Morgunblaðið - 21.11.2019, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2019
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Það getur verið dýru verði keypt
fyrir smáríki að gera bindandi samn-
inga við stærri ríki eða alþjóðastofn-
anir sem eiga að veita því skjól.
Reynsla Eystrasaltsríkjanna er víti
til varnaðar en ríkin guldu dýru verði
að hafa ekki sjálfstæði í peninga-
málum og ríkisfjármálum í fjármála-
kreppunni 2008.
Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor
í hagfræði og alþjóðaviðskiptum við
viðskipta- og
raunvísindasvið
Háskólans á
Akureyri, er þess-
arar skoðunar
eftir að hafa rann-
sakað alþjóðamál
í um aldarfjórð-
ung. Tilefnið er
viðtal Morgun-
blaðsins við Bald-
ur Þórhallsson,
prófessor í
stjórnmálafræði við Háskóla Íslands,
14. nóvember sl. en hann færði rök
fyrir þeirri kenningu sinni að smærri
samfélög þurfi pólitískt, efnahagslegt
og samfélagslegt skjól stærri ríkja og
alþjóðastofnana. Eftir hrunið hafi Ís-
land víða leitað skjóls en verið ein-
angrað og borið á örvæntingu.
Skjólskenningin hæpin
Hilmar Þór telur skjólskenninguna
– þá hugmynd að smáríki eigi að gera
samninga við alþjóðastofnanir eða
stærra ríki sem veita skjól – vera að
mörgu leyti hæpna. Stórveldi eigi
enga vini, hafi aðeins hagsmuni.
„Við vitum ekki fyrir fram hvenær
við lendum sem þjóð í áfalli og hvers
eðlis það verður. Ef það verður hags-
munaárekstur milli landsins sem
þiggur skjól og landsins sem veitir
skjól getur komið upp hættuleg staða
fyrir þiggjandann,“ segir Hilmar Þór
og vísar til biturrar reynslu Eystra-
saltsríkjanna.
Hann starfaði hjá Alþjóðabank-
anum í Washington að málefnum
Afríku um fimm ára skeið. Síðan
starfaði hann í fjögur ár hjá bank-
anum í Eystrasaltsríkjunum, 1999 til
2003, og svo í þrjú ár í Hanoi í Víet-
nam. Á þessu tímabili kynnti hann
sér hagkerfi ríkjanna.
Eistland, Lettland og Litháen
gengu í Evrópusambandið árið 2004.
Eistar tóku upp evru 2011, Lettar
2014 og Litháar 2015.
Hilmar Þór rifjar upp að samhliða
ESB-aðild hafi ríkin þrjú stefnt að
upptöku evrunnar. Evran hafi ekki
aðeins verið tekin upp vegna efna-
hagssjónarmiða, heldur hafi öryggis-
sjónarmið haft sitt að segja. Ríkin
hafi enda litið svo á að aðild að mynt-
bandalaginu styrkti stöðu þeirra í ná-
býli við stórveldið Rússland. Það yrði
enda síður ráðist á ríki sem tilheyrði
slíku myntbandalagi.
Hilmar Þór segir þessa stefnu hafa
haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir rík-
in þrjú þegar alþjóðafjármálakrepp-
an skall á haustið 2008. Þau hafi
þannig orðið að lúta ströngum skil-
málum í ríkisfjármálum sem tóku
ekki mið af hagsveiflunni. Þau hafi
þurft að halda gengi gjaldmiðla sinna
föstu til að geta síðar tekið upp evru.
Það hafi aftur valdið óánægju meðal
þegnanna og leitt til mikils brott-
flutnings frá ríkjunum, einkum
yngsta og best menntaða fólksins.
Þetta fólk hafi frekar kosið að flýja en
mótmæla.
Gátu ekki örvað útflutninginn
Í fyrsta lagi hafi Eistar orðið fyrir
vonbrigðum þegar Evrópusambandið
neitaði að sýna sveigjanleika í ríkis-
fjármálunum. Eistar hafi ekki getað
fellt gengið til að örva útflutning í
niðursveiflunni, heldur verið bundnir
af fastgengisstefnu, vegna skilyrða
um upptöku evrunnar. Þessi óánægja
hafi birst í gögnum sem lekið var.
