Morgunblaðið - 21.11.2019, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.11.2019, Blaðsíða 12
Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2019 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Ámannamótum ogskemmtunum hef ég alltafreynt að fá fólk til þess aðsyngja með,“ segir Ómar Þ. Ragnarsson fréttamaður. Hann verður með söngstund í Hannesar- holti við Grundarstíg í Reykjavík á sunnudag um næstu helgi, 24. nóv- ember, kl. 14. Hefð er komin á skemmtanir þar á sunnudögum yfir vetrartímann. Þær bera heitið Syngjum saman þar sem fólk mætir og tekur lagið undir forsöng tón- listarfólks. Skemmt landanum með söng og sögum Af þeim sem leitt hafa sönginn á síðustu misserum eru til dæmis Svavar Knútur, Jóhann Vilhjálmsson og Haukur Heiðar Ingólfsson með sonum sínum. Og nú er röðin komin að Ómari Ragnarssyni, sem hefur skemmt landanum með söng og sög- um í sextíu ár og er höfundur mikils fjölda söngtexta og laga sem þorri þjóðarinnar kann. Aðspurður kveðst Ómar ekki hafa tölu á þeim textum og lögum hans, sem hafa til dæmis farið á hljómplötur eða verið gefnir út með öðrum móti. „Gætu kannski verið í kringum 5-800, en ef allt er tínt til má kannski þrefalda töluna,“ segir Óm- ar, sem mun syngja með undirspili og söng af tölvu. Textunum, sem eru bæði nýir og gamlir, verður jafn- harðan varpað upp á stóran skjá. Því ætti enginn að vera rekinn á gat í textunum, sem yfirleitt eru við söng- væn lög með grípandi laglínum og ekkert mál að syngja með. Má sem dæmi nefna Óbyggðaferð, Þrjú hjól undir bílnum og La Vie en rose og Wéll Meet Again með íslenskum textum. Einnig stendur til að varpa á skjáinn tveimur myndskreyttum lögum. Vantaði texta á stundinni „Hannesarholt hlúir að innsta kjarna íslenskrar menningar: söng- hefðinni og býður upp á samsöng fyr- ir alla, unga sem aldna,“ segir á vef samkomustaðarins, sem á síðustu misserum hefur verið vettvangur margra skemmtilegra viðburða. „Það er afar misjafnt hve langan tíma það hefur tekið fyrir mig að setja saman texta,“ segir Ómar. „Allt frá 5-10 mínútum upp í áratugi. Fyrir hálfri öld samdi ég textann Fátt er svo með öllu illt, sem systkin- in Ellý og Vilhjálmur sungu. Svavar Gests, útgefandi plötunnar, hringdi í mig og sagðist vanta texta við eitt lagið á plötunni alveg á stundinni. Þetta væri eina lagið sem eftir væri að syngja. Ég hugsaði með mér: Þetta er ferlegt, en ef þetta er hægt verður tímakaupið hátt. Já fátt er svo með öllu illt að ei boði gott – og, viti menn, datt þar með óvart niður á yrkisefnið, sem tókst að klára á tíu mínútum og hefur lifað bara bæri- lega. Síðan hefur stundum tekið ára- tugi að útfæra hugmyndir að textum eins og Íslensku konunni við lag Billy Joels og Ó, þessi ár með þér við lagið Those Were the Days, en síð- arnefnda lagið verður sungið á sunnudaginn. Sum lög eru þess eðlis að það þarf sérstakar aðstæður eða stemningu til þess að textar við þau spretti allt í einu fram. “ Söngvænt og með grípandi laglínum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skemmtimaður Ómar Þ. Ragnarsson hefur glatt þjóðina með lögum, text- um og fréttum í áratugi. Stundum eru tilþrifin á sviðinu mikil. Sungið með! Ómar Ragnarsson í Hannesar- holti um næstu helgi með eigin texta og lög sem all- ir kunna. Hefur samið hundruð ef ekki þúsundir texta. Stemning og sér- stakar aðstæður. Valgerður Guðmundsdóttir fékk á dögunum Súluna, menning- arverðlaun Reykjanesbæjar, fyrir framlag sitt til menningarmála í bæn- um. Valgerður starfaði sem menning- arfulltrúi frá 2000 fram á þetta ár Verðlaunagripurinn er silfursúla eftir listakonuna Elísabetu Ásberg. Verðlaunin eru veitt þeim sem stutt hafa vel við menningarlíf sveitarfé- lagsins og var þetta í tuttugasta og þriðja sinn sem Súlan var afhent. Kjartan Már Kjartansson bæj- arstjóri afhenti verðlaunin við athöfn og þakkaði Valgerði hennar kraft- miklu og óeigingjörnu störf í þágu bæjarfélagsins sem hefðu átt stóran þátt í því að festa Reykjanesbæ í sessi sem menningarbæ meðal ann- ars með stofnun Listasafns, upp- byggingu Duushúsanna, Hljómahallar og með Ljósanótt sem Valgerður hef- ur stýrt styrkri hendi. Reykjanesbær Viðurkenning til Valgerðar Menning Aðalsteinn Ingólfsson list- fræðingur og Valgerður Guðmunds- dóttir saman á góðri stundu. Bókin sem bókmenntaelítan hafnaði árið 1994 á meira erindi en nokkru sinni á MeToo-tímum. Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2019. Heillandi og hófstillt verk þar sem hugsanir um æsku og elli vega salt. Münchhausen Íslands en líka einstaklega nákvæmur sagnaritari sem gefur okkur innsýn í fyrri tíma. Naívistinn slær hér ein- stakan tón fegurðar og tærleika. Ekki raunasaga og ekki grátsaga. Þetta er sannsaga – lífssaga. Einstakar sögur af íslensku sauðkindinni Fréttablaðið, ÓKP 31. október 2019 Við bjóðum uppá glæsilegar borgir allt árið í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt 2, 3, 4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum upp á skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki, svo og kvöldverði/veislur í höllum, köstulum eða húsum frá miðöldum. www.transatlantic.is Sími 588 8900 GLÆSILEGAR MIÐALDA BORGIR Í A-EVRÓPU Wrocalaw er ein mesta ferðamannaborg Póllands. Wroclaw var kosin menningarborg Evrópu 2016. Wroclaw hefur svo mikið uppá að bjóða. Borgin er ægifögur menningarborg með svo margt fyrir ferðamanninn sem gerir hana svona vinsæla. Gamli bærinn er augna- yndi með fagrann arkitektur frá fyrri tímum, mikið er af söfnum og menningarviðburðir í borginni hafa ætíð verið fjölbreyttir. Miðaldaborg frá 12. öld. Gamli og nýji tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er vernd- aður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu. RIGA Í LETTLANDI WROCLAW TALLINN EISTLANDI NOKKUR DÆMI UM BORGIR SEM VIÐ BJÓÐUM UPPÁ Vilnius, Budapest, Prag Gdansk, Krakow, Varsjá, Bratislava Vínarborg og Brugge Tallinn er ein allra fallegasta borg Evrópu og er gamli bæjarhlutinn sá hluti borga- rinnar sem mesta aðdráttaraflið hefur á ferðamenn. Þar eru götur steini lagðar, byggingar frá 11. öld sem hefur tekist að varðveita ótrúlega vel. Þú ferð úr 21. öldinni beint aftur í miðaldir. Þar sem Tallinn er best varðveitta miðaldaborg N-Evrópu hefur henni verið bætt við á heimslista UNESCO.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.