Fréttablaðið - 20.12.2002, Qupperneq 34
FUNDIR
13.00 Dr. Hörður G. Kristinson, Asst.
Professor við Háskólann í Florida,
heldur erindi um Rannsóknir á
áhrifum kolmónoxíðs og síaðs
reyks til að auka gæði og lengja
geymsluþol sjávarafurða. Fyrir-
lesturinn verður í fundarsal Rann-
sóknastofnunar fiskiðnaðarins, 1.
hæð, Skúlagötu 4, og er opinn
öllum sem áhuga hafa.
17.30 Málfundur um niðurleið efna-
hags heimsins og afleiðingar
þess verður haldinn í Pathfinder
bóksölunni, Skólavörðustíg 6b,
bakatil.
TÓNLEIKAR
21.00 Camerarctica heldur kerta-
ljósatónleika í Hafnarfjarðar-
kirkju en hópurinn hefur frá árinu
1993 haldið slíka tónleika síðustu
dagana fyrir jól. Tónleikarnir eru
um klukkustundar langir og í lok
þeirra verður að venju leikinn
jólasálmurinn „Í dag er glatt í
döprum hjörtum“ eftir Mozart.
23.00 Tuttugustu og fjórðu jólasöngvar
Kórs Langholtskirkju verða
haldnir í Langholtskirkju. Kórinn
býður tónleikagestum upp á
jólasúkkulaði og piparkökur í hléi
en hefð hefur skapast fyrir því hjá
mörgum að koma í Langholts-
kirkju og hlusta á falleg jólalög
eftir búðarráp kvöldsins.
23.59 Jóel Pálsson spilar lög af plötunni
Septett á Grandrokk. 1000 krónur
inn.
SKEMMTANIR
23.00 Breakbeat.is heldur dansiball á
Flauel, Grensásvegi 7. Fram koma
dj Alley Cat, dj Reynir & dj Krist-
inn, dj Frímann & dj Arnar. VJ Anti
Aliaz sér um sjónræna skemmt-
un.
Buff spilar á Hótel Egilsbúð, Neskaup-
stað.
Land og synir spila á Players, Kópavogi.
Upplyfting spilar á Café Catalinu.
Valíum spilar á Ara í Ögri.
Xtravaganza - með Dj Lisa Loud verð-
ur á Broadway. Aðgangseyrir er 1.800 kr.
SÝNINGAR
Birgir Rafn Friðriksson heldur sýning-
una Án samhengis - allt að klámi í
Café Presto, Hlíðasmára 15, Kópavogi.
Birgir sýnir að þessu sinni 34 þurrpastel-
myndir unnar á árinu 2001 og er þetta
þriðja einkasýning hans á árinu. Sýning-
in stendur út janúar 2003 og er opin á
opnunartíma Café Presto, 10-23 virka
daga og 12-18 um helgar.
Myndlistasýning Bryndísar Brynjars-
dóttur, Elsu Soffíu Jónsdóttur, Hilmars
Bjarnasonar og Þórdísar Þorleiksdótt-
ur stendur nú yfir í Bankastræti 5 (áður
Íslandsbanki). Sýningin er opin mánu-
daga-þriðjudaga kl. 13-18 og stendur til
23. desember.
Listakonan Vera Sörensen heldur sýn-
inguna „Töfrandi landslag“ í Gallerý Veru
að Laugavegi 100. Sýningin er opin frá
11 til 18 og stendur út desember.
Sýning Kristjáns Jónssonar myndlistar-
manns stendur yfir í galleríi Sal á Hverf-
isgötu 39. Þar sýnir Kristján, sem nam
grafík og málaralist í Barcelona, um tutt-
ugu málverk sem ýmist eru unnin með
blandaðri tækni eða olíulitum. Sýningin
er opin daglega frá kl. 17 til 19.
Ingólfur Júlíusson ljósmyndari stendur
fyrir sýningunni Grænland - fjarri, svo
nærri í Reykjavíkurakademíunni, 4.
hæð. Sýningin er opin virka daga frá 9-
17 og stendur til 31. janúar.
Sýning á útsaumuðum frummyndum
Elsu E. Guðjónsson úr bók hennar
Jólasveinarnir 13 stendur yfir í Bóka-
safni Kópavogs. Sýningin er opin á opn-
unartíma safnsins og lýkur 6. janúar.
Í galleríi Halla rakara, Strandgötu 39,
Hafnarfirði, gegnt Hafnarborg, sýnir Árný
Birna Hilmarsdóttir landlagsmyndir
unnar í gler. Hún tekur einnig þátt í al-
þjóðlegu sýningunni Samtök Íslands í
neðri sölum Hafnarborgar. Sýningin
stendur til 22. desember.
