Fréttablaðið - 06.12.2002, Side 2

Fréttablaðið - 06.12.2002, Side 2
2 6. desember 2002 FÖSTUDAGUR Sigurður Helgason er sviðsstjóri umferðaröryggis- sviðs Umferðarstofu. Sturla Böðvarsson sagði á Al- þingi að ekki væri neyð í umferðinni í Reykjavík. Það hefur verið gert mikið í umferðar- málum á síðustu tíu árum. Hins vegar er alltaf spurning um hvort forgangsröðun verkefna sé rétt eða ekki. Því verður hver að svara fyrir sig. Mislæg gatnamót hafa greitt fyrir umferð. Það má samt ekki alltaf hamra á að hlutirnir séu ekki í lagi. En það má gera meira. SPURNING DAGSINS Er neyð í umferðinni í Reykjavík? A B X / S ÍA 9 0 2 1 6 8 6 Áhyggjudúkkur Steinar Bragi Björn Þór Vilhjálmsson, Morgunblaðið LANDSVIRKJUN „Auðvitað finnst manni lakara að aðilar sem sóttu um þátttöku í verkinu og voru valdir til þess fyrir tæpu ári skuli heltast úr lestinni svona nálægt opnun tilboða. Þetta er slæmt fyrir okkur en sýnu lakara fyrir samstarfsaðila viðkomandi, sem eftir sem áður standa við þátt- töku sína,“ sagði Friðrik Sophus- son, forstjóri Landsvirkjunar. Verktakafyrirtækið NCC International AS hefur tilkynnt Landsvirkjun að það muni ekki taka þátt í útboði á gerð stíflu og aðrennslisganga við Kárahnjúka- virkjun. Þetta er þriðji verktak- inn sem heltist úr lestinni en áður hafa Skanska AS og Veidekke ASA dregið sig út. „Eðli málsins samkvæmt er betra að tilboðin séu mörg, það ætti að gefa okkur hagstæðara verð,“ sagði Friðrik. Forstjóri NCC segir í bréfi til Landsvirkjunar að vegna áhætt- unnar af framkvæmdinni geti fyrirtækið ekki haldið áfram. Forstjórinn harmar að þessi ákvörðun, sem tekin hafi verið eftir vandlega íhugun, sé tilkynnt svo skömmu fyrir opnun tilboða og vonar að hún hafi ekki nei- kvæð áhrif á Landsvirkjun og framhald virkjanaframkvæmda. „Ég hef ekki ástæðu til þess nú að ætla að svo verði,“ sagði Friðrik Sophusson. Tilboð í stíflugerð og borun aðrennslisganga verða opnuð í dag. Þetta er eitthvert stærsta útboð sem fram hefur farið hér en kostnaður við þessa verk- þætti er áætlaður um 40 millj- arðar króna. ■ Þriðji verktakinn hættir við Kárahnjúkatilboð: Telur verkið of áhættusamt FRIÐRIK SOPHUSSON Segir lakara að menn heltist úr lestinni svo nálægt opnun tilboða í verkþættina. Von- ast til að brottfall verktakanna hafi hvorki neikvæð áhrif á Landsvirkjun né virkjana- framkvæmdir. ÓVEÐUR Mikill veðurofsi gekk yfir landið í gærdag. Á höfuðborgar- svæðinu náði veðrið hámarki um h á d e g i s b i l i ð . Hvassast varð á suðvesturhorninu og á Snæfellsnesi. Vindhraði fór upp í 33 metra á sekúndu á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli varð vindhraði 42 metrar á sek- úndu í verstu hviðunum. Aftaní- vagn fauk á hliðina og tafði fyrir umferð á þjóðveginum. Fyrsta útkall Björgunarsveit- ar Landsbjargar barst rúmlega ellefu þegar þakplötur byrjuðu að fjúka af húsi í Hafnarfirði. Klukkan 13 var búið að kalla út björgunarsveitir af öllu höfuð- borgarsvæðinu, Akranesi, Grund- arfirði og Stykkishólmi. Þrjátíu og þrír björgunarsveitarmenn voru á störfum á höfuðborgar- svæðinu í sex hópum. Meðal verkefna var að hefta þakkanta, gera við rúður sem höfðu sprung- ið og hefta fok á vinnuskúrum og grásleppuskúrum við Ægisíðu auk þess að koma böndum á