Fréttablaðið - 07.12.2002, Síða 6

Fréttablaðið - 07.12.2002, Síða 6
6 7. desember 2002 LAUGARDAGUR ALÞINGI VEISTU SVARIÐ? Svörin eru á bls. 46. 1. 2. 3. Það hvessti heldur betur á suð- vesturhorninu og Snæfellsnesi á fimmtudag. Þurfti hópur manna að hafa sig allan við til að þakið flettist ekki af einni sundlaug. Hvaða laug var það? Tilnefning á bók Mikaels Torfa- sonar, Samúel, til Íslensku bók- menntaverðlaunanna kom sumum á óvart. Hvað hét næsta bók Mikaels á undan henni? Hvað heitir sjávarútvegssvið Eimskipafélagsins? Níu meintir hasssmyglarar fá dóm innan fjögurra vikna: Vitnaleiðslum lokið í hassmáli DÓMSMÁL Níu menn sem ákærðir eru fyrir flutning á samtals 25 kílóum af hassi til landsins mega vænta dóms í málum sínum innan fjögurra vikna. Um þrjú aðskilin mál er að ræða. Þriggja daga vitnaleiðslum og málflutningi átti að ljúka í Héraðsdómi Reykjavík- ur í gær. Einn aðalsakborningurinn í málinu er karlmaður sem var 3. stýrimaður á einu skipa Eimskips í einum túr sumarið 2000. Tíu kíló af hassi, sem keypt voru í Hollandi, voru flutt með skipinu. Stýrimaðurinn ber við að hafa guggnað á öllu saman á loka- sprettinum og fleygt hassinu í sjóinn við Engey. Glæpamennirn- ir fóru síðan nokkrar árangurs- lausar ferðir til að kafa eftir hassinu. Það sama gerði fíkni- efnalögreglan. Þá er ákært fyrir smygl á 15 kílóum af hassi sem gert var upp- tækt á Keflavíkurflugvelli og í Reykjavíkurhöfn. Lögreglan mun hafa lagt gríðarlega vinnu í að góma smyglarana. Bæði var fylgst með símtölum sakborninganna og þeir eltir um víðan völl. Lög- reglan telur að náðst hafi að kæfa í fæðingu smygl sem ann- ars stefndi í að verða umfangs- mikið framvegis. ■ MENNTUN Margrét Friðriksdóttir, skólameistari Menntaskólas í Kópavogi, er komin í 163 milljóna króna skuld við ríkið. Ástæðan er sú að menntamálaráðuneytið legg- ur verknám til jafns við bóknám þó svo að verknámið sé í eðli sínu miklu dýrara í framkvæmd. Menntaskólinn í Kópavogi sér um allt matvælanám í landinu og mennt- ar kokka, kjötiðn- aðarmenn, bakara og þjóna: „Ég fæ 1.900 krónur greiddar á önn fyrir hvern nemanda hér í skólanum en það kostar hins vegar 90 þúsund krón- ur á ári að mennta matreiðslu- mann. Þó svo að ég hafi heimild til að innheimta 25 þúsund krónur hjá matreiðslunemanum upp í þann kostnað sjá allir að þetta gengur ekki upp,“ segir Margrét Friðriks- dóttir skólameistari. „Eins er það með rafmagnið. Ég fæ fimm millj- ónir á ári upp í rafmagnskostnað en þarf að borga 10 milljónir. Raf- magnið er reiknað út eftir flatar- máli og ekki tekið tillit til þess hvort á svæðinu standi eitt skóla- borð eða stór rafmagnsofn,“ segir skólameistarinn, sem íhugar nú hvernig bregðast skuli við fjár- hagserfiðleikum Menntaskólans í Kópavogi. Ef ekkert verður að gert eru ekki önnur ráð en þau að draga úr kennslu og þjónustu og jafnvel loka ýmsum deildum skól- ans líkt og gert er á sjúkrahúsum. Skólameistarinn vonast þó eftir viðbrögðum menntamálaráðuneyt- isins fyrr en síðar því með þessum hætti sé ekki hægt að reka skól- ann. Kjarni málsins sé þessi: Kjöt- skrokkur er dýrari en stílabók og hveitisekkur fyrirferðarmeiri í bókhaldi en strokleður. Þetta verði fjárveitingavaldið að skilja og menntamálaráðuneytið að bregð- ast við. eir@frettabladid.is KENNSLA Í MENNTASKÓLANUM Í KÓPAVOGI Verknám og bóknám lagt að jöfnu þó bakaraofn sé miklu dýrari í rekstri en skólaborð. Kokkar og bakarar að sliga menntaskóla Fjárveitingavaldið leggur verknám til jafns við bóknám. Kjötskrokkur dýrari en stílabók. Menntaskólinn í Kópavogi í 163 milljóna króna skuld við ríkið. Skólameistari íhugar að draga úr þjónustu og kennslu og jafn- vel að loka deildum líkt og á sjúkrahúsum. „Ég fæ fimm milljónir á ári upp í raf- magnskostnað en þarf að borga 10 milljónir.