Magnús Guðjónsson og Gunnar Geir
sýna í húsi Gráa kattarins, Hafnargötu
18 í Keflavík. Magnús sýnir verk sem
unnin eru í grjót og smíðajárn. Gunnar
Geir sýnir málverk, teikningar og lág-
myndir frá ýmsum tímabilum. Sýningin
stendur út desember og verður opin frá
kl. 14 til 18 alla daga nema sunnudaga.
Einar Hákonarson og Óli G. Jóhanns-
son sýna verk sín í Húsi málaranna við
Eiðistorg. Í nýjum sýningarsal í Húsi mál-
aranna sýna Bragi Ásgeirsson, Einar
Þorláksson, Guðmundur Ármann, Jó-
hanna Bogadóttir og Kjartan Guðjóns-
son. Sýningin stendur til 23. desember
og er opin frá 14 til 18 fimmtudaga til
sunnudaga.
Sýning á frummyndum Brians Pilk-
ington úr bókinni Jólin okkar stendur
yfir í Hafnarborg. Sýningin stendur til 22.
desember.
Guðjón Ketilsson sýnir á myndvegg
skartgripaverslunarinnar Mariellu á
Skólavörðustíg 12. Sýningin stendur til
5. janúar.
Í hers höndum er yfirskrift á sýningu
sem stendur yfir í Borgarskjalasafni
Reykjavíkur, í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15,
6. hæð. Sýningin er opin alla daga
klukkan 12-17 og stendur til 2. febrúar.
Hrafnkell Birgisson hönnuður heldur
sýningu á verkum sínum í Kaffitári,
Bankastræti 8. Sýningin er opin frá 7.30
til 18.00 og stendur til 10. janúar.
Sýningin Reyfi stendur yfir í Gallerí
Skugga, Hverfisgötu 39. Myndlistarkon-
urnar Anna Þóra Karlsdóttir og Guðrún
Gunnarsdóttir vinna saman undir nafn-
inu Tó-Tó og á sýningunni sýna þær
flókareyfi úr lambsull. Sýningin stendur
til 22. desember og er opin alla daga
nema mánudaga frá kl. 13-17.
Sýning á málverkum Aðalheiðar Val-
geirsdóttur stendur yfir í Hallgríms-
kirkju í Reykjavík. Á sýningunni eru mál-
verk unnin á þessu ári sérstaklega fyrir
sýninguna í kirkjunni. Viðfangsefnið er
Lífið, tíminn og eilífðin. Sýningin í Hall-
grímskirkju er haldin í boði Listvinafé-
lags Hallgrímskirkju og stendur til loka
febrúarmánaðar.
Sýningin Heimkoman eða: heimurinn
samkvæmt ART stendur yfir í Listasafni
Reykjavíkur - Kjarvalsstöðum. Sýningin
samanstendur af málverkum og ljós-
myndum danska myndlistarmannsins
Martin Bigum frá árunum 1997-2002.
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir sýnir smá-
myndir og skúlptúra sem unnin eru í
anda jólanna í Kompunni, Kaupvangs-
stræti 23, Listagili á Akureyri. Sýningin
stendur til 23. desember og er opin alla
daga frá klukkan 14 til 18.
Í Hafnarborg stendur yfir sýningin
“Sambönd Íslands“, alþjóðleg sýning
með þátttöku erlendra listamanna sem
hafa heimsótt Ísland og íslenskra lista-
manna búsettra erlendis. Sýningin
stendur til 22. febrúar.
Samsýning Bryndísar Jónsdóttur, Ásu
Ólafsdóttur, Kristínar Geirsdóttur,
Magdalenu Margrétar Kjartansdóttur
og Þorgerðar Sigurðardóttur, Samspil,
stendur yfir í Hafnarborg. Sýningin er
opin alla daga nema þriðjudaga frá kl.
11 til 17 og henni lýkur 22. desember.
Lína Rut Wilberg sýnir olíumálverk á
Café Presto, Hlíðarsmára 15, Kópavogi.
Opið 10-23 virka daga og 12-18 um
helgar.
Sýningin Þetta vilja börnin sjá er haldin
í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.
Sýndar verða myndskreytingar úr nýút-
komnum barnabókum. Sýningunni lýkur
6. janúar 2003.
Hildur Margrétardóttir myndlistarkona
sýnir nokkur óhlutbundin málverk á
Mokka-kaffi. Sýningin stendur til 15. jan-
úar.
Sýningin Milli goðsagnar og veruleika
er í Listasafni Reykjavíkur. Sýningin
kemur frá Ríkislistasafni Jórdaníu í
Amman og er ætlað að varpa ljósi á
heim araba.
