Fréttablaðið - 06.12.2002, Síða 32
FUNDIR
09.00 Heilsuefling í skólum heldur
ráðstefnu á vegum menntamála-
ráðuneytis, heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytis og Landlækn-
isembættis í Borgartúni 6, Reykja-
vík.
TÓNLEIKAR
17.00 Hljómsveitin Spaðar heldur kynn-
ingartónleika í verslun 12 Tóna af
tilefni útgáfu plötunnar Skipt um
peru.
LEIKHÚS
20.00 Halti Billi er sýndur á Stóra sviði
Þjóðleikhússins. Örfá sæti laus.
20.00 Veislan er sýnd á Smíðaverkstæði
Þjóðleikhússins. Örfá sæti laus.
20.00 Sölumaður deyr er sýndur á
Stóra sviði Borgarleikhússins.
21.00 Beyglur með öllu eru sýndar í
Iðnó. Uppselt.
21.00 Sellófon er sýnt í Hafnarfjarðar-
leikhúsinu. Uppselt.
21.00 Kvetch er sýnt í Vesturporti. Örfá
sæti laus.
TÓNLIST
23.00 Hljómsveitin Cadillac spilar fyrir
dansi á Kringlukránni.
Dj Þormar og Diabolics halda upp fjör-
inu á 22. Aðgangseyrir kvöldsins rennur
óskiptur til aðstandendra langveikra
barna.
Valíum spilar á Ara í Ögri.
Spútnik spilar í Pakkhúsinu á Selfossi.
SSSól spilar á Players Kópavogi.
SÝNINGAR
Sigríður Gísladóttir, stórgöldrótt mynd-
listarkona, sýnir Vörður í Salnum #39,
nýju galleríi við Hverfisgötu 39. Sýning-
in stendur til 12. desember.
Sýningin Heimkoman eða: heimurinn
samkvæmt ART stendur yfir í Lista-
safni Reykjavíkur - Kjarvalsstöðum.
Sýningin samanstendur af málverkum
og ljósmyndum danska myndlistar-
mannsins Martin Bigum frá árunum
1997-2002.
Sýning á jólamyndum teiknarans Brian
Pilkington stendur yfir í Kaffistofu
Hafnarborgar. Sýningin er opin alla
daga og lýkur 22. desember.
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir sýnir
smámyndir og skúlptúra sem unnin eru
í anda jólanna í Kompunni, Kaup-
vangsstræti 23, Listagili. Sýningin
stendur til 23. desember og er opin
alla daga frá klukkan 14 til 18.
Í Hafnarborg stendur yfir sýningin
“Sambönd Íslands“, alþjóðleg sýning
með þátttöku erlendra listamanna sem
hafa heimsótt Ísland og íslenskra lista-
manna búsettra erlendis.
Samsýning Bryndísar Jónsdóttur, Ásu
Ólafsdóttur, Kristínar Geirsdóttur,
Magdalenu Margrétar Kjartansdóttur
og Þorgerðar Sigurðardóttur, Samspil,
stendur yfir í Hafnarborg. Sýningin er
opin alla daga nema þriðjudaga frá kl.
11 til 17 og henni lýkur 22. desember.
Sigrún Einarsdóttir og Sören Larsen í
Gleri í Bergvík sýna nýjar glæsilegar
gerðir af glösum af ýmsu tagi í Galleríi
Fold. Glösin nefnast ARTIKA og eru af
níu mismunandi gerðum. Gallerí Fold
er opið daglega frá 10 til 18, laugar-
daga frá 10 til 17 og sunnudaga frá 14
til 17. Sýningunni lýkur 6. desember.
Skúlptúrsýning nemenda Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti stendur yfir í
Gerðubergi dagana 28. nóvember til 8.
desember. Opið virka daga frá kl. 11 til
19 og um helgar frá kl. 13 til 17.
Lína Rut Wilberg sýnir olíumálverk á
Café Presto, Hlíðarsmára 15, Kópavogi.
Opið 10-23 virka daga og 12-18 um
helgar.
