Fréttablaðið - 06.12.2002, Page 25

Fréttablaðið - 06.12.2002, Page 25
25FÖSTUDAGUR 6. desember 2002 JÓLAMATURINN MINN Samúel Örn Erlingsson: Öðruvísi jólamatur Jólamaturinn á mínu heimili erlambalæri, sem er kannski öðruvísi en gengur og gerist,“ segir Samúel Örn Erlingsson, íþróttafréttamaður. „Við hjónin ólumst upp við mismunandi jóla- mat, ég við veislumat til sveita, hangikjöt og þess háttar, en konan mín við hamborgarhrygg.“ Samúel Örn segir að hjónin hafi prófað smekk þeirra og barnanna áfram þar til þau enduðu á lamba- lærinu. Þau nota mismundandi uppskriftir í hvert sinn, svo sem engifer- eða hvítlaukskryddað. Síðustu ár hafa þau látið lambið liggja í jurtakryddi en nota þó mismunandi sósur í hvert sinn. „Við prófuðum norska sósu í fyrra en við fengum uppskriftina hjá vinkonu okkar sem er ættuð þaðan. Hún heppnaðist mjög vel og ég býst við að við notum hana aftur í ár,“ segir Samúel Örn. Hann segir alla fjölskyldumeð- limi taka virkan þátt í matargerð- inni. Yngri dóttirin er lipur við sósugerðina en sú eldri með grænmetið. „Það er oft þannig að húsbóndinn getur setið með hend- ur í skauti og stjórnað,“ segir íþróttafréttamaðurinn hlæjandi. Samúel Örn og fjölskylda bjóða nánustu ættingjum á höfuð- borgarsvæðinu í möndlugraut í hádeginu. „Það eru allir á hlaup- um þennan dag svo þetta er kjör- ið tækifæri til að vera saman í stutta stund,“ segir Samúel Örn. Möndlurnar í grautnum eru tvær, ein fyrir börnin og ein fyrir full- orðna. Sú venja hefur skapast að vinningshafar síðasta árs mæta með nýjar möndlugjafir. „Þetta er mjög gott fyrir börnin enda er eftirvæntingin mikil fyrir kvöld- ið,“ útskýrir Samúel Örn. „Áður fyrr leyfðum við stelpunum okk- ar að opna einn pakka fyrir mat og svo á milli rétta. Annars hefði borðhaldið ekki getað gengið. Þetta slær því svolítið á eftir- væntinguna enda er mikið um börn í báðum ættum.“ ■ SAMÚEL ÖRN ERLINGSSON Hefur haft lambalæri á aðfangadag síðustu ár. Hann býður nánustu ættingjum í möndlu- graut í hádeginu þann dag. JÓL Á CHAMPS-ELYSEES Það er víðar skreytt en í miðbæ Reykjavíkur. Til dæmis munu vera 135 þúsund perur á leiðinni frá Concord-torgi að Sigurboganum í París. M YN D /AP

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.