Þau bendi til að Eistar hafi verið und-
ir þrýstingi frá Svíum, sem áttu stór-
an hluta bankakerfisins í landinu, um
að grípa ekki til gengisfellingar. Því
hafi verið hótað að ef Eistland viki frá
Maastricht-reglum yrðu möguleikar
þeirra á upptöku úr sögunni.
Í öðru lagi hafi Lettar einnig tekið
á sig mikinn niðurskurð til að geta
síðar uppfyllt skilyrði evrunnar.
Valdis Dombrovskis, þáverandi for-
sætisráðherra, hafi leitt Lettland inn
í harkalegan niðurskurð. Eftir að
hann lét af embætti hafi hann farið
með málefni evrusvæðisins í fram-
kvæmdastjórn ESB. „Menn fá verð-
laun ef þeir standa sig vel fyrir
Evrópusambandið þótt þeir svíki sína
eigin þjóð,“ segir Hilmar Þór.
„Dombrovskis kvartaði undan því
að Anders Borg hefði verið harður í
horn að taka gagnvart Lettlandi sem
fjármálaráðherra Svíþjóðar. Seðla-
bankastjóri Lettlands flutti 12. júlí sl.
erindi á ráðstefnu hjá Seðlabanka Ís-
lands. Það kom skýrt fram í erindinu
að hann hafði fyrst og fremst áhyggj-
ur af bönkunum í Lettlandi, að það
hefði ekki mátt fella gengið því svo
margir bankar færu á hausinn. Þetta
voru fyrst og fremst erlendir bankar,
flestir frá Svíþjóð.
Hann sýndi engar tölur um hvaða
áhrif þetta hafði á menntakerfið eða
heilbrigðiskerfið eða tölur um hvað
þeir hefðu misst gríðarlega margt
fólk úr landi. Hann fjallaði aðallega
um bankana og það var ljóst að þeir
voru honum efst í huga.“
Höfðu takmarkaða möguleika
Í þriðja lagi hafi Litháen haft tak-
markaða möguleika til að bregðast
við fjármálakreppunni. Landið hafi
ekki sóst eftir láni hjá Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum eins og Lettland gerði,
heldur leitað á dýran alþjóðlegan
lánamarkað. Svíar hafi átt marga
bankana í Litháen.
Samandregið hafi Eystrasaltsríkin
þrjú þurft að aðlaga ríkisfjármálin að
kröfum evrusamstarfsins um aðhald
og fastgengisstefnu.
„Eystrasaltsríkin kusu um ESB-
aðild en ekki um evruna. Það er ljóst
að hagsmunir þjóðanna voru fyrir
borð bornir. Almenningur var ekki
spurður álits. Afleiðingin var skelfi-
leg. Þegar löndin þrjú urðu sjálfstæð
í kjölfar falls Sovétríkjanna voru íbú-
arnir alls um 8 milljónir, eða álíka
margir og íbúar Svíþjóðar. Nú búa
aðeins um 6 milljónir manna í ríkj-
unum þremur en 10 milljónir í Sví-
þjóð. Það má því nota orðið fólks-
flótti. Þetta er dæmi um hvað skjól
getur verið dýru verði keypt fyrir
smáþjóðir sem mega sín lítils. Það
varð hins vegar ekki fólksflótti í Pól-
landi. Þar bjuggu 38 milljónir manna
þegar Sovétríkin hrundu eða álíka
margir og í dag. Pólverjar hafa sinn
eigin gjaldmiðil og sveigjanlega pen-
ingamálastefnu. Ef íbúafjöldinn í
Eystrasaltslöndunum fer niður fyrir
viss mörk fer það að verða hættulegt
fyrir samfélögin. Sum svæði í þessum
ríkjum eru orðin mannlaus. Eystra-
saltsríkin hefðu að minnsta kosti átt
að fá að lækka gengi gjaldmiðla sinna
til að styrkja samkeppnishæfni sína
og örva hagkerfi sín áður en þau tóku
upp evru, eins og Alþjóðagjaldeyris-
sjóðurinn lagði til í Lettlandi, en
sveigjanleikinn í Brussel og Stokk-
hólmi var enginn.“
Felldu sjálfir gengið
Hann rifjar svo upp að árið 1992
hafi Finnland og Svíþjóð lent í djúpri
efnahagslægð. Svíar hafi brugðist við
henni með því að fella gengið um 30%
til að örva útflutning. Þegar það hent-
aði hagsmunum Svía hafi þeir hins
vegar lagst gegn gengisfellingu í
Eystrasaltsríkjunum eftir fjár-
málakreppuna haustið 2008.
