Fréttablaðið - 07.12.2002, Síða 16

Fréttablaðið - 07.12.2002, Síða 16
16 7. desember 2002 LAUGARDAGUR Alla laugardaga í desember verða vínþjónar til ráðgjafar í Vínbúðinni Heiðrúnu, Vínbúðinni Kringlunni og Vínbúðinni Smáralind. Við bætum um betur og höfum framvegis opið í Vínbúðinni Kringlunni, Vínbúðinni Smáralind og Vínbúðinni Dalvegi á laugardögum kl. 11-18. www.vinbud.is Kringlan Heiðrún Smáralind Kringlan Heiðrún Smáralind Kringlan Heiðrún Smáralind Kringlan Heiðrún Smáralind Kringlan Heiðrún Smáralind Kringlan Heiðrún Smáralind Kringlan Heiðrún Smáralind VÍNÞJÓNAR TIL RÁÐGJAFAR ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S A V R 19 63 2 12 /2 00 2 Um síðustu áramót opnaðist ein-staklingum í rekstri leið til að færa rekstur sinn yfir í einkahluta- félag án þess að það hefði skattaleg- ar afleiðingar í för með sér. Áður hafði þessum einstak- lingum verið gert að uppreikna verð eigna sem færðar voru í félögin og greiða af þeim sölu- hagnað. Þessi skatt- ur kom því á sölu- hagnað sem ekki var raunverulegur. Þessi breyting opn- aði leið til að færa reksturinn af eigin kennitölu yfir í hlutafélag. Annar hvati þess að stofna einka- hlutafélag var að skattaprósenta fyrirtækja var lækkuð úr 30% niður í 18%. Þeir voru því margir sem könn- uðu möguleika á að færa rekstur sinn í einkahlutafélag. Anna Kristín Traustadóttir, endurskoðandi hjá endurskoðunarfyrirtækinu Ernst & Young hf., segir að margir við- skiptavinir hafi talið sig vera að missa af happdrættisvinningi með því að láta sér þetta tækifæri úr greipum ganga. „Samhliða þessu ber öllum sem reka svona félög að reikna sér ákveðin laun. Þessi laun eru miðuð við það að þau séu ekki lægri en almennt gerist á markaðn- um.“ Hún segir að í tilfelli um helm- ings viðskiptavina sem sýndu stofn- un einkahlutafélags áhuga hafi komið í ljós að sú breyting væri þeim óhagstæð. Þrátt fyrir að breytingin sé ekki öllum hagstæð hefur einkahlutafé- lögum fjölgað verulega. Fjöldi ný- skráðra einkahlutafélaga er farinn að slaga í þrjú þúsund á þessu ári. Fjöldi nýrra einkahlutafélaga árið 2001 var 1841. Lægri skattar hagnaðar Algengur misskilningur varð- andi stofnun einkahlutafélaga í stað hefðbundins rekstrar er sá að skatt- ar þessara einstaklinga lækki um 20%. Svo er ekki. Lækkunin er á þeim hagnaði sem verður umfram þau laun sem menn hafa reiknað sér. Þannig greiðir einkahlutafélag- ið 18% skatt af hagnaði. Eigandinn hefur svo heimild til þess að greiða sér afgang hagnaðarins í arð. Af arðinum er svo greiddur 10% fjár- magnstekjuskattur. Heildarskattur- inn af hagnaði umfram laun er því 26% á móti rúmum 38% af launa- tekjum. Indriði Þorláksson ríkisskatt- stjóri segir að skerpt hafi verið á reglum um reiknað endurgjald af vinnu. Þannig er starfsemin flokkuð og miðað við laun á almennum vinnumarkaði. Sveitarfélögin telja hins vegar að þau séu að verða af töluverðum útsvarstekjum vegna fjölgunar einkahlutafélaga. „Þeir sveitar- stjórnarmenn sem fylgjast vel með í sínum sveitarfélögum sjá greini- lega að tekjur eru að minnka vegna fjölgunar einkahlutafélaga,“ segir Gunnlaugur Júlíusson, hagfræðing- ur hjá Sambandi íslenskra sveitar- félaga. Margir smábátasjómenn, vöru- bílstjórar og fleiri einyrkjar hafa flutt starfsemi sína í hlutafélög. Fjármagnstekjuskatturinn rennur til ríkisins. Útsvar er greitt af laun- um og hagnaði fyrirtækja. Þannig verða sveitarfélögin af þeim tekjum sem tilkomnar eru vegna arð- greiðslu einkahlutafélaga. Gunn- laugur nefnir að við færslu einka- rekstrar yfir í einkahlutafélag opn- ist meiri möguleikar til að draga frá kostnað. Framtölum fjölgar Indriði segir að meginreglan sé sú að mönnum sé ekki heimilt að færa annan kostnað vegna atvinnu- starfsemi en þann sem sannanlega fellur til vegna tekjuöflunar. Það sama gildi um einkarekstur og einkahlutafélag. Vandamálið sem snýr að skatta- yfirvöldum er það að miðað við fjölgun einkahlutafélaga um þrjú þúsund fjölgar skattframtölum um það sama. Einstaklingarnir sem reka einkahlutafélög skila inn einkaframtali ásamt framtali hluta- félagsins. Indriði segir að ekki hafi komið til auknar fjárveitingar vegna þessa. Einkahlutafélög eru orðin um 10 þúsund. Gunnlaugur bendir einnig á að umræðan um þessi mál snúist um tvennt. Annars vegar muninn sem er á skattlagn- ingu einstaklinga eftir því hvort þeir eru í eigin rekstri eða launa- menn. Hins vegar snúist umræðan um tekjuskiptingu ríkis og sveitar- félaga. Með einkahlutafélögum lækki skattar ákveðinna hópa, en reikningurinn sé að hluta til sendur sveitarfélögunum. Indriði bendir einnig á að það séu ýmsir þættir sem fylgja einka- hlutafélögum sem ekki séu fyrir hendi hjá einstaklingum í einka- rekstri. „Það eru gerðar ríkari kröf- ur til einkahlutafélaga. Ársreikn- ingar einkahlutafélaga eru öllum aðgengilegir.“ haflidi@frettabladid.is LÆGRI SKATTAR Einyrkjar sem hafa tekjur yfir viðmiðunarmörkum Ríkisskattstjóra greiða 26% skatt af því sem er umfram. Margir sjá sér hag í því að hafa rekstur sinn í formi einkahlutafélaga.Þeir sveitar- stjórnarmenn sem fylgjast vel með í sín- um sveitarfé- lögum sjá greinilega að tekjur eru að minnka vegna fjölgunar einkahlutafé- laga. ENDURGJALD EINYRKJA Mánaðartekjur sem einyrkjar í einka- hlutafélögum verða að telja fram áður en hægt er að færa hagnað: Sérfræðingar 375.000 Fjölmiðla- og listamenn 250.000 Iðnaðarmenn 200.000 Smábátasjómenn 200.000 Sauðfjárbændur 70.000 Kúabændur 100.000 Nýstofnuð einkahlutafélög eru að nálgast þrjú þúsund á árinu. Misjafnt er hvort hagstætt er fyrir einyrkja að breyta rekstrinum í hlutafélag. Hagnaður eftir laun ber lægri skatta. Arðurinn ber fjármagnstekjuskatt sem rennur til ríkisins. Sveitar- félögin verða af tekjum. Skattar einyrkja og einkahlutafélaga

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.