Sýningin Þetta vilja börnin sjá er hald-
in í Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi. Sýndar verða myndskreytingar úr
nýútkomnum barnabókum. Sýningunni
lýkur 6. janúar 2003.
Hildur Margrétardóttir myndlistarkona
sýnir nokkur óhlutbundin málverk á
Mokka-kaffi. Sýningin stendur til 15.
janúar.
Sýningin Milli goðsagnar og veruleika
er í Listasafni Reykjavíkur. Sýningin
kemur frá Ríkislistasafni Jórdaníu í
Amman og er ætlað að varpa ljósi á
heim araba.
Sýning á nokkrum verkum Guðmundar
Hannessonar ljósmyndara stendur
yfir í Gallerí Fold. Sýningin nefnist
Reykjavíkurminningar en myndirnar
tók Guðmundur um miðja síðustu öld í
Reykjavík.
Inga Svala Þórsdóttir sýnir Borg í
Listasafni Reykjavíkur. Inga Svala fjall-
ar um og endurvekur draumsýnina um
hið fullkomna samfélag. Hún leggur
fram hugmynd að milljón manna borg-
arskipulagi í Borgarfirði og á norðan-
verðu Snæfellsnesi.
Hrafnhildur Arnardóttir sýnir „Shrine
of my Vanity“ sem útleggst á íslensku
„Helgidómur hégóma míns“ í Gallerí
Hlemmi. Leiðarstef sýningarinnar er hið
svokallaða IVD (intensive vanity dis-
order) eða hégómaröskun en það heil-
kenni verður æ algengara meðal þeirra
sem temja sér lífsstíl Vesturlandabúa.
Myndlistarmaðurinn Hildur Ásgeirs-
dóttir Jónsson sýnir í Galleríi Sævars
Karls.
Kyrr birta - heilög birta er heitið á
sýningu sem stendur yfir í Listasafni
Kópavogs. Sýningarstjóri er Guðbergur
Bergsson.
Stærsta sýning á íslenskri samtíma-
list stendur yfir í Listasafni Íslands.
Sýnd eru verk eftir um 50 listamenn
sem fæddir eru eftir 1950 og spannar
sýningin árin 1980-2000.
Sýningin Hraun - ís - skógur er í Lista-
safni Akureyrar. Sýningin er opin alla
daga milli 12 og 17. Henni lýkur 15.
desember.
Veiðimenn í útnorðri er yfirskrift á sýn-
ingu sem Edward Fuglö heldur í Nor-
ræna húsinu.
Jóhanna Ólafsdóttir og Spiros
Misokilis sýna ljósmyndir sínar á Kaffi
Mokka. Sýningin heitir „Orbital Reflect-
ions“. Allir eru velkomnir.
Flökt - Ambulatory - Wandelgang er
samsýning Magnúsar Pálssonar, Erics
Andersens og Wolfgangs Müllers í
Nýlistasafninu.
Ágústa Oddsdóttir sýnir í gluggum
Vatnsstígs 10.
Sýningin Handritin stendur yfir í Þjóð-
menningarhúsinu. Sýningin er á veg-
um Stofnunar Árna Magnússonar. Opið
er frá klukkan 11 til 17.
Árný Birna Hilmarsdóttir heldur sýn-
ingu á íslensku landslagi unnu í gler í
Galleríi Halla rakara, Strandgötu 39,
gegnt Hafnarborg.
Hrafnkell Birgisson hönnuður heldur
sýningu á verkum sínum í Kaffitári,
Bankastræti 8. Sýningin er opin frá 7.30
til 18.00 og stendur til 10. janúar.
32 6. desember 2002 FÖSTUDAGUR
FÖSTUDAGUR
6. DESEMBER
hvað?
hvar?
hvenær?
Listasafn ASÍ:
Þorkell í skugga styrjaldar
LJÓSMYNDUN Þorkell Þorkelsson
sýnir um þessar mundir
svart/hvítar ljósmyndir sem
hann tók í Palestínu og Ísrael í
vor. Sýningin, Í skugga styrj-
aldar, er í Ásmundarsal og
henni lýkur á sunnudaginn.