Þá megi rifja upp að Þjóðverjar og
Frakkar, ráðandi ríkin í ESB, hafi á
10. áratugnum breytt reglum um
fjárlagahalla vegna upptöku evru til
að þjóna eigin hagsmunum.
Hilmar Þór segir Ísland hafa verið
á margan hátt einangrað eftir efna-
hagshrunið 2008. Hins vegar hafi
landið notið þess að hafa gjaldmiðil
sem lagaði sig að nýjum efnahags-
legum veruleika. Það hafi átt sinn
þátt í að reisa við landið í gegnum út-
flutning á vörum og þjónustu, ekki
síst í ferðaþjónustu. Ísland hafi rekið
ríkissjóð með meiri halla en ESB
hefði leyft en þessi halli hafi verið
nauðsynlegur til að verja velferðar-
kerfið í landinu. Íslendingar hefðu
aldrei sætt sig við niðurskurðinn í
Eystrasaltsríkjunum.
Hvað varðar þá greiningu Baldurs
Þórhallssonar að Ísland geti þurft að
velja milli Kína og Bandaríkjanna
segist Hilmar Þór þessu ósammála.
Þvert á vilja Bandaríkjanna
Á síðustu árum hafi Ísland m.a.
gerst stofnaðili að Fjárfestingar-
banka Asíu í innviðum, þvert á vilja
Bandaríkjanna. Eftir fjármála-
kreppuna hafi Bandaríkin gert gjald-
miðlasamninga við öll Norðurlöndin
sem eftir því leituðu nema Ísland.
„Það skiptir miklu máli fyrir Ísland
að eiga góð samskipti við öll stór-
veldin, þ.á m. Evrópusambandið og
nágrannaríki, en ég tel óskynsamlegt
að gera til dæmis bindandi samninga
í efnahagsmálum. Það geta orðið
hagsmunaárekstrar en við sáum í
Icesave-málinu hvernig Bretar og
Hollendingar höguðu sér gagnvart
okkur. Það er heppilegt fyrir smá-
þjóðir að geta leitað til mismunandi
aðila eftir því hvernig ástandið er
hverju sinni. Ísland var ekki í neinu
skjóli 2008 en það reyndist okkur vel.
Við höfðum frjálsari hendur og meiri
sveigjanleika. Neyðarlögin voru t.d.
samþykkt án samráðs við nokkurt
ríki. Það getur verið betra að hafa
frjálsar hendur en að vera bundinn.“
Skjólið getur verið dýrkeypt
Prófessor gagnrýnir skjólskenningu Baldurs Þórhallssonar ESB hafi beitt smáríki hörðu
Hilmar Þór
Hilmarsson
Morgunblaðið/Ómar
Í Tallinn Alþjóðlega fjármálakreppan 2008 lék Eistlendinga grátt.
við Fellsmúla | 108 Reykjavík | OPIÐ ALLA DAGA
GÓLFLAMPI MEÐ LESLJÓSI
Litir: króm, svart króm,bustað stál og antík
GÓLFLAMPAR
19.995kr.
Jón Gestur Ármannsson bæklunarskósmiður
Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður
533 1314 / 533 1516 / jon@stodtaekni.is
öngugreining,
úkraskósmíði,
óbreytingar, sérsmíði
og innleggjaráðgjöf
G
sj
sk
- Við erum hér til að aðstoða þig! -