Fréttablaðið - 11.12.2002, Side 6
6 11. desember 2002 MIÐVIKUDAGUR
VIÐSKIPTI
VEISTU SVARIÐ?
Svörin eru á bls. 31
1.
2.
3.
Jimmy Carter hlaut friðarverð-
laun Nóbels í gær. Hver hlaut
friðarverðlaunin í fyrra?
Hvaða skáld hlaut íslensku
bjartsýnisverðlaunin í ár?
Hvað heitir nýr fjármálaráðherra
Bandaríkjanna?
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 84.33 -0.18%
Sterlingspund 133.43 0.17%
Dönsk króna 11.51 0.14%
Evra 85.46 0.14%
Gengisvístala krónu 127,45 0,09%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 316
Velta 3.413 milljónir
ICEX-15 1.322 0,16%
Mestu viðskipti
Fjárfest.fél. Straumur hf. 378.395.891
Kaupþing banki hf. 355.302.336
Vátrygg.fél. Íslands hf. 188.227.500
Mesta hækkun
Íslenskir aðalverktakar hf. 8,62%
Þorbjörn Fiskanes hf. 5,66%
Vinnslustöðin hf. 5,00%
Mesta lækkun
SR-Mjöl hf. -4,23%
Jarðboranir hf. -4,05%
Marel hf. -1,67%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8501,4 0,3%
Nasdaq*: 1387,2 1,5%
FTSE: 3927,2 -0,2%
DAX: 3320,9 0,5%
Nikkei: 8804,5 -0,3%
S&P*: 896,4 0,5%
WASHINGTON, AP George W. Bush
Bandaríkjaforseti ætlar að hressa
upp á ímynd sína í efnahagsmálum
með því að skipta um flesta helstu
lykilmenn sína í þeim málum.
John W. Snow er tekinn við
embætti fjármálaráðherra í stjórn
Bandaríkjanna af Paul O’Neill,
sem sagði af sér í síðustu viku.
O’Neill þótti einum of heiðarlegur í
starfi og missti út úr sér eitt og
annað sem ekki var til þess fallið
að treysta trú Bandaríkjamanna á
efnahagsmálum eða efnahags-
stefnu forsetans.
Bæði O’Neill og Larry Lindsey,
helsti efnahagsráðgjafi forsetans,
voru beðnir að segja af sér á föstu-
daginn var. Ekki er enn vitað hver
kemur í staðinn fyrir Lindsey.
Snemma í síðasta mánuði hættu
þrír aðrir embættismenn, sem all-
ir voru háttsettir í efnahagsmál-
um. Þetta voru þeir Harvey Pitt,
yfirmaður bandaríska verðbréfa-
eftirlitsins SEC, Robert Herdman,
yfirendurskoðandi hjá SEC, og
William Webster, yfirmaður eftir-
litsnefndar með endurskoðunar-
málum.
Demókratar segja þessi manna-
skipti til marks um að stefna
stjórnarinnar í efnahagsmálum
hafi verið í molum. ■
VIÐSKIPTI Sænska fjármálaeftirlit-
ið hefur samþykkt yfirtöku Kaup-
þings á sænska bankanum J.P.
Nordiska. Þar með er ekkert því
til fyrirstöðu að skrá Kaupþing í
kauphöllinni í Stokkhólmi. Í
næstu viku munu þau 86% hlut-
hafa J.P. Nordiska sem tóku til-
boði Kaupþings fá afhent bréf í
félaginu. Við það verða hluthafar
Kaupþings orðnir sextán þúsund.
Í framhaldi af því munu við-
skipti hefjast með bréf Kaupþings
á sænska markaðnum. Dagsetn-
ing verður ákveðin í samráði við
sænsku Kauphöllina.
Sigurður Einarsson, forstjóri
Kaupþings, segir yfirtökuna gefa
Kaupþingi sterka stöðu á sænska
markaðnum. „Kaupþing færist
nær því markmiði að gera Norð-
urlönd að heimamarkaði sínum.“
Hann segir mikilvægt fyrir
starfsmenn fyrirtækjanna að efla
bankann og skila hluthöfum góðri
ávöxtun. J.P. Nordiska bankinn
verður nú rekinn sem dótturfélag
Kaupþings. Bréfin verða áfram
skráð í kauphöllinni í Stokkhólmi,
þar sem enn eru 14% hluthafa
sem ekki hafa tekið yfirtökutil-
boðinu. ■
DÓMSMÁL Þrír menn játuðu pen-
ingafals í Héraðsdómi Reykjavík-
ur í gær. Dómari sagði þá mega
vænta skilorðsbundins fangelsis-
dóms.
Höfuðpaurinn, sem er 27 ára,
sagðist hafa keypt sér tölvuprent-
ara og -skanna í
vor. Hann hafi eðli-
lega viljað prófa
möguleika þessara
nýju hluta með ein-
hverju flóknu
prentverki. „Mér
datt í hug pening-
ar,“ sagði hann.
Maðurinn sagðist ekki hafa ætl-
að sér að koma fölsuninni í um-
ferð. Hann hafi misst dómgreind-
ina þegar hann reykti hass í boði
kunningja síns. Sá hafi viljað nota
fölsuðu peningana og fengið leyfi
sitt til þess á eigin ábyrgð. Sjálfur
sagðist prentaraeigandinn síðan
hafa sofnað vímusvefni.
Kunninginn, sem er 23 ára,
fékk sextán fimm þúsund krónu
seðla. Níu seðlum framseldi hann í
verslunum og veitingahúsum
fyrstu fimm dagana í júní. Hann
er einnig ákærður fyrir að hafa átt
tæp tvö grömm af hassi.
