Fréttablaðið - 10.01.2020, Page 2

Fréttablaðið - 10.01.2020, Page 2
Veður 13-20 m/s og slydda eða rigning sunnan- og austanlands. Vaxandi norðaustanátt og hríðarveður á Vestfjörðum, 18-23 m/s um kvöldið, en annars víða hægari vindar og úrkomuminna. SJÁ SÍÐU 20 Allsherjaratkvæðagreiðsla Tillögur uppstillingarnefndar og stjórnar Verkalýðsfélagsins Hlífar um stjórn, skoð- unarmenn reikninga, stjórn sjúkrasjóðs og stjórn orlofsheimilasjóðs félagsins fyrir árið 2020, liggja frammi á skrifstofu Hlífar frá og með 10. janúar 2020. Kosið er samkvæmt A-lið 22. gr. laga Hlífar í eftirtaldar stöður: 1. Formann, ritara og tvo meðstjórnendur til tveggja ára. 2. Tvo varamenn í stjórn til tveggja ára. 3. Tvo félagslega skoðunarmenn reikninga og einn til vara til eins árs. 4. Stjórn sjúkrasjóðs, formann, varaformann og ritara til eins árs og jafn marga til vara. 5. Stjórn orlofsheimilasjóðs, formann, varaformann og ritara til eins árs og jafn marga til vara. Öðrum tillögum ber að skila á skrifstofu Hlífar, Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfirði, fyrir kl. 16:00 föstudaginn 17. janúar 2020 og er þá framboðsfrestur útrunninn. Til þess að bera fram lista þarf skrifleg meðmæli eða stuðning 1/10 hluta fullgildra félagsmanna, þó ekki fleiri en 250. Kjörstjórn Verkalýðsfélagsins Hlífar Beðið eftir betri tíð MENNING Það er ekki á hverjum degi sem dæmdur hryðjuverka- maður kemur opinberlega fram á Íslandi til að ræða reynslu sína. Jake Conroy sat í alríkisfangelsi í Bandaríkjunum fyrir hryðjuverka- starfsemi, eitthvað sem hann segir fráleitt. Hann er nú hér á landi til að ræða kvikmyndina The Animal People, sem fjallar að hluta til um hann sjálfan. Myndin var sýnd í Bíói Paradís í gærkvöldi þar sem hann hélt erindi, á morgun vonast hann til að halda erindi á Akureyri ef veður leyfir. Hann verður svo aftur í Bíói Paradís á sunnudaginn. Hann byrjaði sem dýraverndun- araðgerðasinni á tíunda áratugnum. „Ég tók tólf ár þar sem ég fékk ekki launaseðil, það var eitthvað sem maður gat á tvítugsaldri og brann fyrir málstaðnum,“ segir Jake. Hann og hópur hans, SHAC, fóru í her- ferð til að stöðva rannsóknarfyrir- tækið Huntingdon. Um er að ræða breskt stórfyrirtæki, með starfsemi í Bandaríkjunum, sem sérhæfir sig í að prófa vörur annarra fyrirtækja á dýrum. „Þetta er skelfileg starfsemi. Allt frá því að láta ketti og kanínur innbyrða ofnhreinsi yfir í að gefa þeim viagra. Eitt dæmi var þegar það var afhjúpað að þeir hefðu fót- brotið tugi hunda til að prófa bein- þynningarlyf,“ segir Jake. Í stað þess að mótmæla fyrir utan höfuðstöðvar Huntingdon þá beindi hópurinn spjótum sínum að fjárfestum, endurskoðendum og öðrum sem höfðu með fjármögnun fyrirtækisins að gera. „Það endaði með því að breska ríkið þurfti að bjarga fyrirtækinu frá gjaldþroti.“ Fór af stað umfangsmikil aðgerð bandarísku alríkislögreglunnar á hópnum. Hryðjuverkalög vestan- hafs ná yfir aðgerðasinna sem beina spjótum sínum að fyrirtækjum sem hafa með dýr að gera og má ekki valda þeim skaða sem kostar þau meira en 10 þúsund dali. Þar sem SHAC var á netinu þá var hægt að dæma Jake í fangelsi fyrir hryðju- verk árið 2006. Sat hann inni í alríkisfangelsi í 38 mánuði og svo hálft ár á áfangaheimili. Það hefur tekið hann langan tíma að takast á við andlegar af leiðingar vistar- innar. „Það er bara að passa sig að láta ekki berja sig,“ segir Jake. Einn úr hópnum situr enn á bak við lás og slá. Heimildarmyndin The Animal People snýst um mál SHAC-hóps- ins. Myndin er framleidd af stórleik- aranum Joaquin Phoenix. „Hann er mjög indæll og auðmjúkur maður,“ segir Jake. Jake starfar nú hjá samtökum sem berjast fyrir verndun regnskóga ásamt fleiru. Hann viðurkennir að atvinnutækifærin séu minni eftir að hann var dæmdur. „Þetta var mikil- væg barátta, ég myndi fara í hana aftur. Breyta nokkrum hlutum og vonandi fara þá ekki í fangelsi, en þetta var þess virði.