rus- lagáma. Tugir björgunar- og borg- arstarfsmanna unnu við að fergja þakplötur Vesturbæjarlaugarinn- ar. Ólafur Gunnarsson, forstöðu- maður laugarinnar, sagðist hafa lýst yfir neyðarástandi um hádeg- isbilið þegar plötur fóru að rúll- ast upp. Komist hefði verið hjá tjóni en ekki hefði mátt tæpara standa. Á Grundarfirði fengust þær upplýsingar hjá lögreglu að þak- plötur hefðu fokið. Þá hefði mal- bik flettst af veginum við brúnna í Hraunsfirði. Foreldrar urðu víða að sækja börn sín í skólana. Víða var varla stætt. Við Rimaskóla í Grafarvogi var rútu lagt við dyr skólans til að reyna að fá skjól frá rokinu. Innanlandsflug lá niðri um tíma í Reykjavík vegna veðurofs- ans. Flugleiðavél sem var á leið frá Glasgow gat ekki lent á Kefla- víkurflugvelli. Eftir að hafa reynt lendingu á Akureyri var vélinni snúið til baka. Það sama var um vél sem kom frá Frankfurt. Veðrið byrjaði að ganga niður á höfuðborgarsvæðinu um tvöleytið. Með kvöldinu var veðr- ið víðast hvar að mestu gengið niður. kolbrun@frettabladid.is Fjöldi manns varði eignir Veðurofsinn í gær olli víðast hvar vandræðum. Þrjátíu og þrír björgun- arsveitarmenn voru kallaðir út á höfuðborgarsvæðinu. Á Grundarfirði flettist malbik af vegum. UNNIÐ Á ÞAKI VESTURBÆJARLAUGAR Þakið á Vesturbæjarlauginni er ekki lagt bárujárni heldur plötum sem læstar eru saman á endum. Ólafur Gunnarson forstöðumaður sagði íbúa vestan- og norðanmegin laugarinnar hafa verið beðna um að halda sig frá gluggum hefðu plötur losnað. Ákveðið var að hafa Vesturbæjarlaugina lokaða í gær. Frá hádegi og fram eftir degi var óskað allt að 30 sinnum eftir aðstoð. GAMLIR ANDSTÆÐINGAR Ranil Wickremesinghe forsætisráðherra og Chandrika Kumaratunga forseti. Sri Lanka: Samkomu- lag í sjónmáli ÓSLÓ, AP Ríkisstjórnin á Sri Lanka og leiðtogar uppreisnarmanna hafa komið sér saman um það í Ósló að stofna sambandsríki á eyj- unni. Uppreisnarmennirnir hafa barist fyrir sjálfstæðu ríki tamíla á norður- og austurhluta eyjunnar frá því 1983. Þeir hafa nú fallið frá kröfu um sjálfstætt ríki og sætta sig við sjálfstjórnarríki, sem væri í ríkjasambandi við ríki sinhalesa á eyjunni. ■ AP/M YN D FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T BYGGÐAKVÓTI „Þetta er langt í frá það auðveldasta sem komið hefur á okkar borð hér í ráðuneytinu en við teljum að við höfum komið okkur niður á nokkuð sanngjarna leið,“ segir Árni M. Mathiesen sjávarút- vegsráðherra, en hann hefur í sam- ráði við Byggðastofnun ákveðið skiptingu byggðakvóta milli land- svæða. Um er að ræða 2.000 tonn af óslægðum botnfiski í þorskígildum talið, 1.500 tonn fyrir gildandi fisk- veiðiár og 500 tonn frá fyrra ári sem ekki tókst að úthluta. Alþingi á þó enn eftir að samþykkja tilfærslu 500 tonnanna. Kvótinn er ætlaður til stuðnings byggðalögum sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Þetta er í fyrsta sinn sem ráðherra úthlutar byggðakvóta og fá byggðir við Húnaflóa og nyrðri hluti Vestfjarða stærsta hlutdeild í kvótanum, eða samtals rúmlega 31%. „Það er ekki þar með sagt að búið sé að leysa öll vandamál en vonandi dugir þetta til að ná til sem flestra byggða sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í grein- inni. Það er lögð mikil áhersla á að umsóknir