Þorkell segist ekki hafa ein-
beitt sér að átökunum á svæð-
inu heldur hafi hann leitast við
að svara spurningunni um það
hvernig fólk lifir af við þessar
aðstæður. „Sama grunnhugs-
unin er ríkjandi alls staðar og
líkt og við á þetta fólk sér allt
sama drauminn um hamingju-
samt líf.“
Sýningin er hluti af lang-
tímaverkefni Þorkels þar sem
hann fæst við að festa á filmu
líf og lífsbaráttu fólks út um
allan heim. Hann ætlar mynd-
unum ekki síst að sýna fram á
að á bak við fréttir frá þriðja
heiminum, og víðar, er lifandi
fólk sem er að reyna að lifa
eðlilegu lífi.
„Ég er búinn að þvælast um
heiminn, eftir megni, í tíu ár og
viða að mér efni, meðal annars í
Afríku, Síberíu og Mongólíu. Ef
guð lofar og allt gengur vel vonast
ég til að ljúka verkefninu í kring-
um 2005 eða 2006 og koma því á
bók. Ég hef notið mikils velvilja og
stuðnings margra aðila og ég vona
að einhverjum þyki það þess vert
að styðja við bakið á mér á næstu
misserum.“ ■
ÞORKELL ÞORKELSSON
„Þetta er eins og hvert annað brjálæði og ég verð sjálfsagt að þessu
fram á níræðisaldur.“
Leiksýningin sem allir eru að tala um!
Allra, allra, allra síðustu sýningar
í Vesturporti, Vesturgötu 18:
fös. 6. des. kl. 21.00 Uppselt!
lau. 7. des. kl. 23.00
Miðasala í Loftkastalanum, sími 552 3000
Eftir áramót flytur Kvetch á
NÝJA SVIÐ BORGARLEIKHÚSSINS!
Miðasala er hafin í Borgarleikhúsinu,
sími 568 8000
Leikhópurinn Á senunni
www.senan.is
Veisla!
Drepfyndið!
Bráðskemmitlegt!
Leiksigur!
Íslensk hönnun í Kaffitári:
Upprisa yfirgef-
inna kaffibolla
SÝNING Í Kaffitári í Bankastræti
opnaði nýverið sýning á „háboll-
um“ eftir Hrafnkel Birgisson.
„Hábollarnir“ eru byggðir á hug-
myndinni um framhaldslíf í hönn-
un með endurnýtingu á notuðum
hlutum. „Mig langaði til þess að
byggja á einhverju sem þegar
væri til og skapa eitthvað nýtt
með því að setja saman á óvenju-
legan hátt hversdagslega hluti
sem allir þekktu. Yfirgefnir boll-
ar eru gæddir nýju lífi og þar með
hlýtur fjöldaframleiðsla liðinna
áratuga ákveðna uppreisn,“ segir
Hrafnkell. Hann ítrekar að boll-
arnir séu ekki hannaðir með eitt
ákveðið hlutverk í huga heldur
bjóði þeir upp á ýmsa möguleika.
Þá má til dæmis nota fyrir léttvín
og hvers kyns kaffidrykki. Marg-
ir hafa notað þá undir eftirrétti og
svo eru þeir auðvitað kjörnir fyr-
ir jólaglöggið.
Hrafnkell hefur unnið út frá
svipuðum hugmyndum í mörgum
öðrum verkum sínum og hefur
hann hlotið verðlaun fyrir hönnun
sína hér heima og erlendis. Verk
hans hafa verið sýnd víða um Evr-
ópu og greinar hafa birst um þau í
erlendum blöðum og tímaritum.
„Hábollarnir“ voru á sýningu á
Kjarvalsstöðum árið 2000 og eru
nú til sölu í verslun Guggenheim-
safnsins í Berlín. ■
HÁBOLLAR
Drykkjarílát sem nota má við ýmis tækifæri.