Fréttablaðið - 10.01.2020, Page 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —8 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 1 0 . J A N Ú A R 2 0 2 0
HEKLA · Laugavegi 170 · www.hekla.is
Kíktu við á morgun milli kl. 12 & 16
Fjórar frumsýningar, kynningar og forsölur
VIÐSKIPTI Fasteignaþróunarfélagið
Íslenskar fasteignir, í samstarfi við
hóp fjárfesta, áformar að reisa allt
að eitt hundrað herbergja hótel í
Nesvík á Kjalarnesi. Áformin voru
kynnt á fundi skipulags- og sam-
gönguráðs Reykjavíkurborgar fyrr
í vikunni en á fundinum var sam-
þykkt að kynna lýsingu að nýju
deiliskipulagi fyrir landið.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er Eggert Þór Dagbjarts-
son, sem fer fyrir bandaríska fjár-
festingafélaginu Equity Resource
Investments, í hópi þeirra fjárfesta
sem koma að verkefninu.
Eggert Þór fjárfesti sem kunnugt
er í félagi sem stendur að byggingu
fimm stjörnu Marriott Edition-
hótels sem rís nú við hlið Hörpu í
miðbæ Reykjavíkur, auk félags sem
reisir lúxusíbúðir í Austurhöfn við
hliðina á hótelbyggingunni, en
Íslenskar fasteignir hafa umsjón
með báðum verkefnunum. Ekki
fæst uppgefið hvaða fjárfestar, auk
Eggerts, koma að hótelverkefninu á
Kjalarnesi. Ekki liggur heldur fyrir
hver áætlaður kostnaður við upp-
bygginguna sé.
„Okkar hugmyndir eru þær að
þarna verði reist hótel með lág-
stemmdu yfirbragði sem muni falla
vel að landinu,“ segir Gunnar Thor-
oddsen, stjórnarformaður Íslenskra
fasteigna, um áformin.
„Hótelið yrði þá byggt og hannað
með hliðsjón af náttúru svæðisins
sem er alveg einstök. Upplifun gesta
yrði þá að þeir væru í ósnortinni
náttúru en samt í nágrenni við
höfuðborgina,“ bætir hann við.
Gunnar tekur þó fram að hug-
myndir um verkefnið séu enn á
frumstigi. Fyrstu skref felist í gerð
nýs deiliskipulags fyrir landið.
Fram kemur í tillögu að skipu-
lagslýsingu, sem Plúsarkitektar
hafa unnið fyrir Íslenskar fasteignir
og lögð var fram á fyrrnefndum
fundi skipulags- og samgöngu-
ráðs, að auk hótels sé áformað að
byggja tólf stakstæð hús á landinu
sem yrðu þá leigð út sem gisti-
rými og þjónustuð af hótelinu.
– kij
Fjárfestar áforma hótel á Kjalarnesi
Áform eru uppi um að byggja allt að eitt hundrað herbergja hótel í Nesvík á Kjalarnesi. Eggert Þór Dagbjartsson, sem fjárfesti í
Marr iott-hótelinu við Hörpu, kemur að verkefninu ásamt fleiri fjárfestum. Gert er ráð fyrir að yfirbragð hótelsins verði lágstemmt.
Okkar hugmyndir
eru þær að þarna
verði reist hótel með lág-
stemmdu yfirbragði sem
muni falla vel að
landinu.
Gunnar
Thoroddsen,
stjórnarformaður
Íslenskra fasteigna
Þótt ekki blési byrlega við Reykjavíkurhöfn í gær og gengi á með dimmum éljum, féll mönnum þó ekki verk úr hendi og að ýmsu var að hyggja eins og oftast. Eitt þeirra verkefna sem leysa
þurfti var að hreinsa sjóinntök á togaranum Tasermiut sem lá bundinn við bryggjukantinn. Það gerði kafarinn á myndinni með dyggri aðstoð félaga síns. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK