Fréttablaðið - 07.12.2002, Page 36
Einn af mínum skástu drykkjufé-lögum missti næstum því vitið
fyrir nokkrum árum þegar hann
sneri baki við djamminu og festist í
barnauppeldi og heimilishaldi. Til-
veran varð svo grá að hann byrjaði
að „lifa fyrir Seinfeld“, eins og hann
orðaði það sjálfur. Það er aumt að
lifa fyrir sjónvarpið. Það er svolítið
eins og að deyja hægt. Sérstaklega
þessi misserin. Ekki var nú Seinfeld
neitt sérstakur en hann er skömm-
inni skárri en hvítaruslþættirnir
Fear Factor, Survivor og Temptation
Island. Það eina sem gleður í þess-
um gerviraunveruleikaefnum er að
Djúpa laugin stendur upp úr þessari
hrúgu þátta sem ganga út á að láta
vitlaust fólk gera sig að fíflum fyrir
annað vitlaust fólk. Veljum íslensk-
an afþreyingariðnað!
Jay Leno er líka óþolandi fífl, Sex
and the City er ekki svipur hjá sjón
og Frasier er á hraðri niðurleið.
Futurama er eina hágæðaefnið sem
er í boði um þessar mundir en mað-
ur lifir það samt af að missa af
þætti. Enginn sér ástæðu til að sýna
The Simpsons og Sópranógengið er
ekki væntanlegt fyrr en eftir jól og
verstu fregnir herma að þar sé
þrettándinn líka farinn að þynnast.
Skjár Einn er helst líklegur til að
bjarga manni frá sturlun í fásinni
hversdagsins með Law&Order og
reytingi af þolanlegum gamanþátt-
um. Allt er þetta þó marflatt og skil-
ur ekkert eftir sig. Lá í pest í nokkra
daga nýlega og hélt sönsum með því
að horfa á Cartoon Network. Það er
illt í efni hjá þeim sem lifa fyrir
sjónvarpið. Þeir sem eru dýpst
sokknir eru þó hólpnir enda eiga
þeir Ómegu og Glæstar vonir. ■
7. desember 2002 LAUGARDAGUR
BÍÓMYNDIR
SJÓNVARPIÐ
er lagstur í skammdegisþunglyndi og
getur ekki einu sinni sótt huggun í
sjónvarpið.
Þórarinn Þórarinsson
36
SKJÁR EINN
POPPTÍVÍ
6.00 Jakob, the Liar
8.00 Love Hurts (Beisk ást)
10.00 Boys and Girls
12.00 Party Camp (Partísvæðið)
14.00 Love Hurts (Beisk ást)
16.00 Boys and Girls
18.00 Jakob, the Liar
(Blekkingaleikur Jakobs)
20.00 Hamlet
22.00 Blinkende Lygter
(Logandi ljósker)
0.00 Havana
2.20 Ronin (Málaliðar)
4.20 Blinkende Lygter
(Logandi ljósker)
BÍÓRÁSIN
OMEGA
9.00 Morgunstundin okkar
9.02 Stubbarnir (63:90)
9.26 Malla mús (36:52) (Maisy)
9.33 Undrahundurinn Merlín
(14:26)
9.36 Póstkassinn
9.45 Fallega húsið mitt (23:30)
9.52 Lísa (12:13)
9.57 Ævintýri jólasveinsins
(2:26)
10.09 Póstkassinn
10.23 Krakkarnir í stofu 402
(38:40)
10.45 Hundrað góðverk (18:20)
11.10 Kastljósið
11.35 At
12.05 Geimskipið Enterprise
(9:26) e.
12.50 Svona var það (11:27)
13.15 Mósaík e.
13.50 Jóladagskráin e.
14.25 Þýski fótboltinn
16.20 Íslandsmótið í handbolta
Bein útsending frá leik
Hauka og KA í Essodeild
karla.
17.55 Táknmálsfréttir
18.02 Forskot (40:40)
18.48 Jóladagatalið - Hvar er Völ-
undur? (7:24) Áður sýnt
1996.
18.54 Lottó
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.40 Laugardagskvöld með
Gísla Marteini
20.25 Spaugstofan
20.55 Einstök nótt (One Special
Night) Bíómynd frá 1999.
Aðalhlutverk: Julie
Andrews og James Garner.
22.30 Evrópsku kvikmyndaverð-
launin
0.05 Þögnin fyrir hvellinn (Die
Stille nach dem Schuss)
Þýsk bíómynd frá 2000
um unga hryðjuverkakonu
sem sest að í Austur-
Þýskalandi. Aðalhlutverk:
Bibiana Beglau, Richard
Kropf, Martin Wuttke og
Nadja Uhl.