“ ADSL mótald • Stofngjald • Músarmotta Samtals verðmæti 18.125 kr. Aðeins 5.900 kr. Hver býður betur? Start- pakkinn - allt sem til þarf ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I SS 1 94 98 11 /2 00 2 islandssimi.is 800 1111 Kjarreldar í Ástralíu með versta móti: Hamslaus eldur í steikjandi hita SYDNEY, AP Kjarreldar hafa geisað í sunnanverðri Ástralíu undan- farna daga. Nærri tuttugu heimili höfðu eyðilagst í eldunum og að minnsta kosti tveir menn látið líf- ið. Þykkur reykur lá yfir stór- borginni Sydney í gær og eldurinn æddi í áttina að úthverfum henn- ar. Þegar degi tók að halla skán- aði ástandið svolítið, en yfir- maður slökkviliðsins í Nýja Suð- ur-Wales spáði því að það ætti enn eftir að versna. Það hafi sjaldan verið verra en einmitt nú. Hitinn hefur verið yfir 40 gráðum. Þegar hvassviðri bætist ofan á verður barátta slökkviliðs- ins nánast vonlaus. Þyrlur eru meðal annars not- aðar í baráttu við eldana. Vatni er varpað úr þeim og tekst þannig að halda eldunum sums staðar í skefjum. Um það bil 4.500 manns hafa unnið að slökkvistarfinu, margir þeirra sjálfboðaliðar. Lögregluna grunar að sumir eldanna hafi kviknað af manna- völdum. Átján ára námsmaður var kærður fyrir íkveikju í gær og verður í gæsluvarðhaldi út janúar. Hann á yfir höfði sér allt að fjórtán ára fangelsi. ■ BARIST VIÐ ELDINN Íbúi í Berowra, sem er lítill bær um það bil 40 kílómetra suður af Sydney, á þarna í harðri baráttu við kjarreldana. AP /D AN P EL ED Ofbeldispiltar: Bætur og fangelsi DÓMSMÁL Þrír piltar hafa verið fundnir sekir um líkamsárás í Grindavík vorið 2001. Þá voru pilt- arnir allir sautján ára en fórnar- lamb þeirra 27 ára. Þeir spörkuðu og slógu í skrokk mannsins og andlit. Hann fékk sár á höfði og aðrar skrámur frá hvirfli til ilja auk þess sem svokallaður bein- tindur í hrygg mannsins brotnaði. Piltarnir fengu skilorðsbundna fangelsisdóma. Einn fékk 60 daga fangelsi, annar 45 daga og sá þriðji 30 daga fangelsi. Tveir piltanna eiga að greiða manninum 137 þús- und krónur í bætur hvor og sá þriðji 50 þúsund krónur. ■ KVARTMILLJARÐUR TIL STJÓRN- MÁLAFLOKKA Stjórnmálaflokk- arnir fá samtals 255 milljónir króna í styrki úr ríkissjóði á næsta ári samkvæmt fjárlögum. Flokkarnir fá 35 milljónir króna vegna nýrrar kjördæmaskipanar og breyttra aðstæðna þingmanna af þeim sökum fá þeir 50,4 millj- ónir króna til að greiða fyrir sér- fræðiþjónustu. Að auki fá flokk- arnir 180 milljónir króna í styrki til starfsemi sinnar. Upphæðin hækkaði um 20 milljónir í loka- meðferðum þingsins þegar for- menn allra flokka sem sæti eiga á þingi lögðu til aukna styrki. LEIÐRÉTTING RANGFEÐRUÐ Þau leiðu mistök urðu í blaðinu í gær að rangt var farið með föðurnafn Sigríðar Krist- jánsdóttur í frétt sem birtist á for- síðu. Beðist er velvirðingar á mis- tökunum, sem leiðréttast hér með. HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Glæpamennirnir fóru nokkrar árangurs- lausar ferðir til að kafa eftir hassinu við Engey. Það sama gerði fíkniefnalögreglan.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.