Fréttablaðið - 06.12.2002, Side 37

Fréttablaðið - 06.12.2002, Side 37
37FÖSTUDAGUR 6. desember 2002 699 Frábært verð! Tilboð á grilluðum kjúkling alla föstudaga ill ll kr/stk Grillaður kjúklingur SFC ...safaríkur og bragðgóður! PAPAR FÖSTUDAG OG LAUGARDAG kaffi@kaffireykjavik.com TÓNLIST Ólafur Páll Gunnarsson, út- varpsmaður á Rás 2, gaf á dögun- um út safnplötuna „Rokkland 2002“. „Þetta er smá framlenging á þættinum,“ segir Óli Palli, um- sjónarmaður Rokklands. „Ég er nú bara að halda þættinum á lífi og minna á sjálfan mig. Þetta er frábær plata. Ég er að kynna alls konar nýja tónlist og rifja upp eldra efni. Þetta er brot af því besta.“ Óli Palli segist ekki vera búinn að fjalla um hverja einustu hljómsveit. Segir þó að eflaust vanti eitthvað á diskinn. „Á plötunni er allt frá System of a Down til David Bowie.“ Þessi fjölbreytta safnplata er að sögn Óla ætluð öllum aldurshópum. „Því rokkið er búið að vera til síðan 1955. Bítlakynslóðin fylgist mjög vel með því sem er að gerast í rokkinu. Rokksveitir í dag vitna líka í gamla dótið.“ Í fyrra gaf Óli Palli út „Rokk- land“ og seldist sú safnskífa það vel að hann ákvað að endurtaka leikinn. Á plötunni nýju má meðal annars finna lög með sveitunum Leaves, Radiohead, Beta Band og Flaming Lips. ■ Óli Palli gefur út safnplötu: „Brot af því besta“ ÓLI PALLI Er einn af þekktari tónlistar- predikurum landsins. TÖLVULEIKIR Hondúraska þingið hef- ur samþykkt bann við ofbeldis- fullum tölvuleikjum til að reyna að stemma stigu við vaxandi of- beldi í landinu. Þingmennirnir 128 samþykktu frumvarpið einhljóða og talið er að forseti landsins muni ekki leggjast gegn því. Meðal leikja sem verða bann- aðir eru Mortal Kombat, Res- ident Evil, Turck, The House of the Dead, Duke Nukem, Shadow- man, Quake, Doom, Instant Kill- er, Doom, The Legacy of Kain, Street Fighter og Perfect Dark, svo örfáir séu nefndir. Þingið samþykkti jafnframt bann við sölu á leikfangavopnum svo sem byssum og hnífum. Lögin taka gildi í júní á næsta ári, sem þýðir að verslanir hafa sex mán- uði til að tæma lagera sína. Ricardo Maduro, sem kjörinn var forseti Hondúras fyrir ári, hef- ur lofað að taka upp herta stefnu í glæpamálum. Síðan þá hefur átta þúsund hermönnum verið fjölgað í löggæslu landsins. ■ QUAKE Ungt fólk í Hondúras getur ekki lengur safnast saman í Skjálftamótum ef frumvarpið verður samþykkt. Þingið í Hondúras: Bannar ofbeldisfulla tölvuleiki Mörkinni 6, sími 588 5518. Opið 9-18 virka daga og 10-15 laugardaga. Pelsar frá 12.900 Mokkajakkar og kápur Tilboð á vendipelsum – áður kr. 24.900 – nú 12.500 Hattar, húfur og kanínuskinn kr 2.900

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.