1.50 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
6.00 Bíórásin
Jakob, the Liar
8.00 Bíórásin
Love Hurts (Beisk ást)
10.00 Bíórásin
Boys and Girls
12.00 Bíórásin
Party Camp (Partísvæðið)
14.00 Bíórásin
Love Hurts (Beisk ást)
16.00 Bíórásin
Boys and Girls
18.00 Bíórásin
Jakob, the Liar
20.00 Bíórásin
Hamlet
20.25 Stöð 2
Maður eins og þú
20.55 Sjónvarpið
Einstök nótt
21.00 Sýn
Ást í eyðimörkinni
22.00 Bíórásin
Blinkende Lygter
(Logandi ljósker)
22.00 Stöð 2
Mexíkóinn (The Mexican)
0.00 Bíórásin
Havana
0.05 Stöð 2
Í fánalitunum
0.05 Sjónvarpið
Þögnin eftir hvellinn
0.55 Sýn
Brúður forðar sér
2.20 Bíórásin
Ronin (Málaliðar)
2.25 Stöð 2
Í böndum (Bound)
4.20 Bíórásin
Blinkende Lygter
(Logandi ljósker)
STÖÐ 2
8.00 Barnatími Stöðvar 2
8.35 Saga jólasveinsins
9.00 Barnatími Stöðvar 2
9.55 Digimon Ævintýramynd fyr-
ir hressa krakka á öllum
aldri. Leikstjóri: Mamoru
Hosoda, Minoru Hosoda.
2000.
11.25 Friends I (22:24) (Vinir)
11.50 Bold and the Beautiful
13.35 Viltu vinna milljón?
14.20 Alltaf í boltanum
14.45 Enski boltinn
17.10 Sjálfstætt fólk (Anna Krist-
jánsdóttir)
17.40 Oprah Winfrey
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.55 Lottó
19.00 Ísland í dag, íþróttir og
veður
19.30 Dharma og Greg (4:24)
(Sexual Healing)
20.00 Spin City (16:22)
20.25 Someone Like You (Maður
eins og þú) Rómantísk
gamanmynd. Aðalhlutverk:
Ashley Judd, Greg Kinnear,
Hugh Jackman, Marisa
Tomei. Leikstjóri: Tony
Goldwyn. 2001.
22.00 The Mexican (Mexíkóinn)
Gamanmynd með hæfi-
legri blöndu af hasar og
rómantík! Jerry Welbach
hafa verið settir tveir afar-
kostir. Glæpaforinginn vill
að að hann sæki ómetan-
lega byssu til Mexíkós og
kærasta Jerrys vill að hann
gerist löghlýðinn borgari.
Aðalhlutverk: Brad Pitt, Jul-
ia Roberts, James Gand-
olfini, Gene Hackman.
Leikstjóri: Gore Verbinski.
2001. Bönnuð börnum.
0.05 Primary Colors Kosningalið
Jacks Stantons, forseta-
frambjóðanda demókrata,
reynir að breiða yfir kyn-
lífshneyksli sem ógnar
kosningabaráttu hans og
fjórum árum í viðbót í
Hvíta húsinu. Aðalhlutverk:
John Travolta, Emma
Thompson, Billy Bob
Thornton, Kathy Bates.
1998.
2.25 Bound (Í böndum) Leik-
stjóri: Andy Wachowski,
Larry Wachowski. 1996.
Stranglega bönnuð börn-
um.
4.10 Tónlistarmyndbönd frá
Popp TíVí
SÝN
11.45 Enski boltinn (Man. Utd. -
Arsenal)
17.00 Toppleikir (Toppleikir í fót-
bolta 02/03)
18.50 Lottó
19.00 PSI Factor (12:22) (Yfirskil-
vitleg fyrirbæri) Hér eru
óþekkt fyrirbæri til umfjöll-
unar. Við gerð þáttanna
var stuðst við skjöl viður-
kenndrar stofnunar sem
fæst við rannsóknir dular-
fullra fyrirbæra. Kynnir er
leikarinn Dan Aykroyd.
20.00 MAD TV (MAD-rásin)
21.00 Passion in the Desert (Ást í
eyðimörkinni) Dramatísk
ævintýramynd. Augustin
og Jean-Michel verða við-
skila við félaga sína í fran-
skri hersveit í Egyptalandi.
Þeir ráfa um eyðimörkina
og virðast eiga litla mögu-
leika á að komast lifandi
til byggða. Aðalhlutverk:
Ben Daniels, Michel
Piccoli, Paul Meston. Leik-
stjóri: Lavinia Currier.
1998. Bönnuð börnum.
22.30 Hnefaleikar-Evander
Holyfield (Evander Holyfi-
eld - Hasim Rahman) Út-
sending frá hnefaleika-
keppni í Atlantic City í
Bandaríkjunum. Á meðal
þeirra sem mætast eru
fyrrverandi heimsmeistarar
í þungavigt, Evander
Holyfield og Hasim Ra-
hman. Áður á dagskrá 1.
júní 2002.
0.30 Another Japan (8:12) (Kyn-
lífsiðnaðurinn í Japan)
0.55 Bride on the Run (Brúður
forðar sér) Erótísk kvik-
mynd. Stranglega bönnuð
börnum.
2.05 Dagskrárlok og skjáleikur
19.00 Benny Hinn
19.30 Adrian Rogers
20.00 Kvöldljós
21.00 Bænastund
21.30 Joyce Meyer
22.00 Benny Hinn
22.30 Joyce Meyer
23.00 Robert Schuller
FYRIR BÖRNIN
8.00 Barnatími Stöðvar 2
Kolli káti, Kalli kanína,ÝSaga
jólasveinsins, Með Afa,
Digimon
9.00 Morgunstundin okkar
Stubbarnir, Malla mús, Undra-
hundurinn Merlín, Póstkassinn,
Fallega húsið mitt, Lísa, Ævin-
týri jólasveinsins, Póstkassinn,
Krakkarnir í stofu 402, Hundrað
góðverk
18.48 Sjónvarpið
Jóladagatalið - Hvar er Völund-
ur?
Á Breiðbandinu má finna 28 er-
lendar sjónvarpsstöðvar sem
seldar eru í áskrift og þar af eru 6
Norðurlandastöðvar. Að auki
sendir Breiðbandið út flestar ís-
lensku útvarpsrásirnar ásamt 10
erlendum tónlistarrásum með
mismunandi tónlistarstefnum.
SÝN FÓTBOLTI KL. 11.45
MAN. UTD. - ARSENAL
Manchester United og Arsenal
mætast í einum af stórleikjum
ársins í ensku úrvalsdeildinni.
Þetta eru tvö af bestu liðum Evr-
ópu og fram undan er hörkuleik-
ur þar sem ekkert verður gefið
eftir. Arsenal hefur leikið mjög
vel í vetur en það sama verður
ekki sagt um Rauðu djöflana.
Sóknarleikurinn hefur ekki stað-
ið undir væntingum.
STÖÐ 2 BÍÓMYND KL. 22.00
BRAD PITT OG JULIA ROBERTS
Brad Pitt og Julia Roberts leika
aðhlutverkin í gamanmyndinni
Mexíkóinn, eða The Mexican,
sem er frá árinu 2001. Jerry Wel-
bach hafa verið settir tveir afar-
kostir. Glæpaforinginn vill að að
hann sæki ómetanlega byssu til
Mexíkós og kærasta Jerrys vill að
hann gerist löghlýðinn borgari.
15.03 100%
16.00 Geim TV
16.30 Ferskt
17.02 Íslenski Popp listinn
19.02 XY TV
21.02 100%
12.30 Mótor (e)
13.00 Tvöfaldur Jay Leno (e)
14.45 Heiti Potturinn (e)
15.30 Spy TV (e)
16.00 Djúpa laugin (e)
17.00 Survivor 5 (e)
18.00 Fólk - með Sirrý (e)
19.00 First Monday (e)
20.00 Jamie Kennedy Experiment
Jamie Kennedy er uppi-
standari af guðs náð en
hefur nú tekið til við að
koma fólki í óvæntar að-
stæður og fylgjast með
viðbrögðum þeirra. Og allt
að sjálfsögðu tekið upp á
falda myndavél.
20.30 Everybody Loves Raymond
Ray og Debra eru venjuleg
hjón sem búa í úthverfi en
það er líka það eina venju-
lega við þau. Foreldrar Ray
og bróðir búa nefnilega á
móti þeim og þar sem þau
eru, þar er fjandinn laus.
21.00 Popppunktur Popppunktur
er Fjölbreyttur og
skemmtilegur spurninga-
þáttur þar sem popparar
landsins keppa í popp-
fræðum.Umsjónarmenn
þáttarins eru þeir Felix
Bergsson og Gunnar
Hjálmarsson (dr.Gunni).
22.00 Law & Order CI (e) Í þess-
um þáttum er fylgst með
störfum lögregludeildar í
New York en einnig með
glæpamönnunum sem
hún eltist við Áhorfendur
upplifa glæpinn frá sjónar-
horni þess sem fremur
hann og síðan fylgjast þeir
með refskákinni sem hefst
er lögreglan reynir að
finna þá.
22.50 Law & Order SVU (e)
23.40 Tvöfaldur Jay Leno (e) Sjá
nánar á www.s1.is
Við tækið
Ég glápi, þess vegna er ég til
H a u k u r G u l l s m i ð u r
S m á r a l i n d
Íslensk-ítölsk skartgripahönnun og smíði
Rooney Arledge allur:
Breytti
bandarískri
fréttaumfjöllun
FÓLK Bandaríski sjónvarpsmaður-
inn og þáttaframleiðandinn Roon-
ey Arledge lést úr krabbameini
síðastliðinn fimmtudag. Arledge
er talinn hafa breytt frétta- og
íþróttaumfjöllun í bandarísku
sjónvarpi þegar hann skapaði
þætti á borð við Monday Night
Football, Nightline og 20/20 á sjö-
unda áratugnum. Þeir tveir síðar-
nefndu hafa meðal annars verið
sýndir á Skjá einum. Hann kom
einnig sjónvarpsfólki á borð við
Ted Koppel, Barbara Stewart og
Diane Sawyer í sviðsljósið. ■