Fréttablaðið - 07.12.2002, Side 32

Fréttablaðið - 07.12.2002, Side 32
ÚTIVIST 11.00 Gigtarfélag Íslands stendur fyrir gönguferð um Laugardalinn. Gengið verður frá húsakynnum félagsins að Ármúla 5 og í um klukkutíma. FUNDIR 13.00 Kjördæmisþing Vinstrihreyfing- arinnar - græns framboðs í Norðvesturkjördæmi verður hald- ið í Munaðarnesi í Borgarfirði. 14.00 Davíð Ottó Arnar ver doktorsrit- gerð sína The Cardiac Pukinje System and the Ventricular Tachyarrhythmias of Ishchemia and Reperfusion við læknadeild Háskóla Íslands. Doktorsvörnin fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og er öllum heimill aðgangur. UPPÁKOMUR 10.00 Opið hús verður í glerblásturs- verkstæðinu á Kjalarnesi. Verk- stæðið er staðsett milli Klébergs- skóla og Grundarhverfis. 11.00 Upplestur verður í bókabúð Máls og menningar á Laugavegi. Krist- ín Steinsdóttir kemur og les upp úr bókinni sinni Engill í vestur- bænum og lesið verður úr Jólin koma eftir Jóhannes úr Kötlum og fleiri jólasögur. 12.00 Þóra Sigurþórsdóttur leirlistar- kona verður með opið hús á vinnustofu sinni á Hvirfli í Mos- fellsdal. 14.00 Árlegur jólabasar Kristniboðsfé- lags kvenna í Reykjavík verður í Kristniboðssalnum, Háaleitis- braut 58-60, 3. hæð. 14.40 Tendrað verður á vinarbæjar- jólatrénu á túninu við Listasafnið og Menningarmiðstöðina í Kópa- vogi. Kór Kársnesskóla flytur jóla- lög og jólasveinarnir koma í heimsókn og gleðja bæjarbúa. 20.00 Matur og tónlist frá frönskumæl- andi Norður Afríku verða kynnt í Alliance française. OPNUN 17.00 Sýningin Reyfi opnar í Gallerí Skugga, Hverfisgötu 39. Myndlist- arkonurnar Anna Þóra Karlsdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir vinna saman undir nafninu Tó-Tó og á sýningunni sýna þær flókareyfi úr lambsull. Sýningin stendur til 22. desember og er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13 - 17. 15.00 Ólöf Kjaran opnar sýningu í Rauðu stofunni í Galleríi Fold við Rauðarárstíg. Sýninguna nefnir listakonan Undir og ofan á. Sýn- ingin stendur til 13. desember. TÓNLEIKAR 12.00 Eyþór Ingi Jónsson organisti heldur hádegistónleika í Akureyr- arkirkju. Á efnisskrá tónleikanna verða verk eftir Emil Sjögren, Oli- vier Messiaen og Stephen Ing- ham. Lesari á tónleikunum er Heiðdís Norðfjörð. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og eru allir velkomnir. 12.30 Viola da gamba félagið heldur sína fyrstu tónleika í listasafni Ásmundar Sveinssonar í Sigtúni í Reykjavík. 13.00 Tónleikarnir Syngjandi jól verða haldnir í Hafnarborg. Fram koma 22 kórar og sönghópar, alls um 800 söngvarar. 14.00 Það á að gefa börnum brauð er yfirskrift tónleika forskólabarna hjá Tónskóla Sigursveins sem verða í Seljakirkju. Flutt verða tvö af Jónasarlögum Atla Heimis Sveinssonar og jólalög frá ýmsum löndum. Flytjendur eru kór, blokk- flautukór og slagverkssveit for- skólanema ásamt hljómsveit skip- uð nemendum skólans. 16.00 Edda Hrund Harðardóttir sópran og Richard Simm píanóleikari halda söngtónleika í Salnum sem þau kalla Tónar Evrópu. 17.00 Kvennakórinn Kyrjurnar heldur sína árlegu jólatónleika í Seltjarn- arneskirkju. 17.00 Jólatónleikar Söngseturs Estherar Helgu undir yfirskriftinni Jólin koma verða haldnir í Digranes- kirkju. LEIKHÚS 13.00 Jólarósir Snuðru og Tuðru eru sýndar í Möguleikhúsinu. Uppselt. 14.00 Karíus og Baktus eru sýndir á Stóra sviði Þjóðleikhússins. 14.00 Benedikt Búálfur er sýndur í Loftkastalanum. 14.00 Kardemommubærinn er sýndur hjá Leikfélagi Hveragerðis. Örfá sæti laus. 15.00 Jólagaman, jólasveinakvæði Jó- hannesar úr Kötlum, er sýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins. 15.15 Jólarósir Snuðru og Tuðru eru sýndar í Möguleikhúsinu. Uppselt. 16.00 Kardemommubærinn er sýndur hjá Leikfélagi Hveragerðis. Aukasýning. Uppselt. 20.00 Hættu að telja, sýning Halla og Ladda, er í Loftkastalanum. 20.00 Með fulla vasa af grjóti er sýnt á Litla sviði Þjóðleikhússins. 20.00 Honk! Ljóti andarunginn er sýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins. Kvöldsýning. 