“ arib@frettabladid.is Hryðjuverkamaður í heimsókn hér á landi Jake Conroy sat í bandarísku alríkisfangelsi fyrir hryðjuverk. Glæpurinn fólst í heimasíðugerð fyrir samtök dýraverndunaraðgerðasinna og sat hann í fang- elsi í 42 mánuði. Hann hyggst kynna nýja heimildarmynd hérlendis. Jake Conroy hlaut fjögurra ára dóm árið 2006 . FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Þetta var mikilvæg barátta, ég myndi fara í hana aftur. HEILBRIGÐISMÁL Sjálfstætt starf- andi sjúkraþjálfarar munu rukka eftir eigin gjaldskrám eftir helgi, en þá hættir stéttin að starfa sam- kvæmt rammasamningi sem rann út í byrjun ársins 2019. Gerðardómur dæmdi í máli sjúkraþjálfara og Sjúkratrygginga Íslands rétt fyrir jól og tekur sá dómur gildi eftir helgi. Svandís Svavarsdóttir heilbrigð- isráðherra birtir í dag nýja reglu- gerð til að tryggja endurgreiðslu sjúkratryggðra sem gildir frá 12. janúar til 31. mars en reglugerðin var undirrituð 23. desember síðast- liðinn. Reglugerðin tryggir sjúklingum endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjúkraþjálfara þótt þeir starfi án samnings. Endurgreiðsl- an miðast við gjaldskrá SÍ og mun stofnunin ekki greiða önnur eða hærri gjöld en kveðið er á um í gjaldskrá SÍ. „Meðan sjúkraþjálfarar hækka ekki verðskrá sína umfram gjald- skrá stofnunarinnar verður hlut- fall endurgreiðslu til sjúklinga það sama og verið hefur,“ segir í svari heilbrigðisráðuneytisins við fyrir- spurn Fréttablaðsins. Sjúkraþjálf- arar munu eflaust hækka verðskrár sínar eftir helgi miðað við vísitölur en það fer eftir aðstæðum á hverri stofu fyrir sig. Samninganefnd sjúkraþjálfara og SÍ fundar á mánudag áður en samn- ingaviðræður hefjast af alvöru. Aðalmálefnið fram undan verður fyrirhugað útboð sem sjúkraþjálf- arar hafa gagnrýnt harðlega. – ilk Tímabundin lausn í máli sjúkraþjálfara Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráð- herra Flugsamgöngur á landinu öllu hafa farið úr skorðum undanfarna daga. Það var nöturlegt um að litast á Reykjavíkurf lugvelli þegar ljósmyndari Fréttablaðsins leit við eftir hádegi í gær. Flugvélar Air Iceland Connect stóðu þar hreyfingarlausar í bylnum og biðu þess að veðri slotaði. Það gekk síðan eftir síðdegis þegar loks kom grænt ljós á f lugferðir. Einhverjar seinkanir urðu og ferð til Ísafjarðar var af lýst. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK MENNTAMÁL Háskólaráð samþykkti á fundi sínum í gær að tilnefna Jón Atla Benediktsson, núverandi rekt- or, til áframhaldandi setu til næstu fimm ára. Jón Atli hefur gegnt emb- ætti rektors frá árinu 2015. Embættið var auglýst laust til umsóknar í desember og umsókn- arfrestur rann út 3. janúar síðast- liðinn. Fram kemur að Jón Atli hafi einn sótt um embættið. Sérstök undirnefnd háskólaráðs metur hvort umsækjendur um starf rektors séu hæfir. Ráðherra mun skipa í embættið á næstunni. – bþ Jón Atli áfram rektor til 2025 Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands. 1 0 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.