Sýning á nokkrum verkum Guðmundar
Hannessonar ljósmyndara stendur yfir
í Gallerí Fold. Sýningin nefnist Reykja-
víkurminningar en myndirnar tók Guð-
mundur um miðja síðustu öld í Reykja-
vík.
Inga Svala Þórsdóttir sýnir Borg í Lista-
safni Reykjavíkur. Inga Svala fjallar um
og endurvekur draumsýnina um hið full-
komna samfélag. Hún leggur fram hug-
mynd að milljón manna borgarskipulagi
í Borgarfirði og á norðanverðu Snæfells-
nesi.
Hrafnhildur Arnardóttir sýnir „Shrine of
my Vanity“ sem útleggst á íslensku
„Helgidómur hégóma míns“ í Gallerí
Hlemmi. Leiðarstef sýningarinnar er hið
svokallaða IVD (intensive vanity dis-
order) eða hégómaröskun en það heil-
kenni verður æ algengara meðal þeirra
sem temja sér lífsstíl Vesturlandabúa.
Kyrr birta - heilög birta er heitið á sýn-
ingu sem stendur yfir í Listasafni Kópa-
vogs. Sýningarstjóri er Guðbergur Bergs-
son.
Stærsta sýning á íslenskri samtímalist
stendur yfir í Listasafni Íslands. Sýnd
eru verk eftir um 50 listamenn sem
fæddir eru eftir 1950 og spannar sýning-
in árin 1980-2000.
Veiðimenn í útnorðri er yfirskrift á sýn-
ingu sem Edward Fuglö heldur í Nor-
34 20. desember 2002 FÖSTUDAGUR
FÖSTUDAGUR
20. DESEMBER
hvað?
hvar?
hvenær?
Sjóðheitur og smitandi djass!
„Þessi diskur er einstaklega vel heppnaður.”
(Vernharður Linnet, Mbl.)
Tómas R. Einarsson
Vönduð
karlmannsúr
LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900
www.michelsen.biz
Kíktu á úrvalið á
Jólasöngvar, súkkulaði og piparkökur:
Hátíðleg stemning
að loknum jólainnkaupum
TÓNLEIKAR Jólasöngvar Kórs
Langholtskirkju hafa fyrir löngu
fest sig í sessi sem fastur liður í
jólaundirbúningnum. Þeir verða
haldnir í tuttugasta og fjórða sinn
um helgina. Jón Stefánsson kór-
stjóri segir tónleikana fyrst hafa
verið haldna í Landakotskirkju
árið 1978. „Þetta var í raun í
fyrsta skipti sem slíkir tónleikar
voru haldnir. Hugmyndin að baki
þeim var að gefa fólki kost á að
vinda ofan af sér eftir búðarápið
síðasta föstudaginn fyrir jól. Þess
vegna varð Landakotskirkja fyrir
valinu. Tónleikarnir urðu svo vin-
sælir og eru nú haldnir þrjú
kvöld í röð.“
Langholtskirkja var ekki til
á þessum tíma en fyrstu tón-
leikarnir voru haldnir þar í
kringum 1980. „Þá komst sú
hefð á að bjóða gestum heitt
kakó og piparkökur í hléinu.
Ástæðan var nú einfaldlega sú
í upphafi að kirkjan var enn
glerlaus, þannig að við horfð-
um út um gluggana beint á
stjörnurnar. Það var um 14
stiga frost og það var því sung-
ið þangað til öllum var orðið
kalt. Þá var farið í safnaðar-
heimilið og fólk yljaði sér með
kakói og svo var haldið áfram
að syngja.“
Jón segir mikla stemningu
ríkja á tónleikunum. „Við setj-
um upp eins mörg sæti og við
mögulega getum alls 550 og
það er alltaf alveg pakkað.
Sama fólkið kemur aftur ár eft-
ir ár og margir hafa haft á orði
við mig að jólin byrji ekki fyrr
en búið sé að halda tónleikana.“
Tónleikarnir verða teknir
upp og hugmyndir eru uppi um
að gefa þá út á næsta ári þegar
25 ár eru liðin síðan kórinn hélt
fyrstu jólasöngvana og jafn-
framt 50 ára afmæli kórsins. ■
KÓR LANGHOLTSKIRKJU
Syngur meðal annars syrpu af jólalögum sem útsett eru af Magnúsi Ingimarssyni fyrir
kórinn þar sem Kjartan Valdemarsson, Pétur Grétarsson og Jón Sigurðsson sjá um létta
jasssveiflu.
Síðumúla 3-5
H
e
r
r
a
n
á
t
t
f
ö
t
Blóm og
gjafavara
Jólatré á góðu verði
Öðruvísi blómabúð
Dalvegi 32, s. 564 2480, www.birkihlid.is