um byggðakvóta verði rökstuddar og geta jafnt einstak- lingar, fyrirtæki og sveitarfélög sótt um. Þá er enn fremur lögð áhersla á að menn hafi samstarf um nýtingu kvótans þannig að hann nýtist viðkomandi svæði sem best, bæði hvað varðar veiðar og vinnslu,“ sagði Árni Mathiesen. Af 2.000 þorskígildum sem verða til ráðstöfunar eru 1.552 tonn af óslægðum þorski, 477 tonn af óslægðri ýsu, 321 tonn af óslægðum ufsa og 138 tonn af óslægðum stein- bít. Umsóknarfrestur um byggða- kvóta er til 16. desember. ■ Skipting 2.000 tonna byggðakvóta: Stærstur hluti til Vest- fjarða og í Húnaflóa Tálknafjörður: Góður brunabíll BRUNAVARNIR Þau tíðindi urðu á Tálknafirði að nýr brunabíl var af- hentur og þykir af honum mikið öryggi, enda góður bíll af Ford- gerð, F550. Leysir hann gamlan Bedford af hólmi sem kominn var til ára sinna, orðinn 31 árs. Nýi bíllinn var yfirbyggður á Ólafs- firði en þar hafa menn sérhæft sig í slíkum verkum og skapað sér sérstöðu. Ford-brunabíllinn er með drifi á öllum hjólum og 300 hestafla vél. Í honum er tvö þúsund lítra vatns- tankur og háþrýstidæla sem getur dælt 2.700 lítrum á mínútu. Þá er í bílnum reykköfunarbúnaður. Var honum fagnað á vígsludaginn. ■ Fjármálaráðherra: Rangt hjá Ingibjörgu STJÓRNMÁL „Þetta er beinlínis rangt sem kemur fram hjá borg- arstjóra,“ segir Geir H. Haarde um ummæli Ingibjargar Sólrún- ar Gísladóttur þess efnis að álíka afgangur verði af rekstri borgarsjóðs á næsta ári og halli af rekstri ríkissjóðs. Geir segir þetta fráleitt. Eng- inn halli verði af rekstri ríkis- sjóðs. Borgarstjóri segir 4,4 milljarða afgang frá rekstri til að greiða niður skuldir eða fjár- festa. Fjármálaráðherra segir að sambærileg tala væri tólf millj- arðar í plús hjá ríkissjóði ef sömu útreikningar væru notaðir. „Það er undarlegt ef fólk þarf að grípa til svona rangfærslna til að verja sinn eigin málstað.“ ■ SKIPTING 2.000 TONNA BYGGÐAKVÓTANS Landsvæði Hlutfall í % Suðurland og Suðvesturland 11,02% Vesturland frá Akranesi til Snæfellsness 3,94% Syðri hluti Vestfjarða; Vesturbyggð og Tálknafjörður 6,30% Nyrðri hluti Vestfjarða; Ísafjarðarbær, Bolungarvík og Súðavík 15,26% Byggðir við Húnaflóa 16,54% Byggðir við Skagafjörð og Siglufjörð 2,46% Byggðir við Eyjafjörð og Grímsey 10,14% Byggðir við Skjálfanda og Öxarfjörð 5,31% Norðausturland frá Raufarhöfn til Borgarfjarðar 10,43% Miðfirðir Austurlands frá Seyðisfirði til Fjarðarbyggðar 7,38% Suðurfirðir Austurlands til Hornafjarðar 9,15% Vestmannaeyjar 2,07% Fjáraukalög: 1,7 milljarða afgangur í ár ALÞINGI 1,7 milljarða króna afgang- ur verður af reglulegum rekstri ríkissjóðs í ár samkvæmt auka- fjárlögum sem gengið var frá í gær. Séu tekjur af eignasölu teknar með í reikninginn er afgangurinn 16,9 milljarðar króna. Stjórnarandstæðingar gagn- rýndu hvernig staðið hefði verið að aukningu útgjalda á fjáraukalög- um. Stærstur hluti útgjaldaliða væri ekki ófyrirsjáanlegur og brýnn og ætti því heima á fjárlög- um en ekki fjáraukalögum. For- maður fjárlaganefndar sagði nefndarmeirihlutann sammála því að um brýnar aðgerðir væri að ræða sem hefði þurft að ráðast í. ■ GEIR H. HAARDE Segir ummæli borgarstjóra í Fréttablaðinu í gær vera röng.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.