Morgunblaðið - 21.11.2019, Side 36

Morgunblaðið - 21.11.2019, Side 36
36 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2019 Bagdad. AFP. | Hamza, sextán ára Íraki, tók þátt í mótmælum í höfuð- borg Íraks til að krefjast betri lífs- kjara en það varð til þess að líf hans versnaði: Hann fékk gat á hrygginn og varð fyrir mænuskaða sem varð til þess að hann lamaðist á öðrum fæti. „Þetta er fórn mín fyrir Írak,“ sagði Hamza og röddin var svo veik að hún heyrðist varla. „Gæti ég gengið væri ég að mótmæla núna.“ Hamza er einn af a.m.k. 3.000 manns sem hafa örkumlast í Bag- dad og borgum í sunnanverðu land- inu frá því að götumótmæli hófust þar 1. október, að sögn samtaka fatlaðra í Írak. Fyrir var þetta stríðshrjáða land ofarlega á lista Sameinuðu þjóðanna yfir lönd þar sem hlutfall fatlaðra og lamaðra er hæst. „Læknarnir lífguðu hann við“ Alls hafa rúmlega 300 manns beð- ið bana og 15.000 særst í mótmæl- unum. Öryggissveitir hafa beitt táragasi, hvellsprengjum og skot- vopnum, jafnvel vélbyssum, til að dreifa mótmælendunum. Öll þessi vopn geta valdið dauða eða örkuml- un fyrir lífstíð, eins og Hamza fékk að reyna á eigin skinni. Hann var á meðal um tuttugu manna sem særð- ust þegar öryggissveitir hleyptu af byssum á mótmælendur í Bagdad 4. nóvember. Hamza fékk byssukúlu gegnum magann og út um bakið, þannig að stórt gat myndaðist. Hann fékk einnig tvær byssukúlur í fæturna. Þegar Hamza var kominn á ná- lægt sjúkrahús hafði hann misst mikið blóð og hjartað var að gefa sig, að sögn föður hans, Abu Layth. Faðirinn sagði að læknar hefðu endurlífgað unglinginn með stuð- tæki, dælt í hann fjórum einingum af blóði og sett hann í skurðaðgerð þegar í stað. „Hann var eiginlega dáinn. Læknarnir lífguðu hann við,“ sagði faðirinn. Samkvæmt sjúkra- skýrslum, sem byggðust m.a. á sneiðmyndum, varð unglingurinn fyrir mænuskaða sem olli lömun á hægri fæti. Eftir að hafa legið á sjúkrahúsinu í rúma viku er Hamza kominn til fjölskyldu sinnar og hann fær enn stöðugan skammt af deyfilyfjum. „Stundum æpir hann af sársauka á næturnar,“ sagði faðir hans. Muwafaq al-Khafaji, formaður samtaka fatlaðra í Írak, segir að þeim teljist til að um það bil 3.000 manns hafi örkumlast í mótmæl- unum frá 1. október og það byggist á mati samtakanna sjálfra því að yfirvöldin skrái ekki öll tilvikin eða birti ekki nákvæmar tölur. Sam- tökin fylltu upp í eyðurnar með því að afla upplýsinga frá sjúkrahúsum og fjölskyldum mótmælenda sem særðust í Bagdad og sunnanverðu landinu. Þótt Írak hafi fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hafa fatlaðir og lamaðir Írakar fengið litla heilbrigðisþjón- ustu og orðið útundan á vinnumark- aðnum og í samfélaginu. Þeir hafa skipulagt eigin mótmæli á götum Bagdad til að krefjast meiri stuðn- ings frá hinu opinbera. Heilbrigðiskerfinu hefur hnignað mjög vegna skorts á tækjum og starfsfólki. Starfsmenn sjúkrahúsa hafa ekki farið varhluta af ofsóknum vegna pólitískra skoðana eða deilna milli þjóðarbrota. Mannréttinda- hreyfingar segja að á meðal þeirra sem hafa verið handteknir í tengslum við mótmælin séu starfs- menn sjúkrahúsa, m.a. læknar sem hafa hlynnt að mótmælendum sem sjálfboðaliðar. „Verðum enn fastari fyrir“ Aukið álag á starfsfólkið hefur orðið til þess að særðir mótmæl- endur fá ekki fullnægjandi aðhlynn- ingu nógu fljótt, með þeim afleið- ingum að þeir geta fengið alvarlegar sýkingar í sár. Læknar hafa þurft að aflima mótmælendur til að bjarga lífi þeirra, að sögn Farah, nítján ára læknanema á meðal sjálf- boðaliða í stærstu búðum mótmæl- enda á Tahrir-torgi í Bagdad. Sjúkraliðar hlynna að særðum mótmælendum í