Fréttablaðið - 07.12.2002, Page 4
4 7. desember 2002 LAUGARDAGURKJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Ferðu oft í sund?
Spurning dagsins í dag:
Hvaða skáldverk hlýtur
bókmenntaverðlaunin?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
4,8%
8,1%1–3 sinnum í viku
13,7%
Í SUNDI
Ríflega 70% fara
sjaldan eða aldrei
í sund.
1 sinni í viku
45,2%Sjaldnar
28,2%Aldrei
3–5 sinnum í viku
HAFRÓ „Mér er ekki nokkur leið að
átta mig á kostum þess að einka-
væða þessa starfsemi, sem að
mínu mati mundi gera rannsókn-
irnar óábyggilegri ef eitthvað er,“
segir Helgi Laxdal, formaður
Vélastjórafélags Íslands, og vísar
til hugmynda um einkavæðingu
Hafrannsóknastofnunar.
Við umræður um fjárlaga-
frumvarp næsta árs sagði Einar
Oddur Kristjánsson alþingismað-
ur að Hafrannsóknastofnun væri
meinvarp í íslensku samfélagi og
að það yrði að einkavæða haf-
rannsóknir við Ísland í framtíð-
inni.
„Einkavæðing hafrannsókna
mundi að mínu viti draga úr
sjálfstæði stofnunarinnar, sem
ég ber fyllsta traust til,“ sagði
Helgi og rifjaði upp að fyrir
nokkru leituðu fréttamenn tiltek-
ins fjölmiðils til lögmanna í
Reykjavík með mál og óskuðu
eftir faglegu áliti á því.
„Þeir inntu lögmennina eftir
áliti ýmist sem málsaðili A eða B.
Án undantekninga taldi viðkom-
andi lögmaður málið unnið fyrir
þann sem álitsins leitaði. Gæti
ekki farið eins með hafrannsókn-
irnar, að þær tækju mið af því
hver spyrði og hver borgaði, þar
sem fáir vilja eiga viðskipti við
þá sem sjá skrattann á hverjum
húsvegg jafnvel þótt hann sé
þar?“ segir Helgi Laxdal. ■
Helgi Laxdal um einkavæðingu Hafró:
Þá fyrst panta menn niðurstöður
HELGI LAXDAL
Segir einkavæðingu hafrannsókna ekki koma til álita. Slíkt myndi verulega rýra trúverðug-
leika niðurstaðna.
SR-mjöl og
Síldarvinnslan:
Stefna að
sameiningu
SJÁVARÚTVEGUR Stjórnir SR-mjöls
hf. og Síldarvinnslunnar hf. hafa
ákveðið að taka upp formlegar
viðræður um sameiningu félag-
anna. Stefnt er að því að niður-
stöður viðræðna liggi fyrir innan
tveggja vikna. Við sameiningu
yrði til þriðja stærsta sjávarút-
vegsfyrirtæki landsins á eftir
Brimi, sem er í eigu Eimskipafé-
lagsins og Samherja. Mark-
aðsvirði fyrirtækjanna er rúmir
10 milljarðar. Samherji hefur
með eignarhlut sínum stjórn á
báðum fyrirtækjunum. Saman
ráða fyrirtækin yfir tæpum
fimmtungi af kvóta í uppsjávar-
tegundum. ■
Garðabær:
Einkarekinn
grunnskóli
SKÓLAMÁL Óskað hefur verið eftir
viðræðum við bæjaryfirvöld í
Garðabæ um mögulega stofnun
einkarekins grunnskóla.
Margrét Pála Ólafsdóttir, eig-
andi Hjallastefnunnar ehf., sem
meðal annars rekur leikskólann
Ása í Garðabæ, hefur óskað eftir
viðræðum við Garðabæ um
mögulega leigu á félagsheimil-
inu Garðaholti frá og með næsta
hausti. Hyggst hún reka þar
grunnskóla fyrir börn á aldrin-
um 6 til 9 ára.
