabíói
Morgunblaðið/Eggert
Aðstandendur Vigfús Þormar Gunnarsson, Claudia
Hausfeld og Rúnar Rúnarsson voru að vonum spennt.
Glöð Eiríkur Stefensen, Benedikt Erlingsson og Arndís Hrönn Egilsdóttir.
Eftirvænting Lísa Kristjánsdóttir, Arnór Björnsson, Vilhelm Anton Jónsson
og Saga Sig. biðu spennt eftir að sjá nýjustu kvikmynd Rúnars Rúnarssonar.
Frumsýningargestir Ingunn Ágústsdóttir og Gunn-
hildur Kristjánsdóttir mættu á frumsýninguna.
Prúðbúnar Svanhildur Jakobs-
dóttir og Stefanía Svala Borg.
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottum fatnaði.
Fatnaður fyrir fagfólk
ICQC 2020-2022