20.00 Jón og Hólmfríður eru sýnd á Nýja sviði Borgarleikhússins. 20.00 Grettissaga er sýnd í Hafnarfjarð- arleikhúsinu. Nokkur sæti laus. 20.30 Hljómsveitin sjónleikur í einum þætti er sýndur hjá Leikfélagi Kópavogs. 23.00 Kvetch er sýnt í Vesturporti. TÓNLIST 22.00 Harmonikkuball verður haldið í Ásgarði, Glæsibæ. Valíum leikur á Ara í Ögri Geir Ólafsson og furstarnir spila á Ásláki, Mosfellsbæ. Rokkslæðan spilar á Vídalín. Stuðmenn spila í Sjallanum á Akureyri. Sixities spilar á Players Kópavogi. Sváfnir Sigurðsson spilar á Café Catal- inu. Ray Roman og Mette Gudmundsen spila á Café Romance. Mát spilar á Catalínu. Hilmar Sverrisson og Ari Jónsson spila í Fjörugarðinum. Írafár spilar á Gauki á Stöng. Stórsveit Ásgeirs Pálssonar spilar á Gullöldinni. Flauel spilar á Hótel Stykkishólmi. Logar spila á Inghóli. Traffic spilar á Kaffi Duus, Keflavík. Jonni í Holti spilar á Kaffi Læk, Hafnar- firði. KGB spilar á 22. 32 7. desember 2002 LAUGARDAGUR LAUGARDAGUR 7. DESEMBER hvað? hvar? hvenær? Hliðraði ögn til sannleikanum Edda Hrund Harðardóttir sópransöngkona heldur sína fyrstu tón- leika hérlendis í dag, en hún hóf söngnám aðeins fjórtán ára gömul. Tónleikarnir verða í Salnum í Kópavogi. Edda Hrund Harðardóttirsópransöngkona heldur tón- leika í Salnum í Kópavogi klukkan 16 í dag. Edda var barnung þegar hún hóf söngnám sitt í Söngskóla Reykjavíkur undir handleiðslu Þuríðar Pálsdóttur, Ásrúnar Dav- íðsdóttur og Jórunnar Viðar. „Ég var sísyngjandi sem krakki og einhvern tíma stillti mamma mér upp við píanóið og lét mig syngja með Diddú,“ segir Edda Hrund og hlær við tilhugsunina. „En þegar ég var fjórtán ára kom systir mín heim einn daginn og sagði mér að áheyrnarprufur stæðu yfir í Söngskólanum. Ég lét eftir fortöl- ur til leiðast að fara, aldurstak- marið var nú til dæmis 16 ára og ég ekki nema 14, þannig að ég hliðraði eitthvað til sannleikanum áður en ég söng. En þau sem hlustuðu voru ánægð með mig og þegar ég var búin að játa allt var ég engu að síður samþykkt inn í skólann.“ Edda Hrund lauk svo sjöunda stigi frá Söngskólanum árið 1998. Þá hafði henni boðist að hefja nám við Royal Academy of Music. Hún útskrifaðist þaðan vorið 2002 með B.Mus.-gráðu í tónlist ásamt söngkennaraprófi með ágætiseinkunn. Nú vinnur hún að postgraduate diploma í söng í sama skóla, sem lýkur með útskriftartónleikum sumarið 2003. Eddu hefur gengið mjög vel í náminu í London og líkar vel að búa þar. „Margir kalla London sjúkdóm,“ segir hún hlæjandi. „Fyrst er hún yfirþyrmandi og maður þarf að venjast mann- mergðinni. En svo verður maður eiginlega háður henni. Það er alltaf svo mikið um að vera í London og gríðarlegt framboð af tónleikum og menningu.“ Richard Simm spilar með Eddu á tónleikunum í dag. Þau bjóða upp á dagskrá sem þau kalla Tóna Evrópu. Á efnis- skránni eru verk eftir Handel, Mahler, Jón Ásgeirsson, Ravel, Puccini, Poulenc, Tchaikovsky og Bellini. ■ EDDA HRUND HARÐARDÓTTIR Var sísyngjandi sem barn og hefur nú lokið söngnámi aðeins 22 ára gömul. Tónleikar í Salnum. Jólaveisla fyrir alla fjölskylduna TÓNLIST Kammerhópur Salarins býður stórfjölskyldunni til klassískrar jólaveislu klukkan 16 á sunnudag. Þar ætlar KaSa- hópurinn að flytja vinsæl kammerverk og jólalög, en í hópnum eru að þessu sinni Nína Margrét Grímsdóttir á píanó, Peter Máté á píanó, Áshildur Haraldsdóttir á flautu, Auður Hafsteinsdóttir á fiðlu, Sif M. Tulinus á fiðlu, Helga Þórarins- dóttir á lágfiðlu, Sigurður Bjarki Gunnarsson á selló og Bryndís Halla Gylfadóttir á selló. Aðgangur er ókeypis fyrir yngri en 20 ára og eldri en 60 ára. Nói&Síríus bjóða upp á jólakonfekt og Kökuhornið í Kópavogi býður upp á jóla- smákökur frá kl. 15.30. Jóla- sveinninn mætir að sjálfsögðu á staðinn. Bóka þarf fría aðgöngumiða fyrir fram en á tónleikadag fá þeir miða sem mæta fyrstir. Flytjendur sjá um tónleika- spjall og verslunin 12 Tónar verður með kynningu í anddyri Salarins. ■ KASA-HÓPURINN Býður til jólaveislu í Salnum í Kópavogi í dag.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.