Morgunblaðið - 21.11.2019, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2019
www.danco.is
Heildsöludreifing
Fullt af
fallegri vöru
Ný vefverslun fyrir fyrirtæki og verslanir á www.danco.is
Fyrirtæki og verslanir
ne u r ur
3 teg. 89 cm
á vegg, hvítur
18x38 cm
De
60x60x35 cm
o ur s an
Gold 28x51 cm
Dýrin í skóginum
Hvít 27 cm
Decor s rn u mond
34x43 cm
ecor s epp eopar
130x170 cm
Decoris stóll Flower Velvet
54x50x80 cm
K.
smokey 16 cm
K.
smokey 10 cm
.
smokey 12x10 cm
.
glær 12x10 cm
Spegill
3 teg.
35 cm
Jólaálfur grár
72 cm m/ljósi
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Veitingastaðurinn GOTT Reykja-
vík er þar engin undantekning og
boðið er upp á fremur snjallar út-
færslur þar. GOTT er þekktur fyrir
vandaðan mat úr úrvals hráefni þar
sem notaleg stemning og almenn
þægilegheit eru í fyrirrúmi. Að
sögn Klöru Óskarsdóttur, einn eig-
enda og veitingastjóra GOTT
Reykjavík er staðurinn mjög vin-
sæll meðal allra aldurshópa. „Fólk
er mikið að koma til okkar áður en
það fer á tónleika og leikhús og al-
mennt séð er frábær stemning á
GOTT enda maturinn góður og
þjónustan til fyrirmyndar,“ segir
Klara og hlær sínum dillandi hlátri
en flestir fastakúnnar GOTT
þekkja hana með nafni enda tekur
hún vel á móti sínu fólki. Klara á
ekki langt að sækja hæfileikana en
hún er dóttir hins rómaða veitinga-
manns, Óskars Finnssonar, sem
flestir tengja jafnan við Argentínu
steikhús. „Pabbi fylgist náið með
því sem ég geri hér og það er gott
að geta leitað til hans enda þekkja
fáir þennan bransa betur en hann.“
Spurð um jólaseðilinn segir
Klara að hann sé nokkurskonar
brot af því besta. „Gesturinn fær
fyrst forréttardiskinn sem er mjög
fjölbreyttur og þá fær maður að
smakka á svo mörgu. Svo velur þú
þér annaðhvort önd eða lax í aðal-
rétt og síðan er eftirréttarþrenna
sem ég hreinlega elska. Þar ertu
með súkkulaðimús úr hvítu súkku-
laði, panna cotta og ís. Við vorum
með svipaðan seðil í fyrra sem sló í
gegn þannig að við héldum áfram á
sömu braut en höfum gert ein-
hverjar breytingar.“
Geggjað jólagóðgæti á GOTT
Það fer að bresta á með
jólum sem þýðir að veit-
ingastaðir landsins eru
komnir í jólagírinn. Hin
hefðbundnu jólahlaðborð
eru fremur á undanhaldi
en hitt en þess í stað
njóta jólaseðlar veitinga-
húsa gríðarlegra vin-
sælda enda má þar alla
jafna finna spennandi
útfærslur af jólamat.
Sígildur sælkerabiti Lax stendur ávallt fyrir sínu enda fátt betra í maga en
góður fiskbiti. Hér er hann framreiddur á afar spennandi og hátíðlegan hátt.
Kósíheit hjá Klöru Klara Óskarsdóttir, veitingastjóri og einn eiganda stendur í brúnni en henni
til halds og trausts er Sigurður Gíslason og Lee Xingshi, yfirkokkur á GOTT Reykjavík.
Draumur á diski Á eftirréttadiskinum er að finna
þrjá dásamlega eftirrétti sem eru hver öðrum betri.
Brot af því besta Forréttardiskurinn er
fjölbreyttur og á honum er að finna flest
það sem prýða þarf góðan forréttadisk.
Spennandi kjötréttur Önd er
í uppáhaldi hjá ansi mörgum
enda frábært kjöt sem hægt
er að útfæra á spennandi hátt.