Fyrsta skólaárið yrði aðeins
1. bekkur í skólanum, en síðan
yrði hann stækkaður. Sam-
kvæmt hugmyndum Margrétar
Pálu hefðu börn af leikskólanum
Ásum og Hjalla í Hafnarfirði
forgang um skólavist. Bæjarráð
Garðabæjar vísaði erindi Hjalla-
stefnunnar til umfjöllunar í
skólanefnd. ■
VIÐSKIPTI Nýtt yfirtökuferli í Bret-
landi virðist vera í uppsiglingu.
Breska fyrirtækið TBH hefur
gert tilboð með stuðningi Baugs í
House of Fraser. Baugur á 8%
hlut í fyrirtækinu. Ekki liggur
fyrir hvort Baugur hyggst selja
hlut sinn eða vera aðili að tilboð-
inu. Báðum þeim möguleikum er
haldið opnum. Tiboðið er upp á
staðgreiðslu 85 pens fyrir hlut-
inn. Stjórn House of Fraser hefur
hafnað tilboðinu.
Meðalverð kaupa Baugs var á
bilinu 62 til 65 pens fyrir hlutinn.
Miðað við tilboðið er hagnaður
Baugs á fjórða hundrað milljónir
króna verði af viðskiptunum.
Bréf House of Fraser hækkuðu
eftir að fréttir birtust. Gengi
bréfanna fór upp fyrir tilboðs-
gengið. Það þýðir að fjárfestar
gera ráð fyrir að nýtt tilboð berist
sem verði hærra. Vangaveltur
eru um gengi í kringum 1 pund.
Ef af sölu yrði á því gengi yrði
hagnaður Baugs á sjötta hundrað
milljóna króna. ■
Nýtt yfirtökuævintýri í uppsiglingu:
Baugur styður
breskt yfirtökutilboð
YFIRTAKA
Baugur hagnaðist verulega á yfirtöku
Arcadia. Nú virðist nýtt yfirtökutilboð í
uppsiglingu sem gæti fært Baugi mikinn
hagnað.
Verðhækkanir:
Fljótandi
tóbaksverð
HÆKKUN Sjoppueigendur á höfuð-
borgarsvæðinu hafa enn ekki
fundið jafnvægi í álagningu á tó-
baki eftir síðustu hækkun. Al-
gengasta verð nú er 515 krónur
en dæmi eru þess að sígarettu-
pakkinn kosti 540 krónur.
Lægsta verð sem vitað er um er
490 krónur.
Munar þarna um tíu prósent-
um. Búist er við að enn líði
nokkrar vikur þar til jafnvægi í
verðlagningu næst en álagning
á tóbaki er sem kunnugt er
frjáls. ■
Aco-Tæknival:
Forstjórinn
segir upp
VIÐSKIPTI Magnús Norðdahl, for-
stjóri Aco-Tæknivals, hefur sagt
upp störfum. Hann mun gegna
starfi sínu til 30. júní næstkomandi.
Erfiðleikar hafa verið í rekstri fyr-
irtækisins. Fyrir mánaðamótin var
tíu manns sagt upp störfum. Tap
var af rekstri félagsins fyrstu níu
mánuði ársins og er eigið fé þess
neikvætt um 140 milljónir.
Þá var tilkynnt fyrir nokkrum
dögum að Magnús Bergsson, fram-
kvæmdastjóri kjarnasviðs fyrir-
tækisins, hefði ákveðið að láta af
störfum. ■
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 85.51 0.35%
Sterlingspund 134.31 0.46%
Dönsk króna 11.52 0.46%
Evra 85.57 0.45%
Gengisvístala krónu 127,89 0,01%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 402
Velta 7.992 milljónir
ICEX-15 1.320 0,51%
Mestu viðskipti
Íslenski hlutab.sjóðurinn hf. 985.920.197
Eimskipafélag Íslands hf .599.557.711
Baugur Group hf. 217.958.102
Mesta hækkun
SR-Mjöl hf. 18,33%
Frumherji hf. 13,33%
Ker hf. 7,14%
Mesta lækkun
Marel hf. -3,23%
Flugleiðir hf. -1,60%
Opin kerfi hf. -1,54%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8586,8 -0,4%
Nasdaq*: 1416,1 0,4%
FTSE: 3988,1 -1,1%
DAX: 3320,9 0,5%
Nikkei: 8863,3 -0,6%
S&P*: 906,3 0,0%
Stefnir í fjölda-
takmarkanir í HÍ
Ef fjárframlög til Háskóla Íslands aukast ekki telur fjármálanefnd há-
skólaráðs ljóst að taka þurfi upp fjöldatakmarkanir í allar deildir skólans.