Rúmri viku eftir fyrstu fölsun-
arhrinuna heimsótti annar kunn-
ingi höfuðpaurinn, sem þá var
allsgáður að eigin sögn. Kunning-
inn bað um peningalán vegna ferð-
ar til Danmerkur. Þeir báru báðir
að höfuðpaurinn hafi þá boðið
kunningjanum að taka falsaða
peningaseðla.
Samtals útbjuggu þeir tveir 38
fimm þúsund króna seðla. Af þeim
notaði kunninginn þrjá. Átta aðra
seðla afhenti hann tveimur vinum
sínum. Þeir framseldu sinn seðil-
inn hvor en voru ekki ákærðir í
málinu.
„Ég var undir áhrifum fíkni-
efna og var búinn að vera í
nokkurn tíma,“ sagði seinni kunn-
inginn og taldi það skýringu á
þeirri „heimskulegu hugmynd“ að
falsa peninga. Í gær sagðist hann
hafa komið frá Danmörku fyrir
viku og vera á leiðinni í langtíma
áfengismeðferð í dag, miðviku-
dag:
„Ég get ekki meira. Það er kom-
inn góður tími til að byrja upp á
nýtt,“ sagði hann og svaraði
spurningu um búsetu sína þannig:
„Ég bý bara þar sem ég er þegar
ég er þar.“ Hann er nítján ára
gamall.
Höfuðpaurinn er einnig ákærð-
ur fyrir 0,13 grömm af amfetamíni
sem fundust í veski hans. Hann
sagðist ekkert kannast við efnið.
Aðspurðir sögðust falsararnir
engin áform hafa um frekari
seðlaprentun. Það „borgaði sig
ekki að gera svona hluti.“
gar@frettabladid.is
Sænska fjármálaeftirlitið samþykkir:
Kaupþing verður
skráð í Stokkhólmi
SÍÐASTI ÁFANGINN
Sænska fjármálaeftirlitið hefur samþykkt yfirtöku Kaupþings á sænska bankanum
J.P. Nordiska. Kaupþing verður í framhaldinu skráð í sænsku kauphöllinni.
Þrír menn hafa játað fölsun 54 fimm þúsund krónu seðla. Höfuðpaurinn sagðist aðeins hafa
viljað prófa nýjan tölvubúnað en síðan misst dómgreindina vegna hassneyslu. Einn maðurinn
sagðist vera heimilislaus en á leið í fíkniefnameðferð: „Ég get ekki meir,“ sagði hann.
Peningafölsun sögð
heimska í hassvímu
FIMM ÞÚSUND KRÓNU SEÐLAR Í TÖLVUSKANNA
Ungur maður keypti sér skanna og prentara. Ekki leið á löngu þar til hann var handtekinn
ásamt félögum sínum fyrir peningafals. Einn þeirra, sem er nítján ára, er heimilislaus og á
leið í meðferð: „Ég bý bara þar sem ég er þegar ég er þar.“
Vildi prófa
möguleika
prentarans og
datt í hug
peningar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Verðmerkingar:
Hrakar
milli ára
NEYTENDAMÁL Verðmerkingum í
sýningargluggum hefur hrakað til
muna frá síðasta ári samkvæmt
könnun Samkeppnisstofnunar.
Fyrir jólin í fyrra voru verðmerk-
ingar í lagi í 57% tilfella en nú er
það hlutfall komið niður í 48%.
Það eru kaupmenn í Smáralind
sem eru duglegastir við að verð-
merkja vörur í sýningargluggum
sínum. Þar eru verðmerkingar
óaðfinnanlegar í 59% tilfella.
Í Kringlunni eru verðmerking-
ar óaðfinnanlegar í helmingi til-
fella. Niðurstaðan er slökust í
miðbæ Reykjavíkur þar sem
finna má að verðmerkingum í
55% tilfella. ■
VERÐMERKINGUM ÁBÓTAVANT
Kaupmönnum ber að verðmerkja vörur
sem stillt er fram í sýningargluggum versl-
ana þeirra. Samkeppnisstofnun getur beitt
sektum sé það ekki gert.
Bush hefur skipt um fjármálaráðherra:
Andlitslyfting í
efnahagsmálum
BUSH OG NÝI FJÁRMÁLA-
RÁÐHERRANN
Bush tilkynnti á mánudaginn að John
Snow yrði fjármálaráðherra í ríkisstjórn
Bandaríkjanna.
AP
/M
YN
D
BÍLVELTA Á AKUREYRI Jeppi
valt við Hörgárbrú norðan við
Akureyri um ellefuleytið í gær-
morgun. Töluverð hálka var
þegar óhappið átti sér stað.
Ökumaður var einn í bílnum og
slapp hann án meiðsla. Bíllinn
skemmdist hins vegar mikið og
þurfti að fjarlægja hann af
vettvangi með kranabíl.
ELDUR Í ÞVOTTAHÚSI Eldur
kom upp í þvottahúsi Fjórð-
ungssjúkrahússins á Ísafirði
um hádegisbilið í dag. Kviknaði
í þurrkara og höfðu starfsmenn
slökkt eldinn þegar slökkvilið
bar að garði. Lítið tjón varð en
reykræsta þurfti.
LÖGREGLUFRÉTTIR
FLUGLEIÐIR INN Ekki urðu mikl-
ar breytingar á úrvalsvísistölu
Kauphallar Íslands við endur-
ákvörðun hennar. Fyrirtækið
Delta féll sjálfkrafa út úr vísitöl-
unni vegna sameiningar við
Pharmaco. Flugleiðir koma í stað-
inn. Gengi félagsins hefur vaxið
verulega, en Flugleiðir féllu úr
úrvalsvísitölunni í kjölfar lækk-
unar á gengi félagsins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T