sjúkratjöldum á torginu og á meðal þeirra sem hafa fengið aðhlynningu er Ali, þrítugur Íraki sem er með sáraumbúðir þar sem hægra augað ætti að vera. Hann var á nálægri brú 24. október þegar hann heyrði skothvelli og sá hundruð manna hlaupa í burtu í dauðans ofboði. Hvellsprengja sprakk við fætur hans og hann féll í yfirlið, en komst til meðvitundar á sjúkrahúsi um klukkustund síðar. Hann gat aðeins opnað annað augað vegna þess að hitt hafði orðið fyrir sprengjuflísum. „Þeir vilja hræða mótmælendur, en við verðum enn fastari fyrir,“ sagði hann. „Íraska þjóðin hefur þolað allt. Við erum fædd til að deyja.“ „Þetta er fórn mín fyrir Írak“  Talið að minnst 3.000 manns hafi örkumlast í árásum öryggissveita á mótmælendur á götum Bagdad og fleiri borga í Írak frá 1. október  Rúmlega 300 manns hafa látið lífið og 15.000 særst AFP Mannskæðar árásir Sjálfboðaliðar hlynna að mótmælanda sem særðist þegar táragashylki var skotið á mótmæl- endur í Bagdad. Talið er að a.m.k. 3.000 Írakar hafi örkumlast í árásum öryggissveita á mótmælendur í Írak. Þrjár milljónir Íraka sagðar búa við fötlun » Ekkert lát er á blóðsúthell- ingunum í Írak eftir stríð Íraka og Írana á árunum 1980-1988, innrás Bandaríkjanna og fleiri landa árið 2003 þegar ein- ræðisherranum Saddam Huss- ein var steypt af stóli og síðan stríðið gegn samtökunum Ríki íslams sem náði hluta landsins á sitt vald og lýsti yfir stofnun íslamsks ríkis árið 2014. » Hvert þessara stríða kostaði tugi þúsunda Íraka lífið og margir örkumluðust fyrir lífs- tíð. » Hagstofa Íraks segir að tvær milljónir af 40 milljónum íbúa landsins eigi rétt á aðstoð frá ríkinu vegna fötlunar. Samtök lamaðra og fatlaðra Íraka og mannréttindahreyfingar telja hins vegar að rúmlega þrjár milljónir Íraka búi við fötlun og þeim haldi áfram að fjölga vegna árás öryggissveita á mótmælendur. Washington. AFP. | Gordon Sond- land, sendiherra Bandaríkjanna hjá Evrópusambandinu, sagðist í gær hafa farið að fyrirmælum Donalds Trumps Bandaríkjaforseta með því að óska eftir „quid pro quo“, eða endurgjaldi, frá Úkraínumönnum. Hann kvaðst hafa talið að forsetinn hefði verið að knýja Úkraínumenn til að hefja rannsókn á pólitískum and- stæðingi Trumps, Joe Biden. „Við fórum að fyrirmælum forset- ans,“ sagði Sondland í yfirlýsingu sem hann las áður en hann svaraði spurningum leyniþjónustunefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings sem rannsakar meint embættisbrot for- setans með það fyrir augum að ákæra hann til embættismissis. Fjölmiðlar og þingmenn fylgdust grannt með vitnisburði Sondlands, einkum vegna þess að hann var á meðal bandamanna Trumps. Hann sagði að forsetinn hefði knúið stjórnarerindreka til að vinna með Rudy Giuliani, einkalögfræðingi Trumps, sem beitti sér fyrir því að Úkraínumenn hæfu rannsóknir á Bi- den og vefengdri samsæriskenningu um að Úkraínumenn hefðu sett vís- bendingar í netþjón demókrata- flokksins til að sanna að Rússar hefðu haft afskipti af forsetakosn- ingunum í Bandaríkjunum 2016. Sondland sagði að með beiðninni um rannsóknirnar hefði Giuliani óskað eftir endurgjaldi fyrir heimsókn for- seta Úkraínu í Hvíta húsið í Wash- ington. Hann kvaðst aldrei hafa fengið skýrt svar við því hvers vegna stjórn Trumps frestaði fjárhagsað- stoð sem þingið hafði samþykkt að veita Úkraínu vegna hernaðar Rússa. Hann kvaðst því hafa dregið þá ályktun að frestun aðstoðarinnar tengdist einnig beiðninni um rann- sóknirnar. Hlýddi skipun- um Trumps AFP Rannsókn Gordon Sondland sendi- herra kom fyrir þingnefnd í gær.  Óskaði eftir endurgjaldi frá Úkraínumönnum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.