HÁSKÓLI Háskóli Íslands verður að
grípa til fjöldatakmarkana í öllum
deildum náist ekki fram nauðsyn-
leg hækkun á hámarki nemenda-
ígilda í nýjum kennslusamningi
við ríkisvaldið fyrir árin 2003 til
2005. Að auki verður að endur-
skoða fyrri ákvarðanir um fjölda-
takmarkanir í heilbrigðisgrein-
um. Þetta er niðurstaða fjármála-
nefndar háskólaráðs sem kemur
fram í minnisblaði sem lagt var
fyrir ráðið á fundi um fjárveiting-
ar til kennslu.
Samkvæmt fjárlögum næsta
árs er gert ráð fyrir að nemenda-
ígildi verði 4.500 talsins og fjár-
veitingar í samræmi við það.
Nemendaígildin, eða fjöldi nem-
enda miðað við fullt nám, voru
hins vegar 4.670 á síðasta skólaári
og er gert ráð fyrir að þau verði
4.863 á þessum vetri. Skólaárið
2004 til 2005 er gert ráð fyrir að
þau verði orðin 5.500 talsins. Er
þá miðað við einingafjölda og
deilt niður á fullt nám og þannig
fundið út nemendaígildi sem fjár-
veitingar reiknast út frá.
„Það er stefnubreyting ef yfir-
völd hverfa frá þeirri stefnu að
hleypa öllum í háskólanám sem það
vilja. Ég tel að það sé ekki þjóðfé-
laginu til framdráttar,“ segir
Brynjólfur Stefánsson, formaður
Stúdentaráðs. „Það þarf að hækka
þetta hámark sem Háskólinn hef-
ur.“ Hann telur að það verði að taka
sérstakt tillit til fámennari deilda í
Háskólanum. „Það segir sig sjálft að
þegar við erum með færri nemend-
ur er kostnaður við kerfið miklu
meiri. Það er miðað við reiknilíkan
að sænskri fyrirmynd þar sem með-
altalið í bekkjardeild er 30 nemend-
ur, meðaltalið við Háskóla Íslands
er innan við 20 nemendur. Það verð-
ur að gera viðeigandi breytingar til
þess að Háskólinn haldi þeirri stöðu
sem hann hefur í dag.“
Eins og fjárveitingum hefur
verið háttað hafa skólayfirvöld
þurft að grípa til þess bragðs að
flytja fé frá fjölmennari deildum
til fámennari deilda til að fjár-
magna starfsemi þeirra síðar-
nefndu. Telja menn þar innanhúss
að stjórnvöld verði að auka fjár-
veitingar til fámennari sviða, ella
þurfi að halda áfram millifærsl-
um. Þær komi niður á fjölmenn-
ari deildum sem eru sumar í sam-
keppni við sambærilegar deildir í
öðrum skólum.
Samkvæmt útreikningum fjár-
málanefndar vantar 113 milljónir
króna upp á til að leysa vanda fá-
mennari deilda í ár.
brynjolfur@frettabladid.is
HÁSKÓLI ÍSLANDS
Of fá nemendaígildi við útreikninga á
fjárveitingum og lágt framlag vegna launa
kennara standa starfsemi skólans fyrir
þrifum.
BRYNJÓLFUR STEFÁNSSON
Tryggja verður að ekki komi til þess að lokað verði á nemendur með fjöldatakmörkunum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI