Fréttablaðið - 07.12.2002, Síða 25

Fréttablaðið - 07.12.2002, Síða 25
25LAUGARDAGUR 7. desember 2002 þar með lauk þessu endanlega,“ segir hún. Stúlkan bjó með barnsföður sín- um í nokkur ár. Upp úr því sam- bandi slitnaði. „Ég var ekki tilfinningalega í neinu ástandi til þess að axla þær skyldur sem fylgdu sambúðinni. Skuggarnir fylgdu mér og settu mark sitt á samband mitt við barnsföður minn. Við slitum sam- búðinni árið 1993 og það var ekki síst mér að kenna,“ segir hún. Eftir skilnaðinn einbeitti hún sér að uppeldi dóttur sinnar. Dóttirin var lifandi eftirmynd móður sinnar og minningarnar frá barnæskunni komu yfir móðurina. „Ég fékk hroll þegar ég hugsaði til þess að þetta sama gæti komið fyrir dóttur mína. Þegar hún var níu ára gat ég varla snert hana og var kuldaleg við barnið. Þetta var afleiðing af því sem stjúpfaðir minn hafði gert mér og ég áttaði mig á því og hlúði að sambandi okkar,“ segir konan. Hún segir að misnotkunin hafi stöðugt leitað á hugann og hún fann þörf til þess að gera upp mál- in til að öðlast hugarró. „Sjálfsmynd mín var í molum. Ég hugsaði oft um að kæra hann en einhvern veginn hafði ég mig ekki í það. Árið 1999 leitaði ég til Stíga- móta eftir að ég hafði verið hvött til þess. Ég hafði sagt frænku minni frá misnotkuninni og hún sagðist hafa séð á mér einkenni þess að ég hefði lent í þessu. Hún hafði sjálf verið misnotuð sem barn og þekkti einkennin. Skömm mín kom upp í hugann reglulega og ég gerði allt til þess að fela líð- an mína. Innan um fólk var ég með grímu og brá mér gjarnan í hlut- verk trúðsins til að fela sársauk- ann sem bjó innra með mér. Ég fór í fyrsta viðtalið með hálfum huga og fannst ég ekki eiga erindi þang- að,“ segir hún. Hún fór ekki aftur á fund Stíga- mótakvenna fyrr en ári síðar. Þá áttaði hún sig á því að leiðin til að lögsækja manninn væri fær. „Þær gerðu mér grein fyrir því hvernig kæruferlið væri og hve erfitt það væri. Augu mín opnuð- ust fyrir því að kannski yrði hægt að ná fram réttlætinu og ég tók af skarið og kærði,“ segir hún. Fósturfaðirinn kærður Í júní árið 2000 kærði hún fóstur- föður sinn og tilnefndi vitni. Þeirra á meðal voru systir hennar og móð- ir. Hún hafði þá opnað sig fyrir fjöl- skyldu sinni og sagt þeim allt af létta. Ríkissaksóknari ákvað í fram- haldinu að gefa út ákæru á mann- inn. Maðurinn harðneitaði sök og sagði að málið allt væri uppspuni. Meðal þeirra gagna sem lögð voru fyrir héraðsdóm var læknisskýrsl- an frá því stúlkan fór í þungunar- prófið 13 ára gömul. „Það var stórt skref að kæra og mér létti þegar kæran hafði verið skráð. Það erfiðasta var að mæta fyrir héraðsdóm og segja frá þar. Fósturfaðir minn var þarna og lög- fræðingur hans gerði allt sem hann gat til að rugla mig í ríminu með undarlegum og lævíslegum spurningum. En það breytti engu og maðurinn sem rændi mig barn- æsku minni var dæmdur sekur og gert að sæta fangelsi í þrjú og hálft ár og greiða mér bætur. Þetta var ákveðinn sigur en ég hafði þó aldrei ætlað mér að fá bætur. Fyrst og fremst vildi ég að hann yrði settur í fangelsi fyrir þann hryll- ing sem hann hafði valdið mér ,“ segir hún. Fósturfaðirinn ákvað að áfrýja niðurstöðu héraðsdóms til Hæsta- réttar. Þar var dómur undirréttar ekki aðeins staðfestur heldur var refsingin þyngd. Manninum var gert að sæta fangelsi í fimm og hálft ár og greiða fósturdóttur sinni milljón krónur í bætur. „Mér fannst sem réttlætinu væri fullnægt. Þetta er þyngsti dómur sem kveðinn hefur verið yfir barna- níðingi og svo sannarlega verð- skulduð málagjöld,“ segir hún. Misnotkun í sama þorpi Á meðan á málarekstri konunn- ar á hendur fósturföðurnum stóð kom upp sambærilegt mál sem hún segir að hafi næstum fengið blóðið til að frjósa í æðum sínum. „Í sama þorpi og misnotkun mín hófst kom upp mál þar sem stjúp- faðir misnotaði sex ára dóttur sína og smitaði hana af tveimur kyn- sjúkdómum. Þetta var átján árum eftir að ég lenti í því sama og þessi litla stúlka. Ég þekkti gerandann, sem varði sig með því að barnið hefði viljað þetta. Það eina góða við það mál er að strax var tekið á því og sú stúlka þarf ekki að þjást í mörg ár eins og ég og maðurinn var dæmdur af Hæstarétti í þriggja og hálfs árs fangelsi,“ seg- ir hún. Konan segir að þrátt fyrir að henni hafi verið dæmdar bætur úr hendi stjúpföður síns þá hafi hún ekki talið vera mikla von til þess að hann borgaði nokkurn tíma þá upp- hæð. „Hann er búinn að vera gjald- þrota árum saman og því ekki lík- legt að hann borgaði. Sigurinn er fyrst og fremst fólginn í því að hann fer í fangelsi,“ segir hún. Í júlí síðastliðnum var ákveðið að kalla manninn inn til afplánun- ar. En þá var hann farinn úr landi. „Mér er það óskiljanlegt að slíkt skyldi geta gerst. Hann er með þennan dóm á bakinu en kemst samt undan,“ segir konan. Hún leitaði á náðir dómsmála- ráðuneytisins vegna skaðabótanna sem Hæstiréttur dæmdi henni. Nýlega voru sett lög sem gera rík- inu skylt að greiða þolendum kyn- ferðisafbrota út bætur ef gerend- urnir væru ekki borgunarmenn. „Svarið var að of langt væri um liðið frá því þetta gerðist og ráðu- neytið hafnaði því að greiða mér þessar bætur. Það kemur mér svo sem ekki á óvart að fá ekki þessi peninga en ég er undrandi á því að maðurinn skuli sleppa úr landi. Hann hefur þegar sett mark sitt á allt mitt líf og enn líður ekki sá dagur að mér verði ekki hugsað til hryllingsatburða æsku minnar. Það er Stígamótum að þakka að ég hef gert upp málið innra með mér og get lifað með því en það mun lifa með mér til æviloka. Krafa mín er sú að hann verði látinn gjalda fyrir illvirki sín,“ segir kon- an sem frá níu ára aldri var mis- notuð af fósturföður sínum á neð- an þorpið þagði. rt@frettabladid.is Ég var bara barn en hann notaði mig eins og ég væri eiginkona hans“ ,, ÁHYGGJULAUST BARNÞessi mynd var tekin ári áður en þeir atburðir sem lýst er í greininni gerðust.. Næstu jól var martröðin orðin að veruleika.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.