Fréttablaðið - 10.01.2020, Blaðsíða 19
Neyslumynstur okkar tekur stöðugum breytingum og hefur neysla jurtafæðis á
kostað dýraafurða aukist töluvert.
Fæði án allra dýraafurða getur
verið afar heilsusamlegt en þó þarf
að huga sérstaklega að ákveðnum
næringarefnum sem gæti skort
í þess háttar fæði. Í f lestum til-
fellum geta grænkerar uppfyllt
næringarþörf sína en nauðsynlegt
er að kynna sér vel hvaða ann-
marka þetta fæði getur haft með
tilliti til þarfa líkamans.
Grænmetisætur/vegan
Þeir sem sneyða hjá öllum
dýraafurðum þurfa að hafa augun
sérstaklega vel opin fyrir því að
fæðan innihaldi nægilegt magn af
próteinum, járni, sinki, kalki, joði,
B12 vítamíni og D-vítamíni. D-
vítamín þurfa allir að taka á bæti-
efnaformi, alltaf, en hin efnin má
finna í ýmsum matvælum, hvort
sem það er hluti af náttúrulegu
innihaldi vörunnar eða viðbætt.
Hvað próteinið varðar þá finnast
þau í f lestum fæðuflokkum en
mælt er með því að baunir, sem
eru afar próteinríkar, séu notaðar
í jurtafæðinu í svipuðum mæli og
kjöt og fiskur eru í blönduðu fæði.
B12 vítamínskortur
Fjöldi fólks sem borðar matvæli
úr öllum fæðuflokkum er ekki að
taka upp lágmarksmagn af því
B12 og járni sem nauðsynlegt er
til að viðhalda eðlilegri líkams-
starfsemi. Skortur á B12 getur
verið vegna einhæfrar fæðu eða
vegna þess að líkaminn getur ekki
unnið það úr fæðunni. Þetta er það
vítamín sem flesta skortir á efri
árum og er það oftast vegna skorts
á efninu „Intrinsic Factor“ sem
er mikilvægt prótein, framleitt í
maganum sem sér um upptöku á
þessu lífsnauðsynlega vítamíni.
Það þýðir að þó svo að við borðum
dýraafurðir eða tökum vítamín-
pillur, verður upptakan engin og
við lendum í skorti.
Einkenni járnskorts
Járnskortur er einn algengasti
næringarefnaskortur í heiminum
og snertir u.þ.b. 25% jarðarbúa.
Það eru þó nokkur vel þekkt og
algeng einkenni járnskorts sem
gott er að vera vakandi yfir:
n Orkuleysi
n Svimi & slappleiki
n Hjartsláttartruflanir
n Föl húð
n Andþyngsli
n Minni mótstaða gegn veikindum
n Handa- og fótkuldi
Ástæða járnskorts er oftast
vegna ónógs járns í fæðunni, blóð-
missis, áveðinna sjúkdóma eða
aukinnar járnþarfar (t.d. vegna
meðgöngu). Frásog getur líka verið
lélegt af ýmsum ástæðum en svo
eru líka margir sem fá ekki nóg
af járnríkum mat eins og rauð-
rófum, rauðu kjöti, grænu græn-
meti, baunum, hnetum, fræjum og
fleiru.
Gott er að hafa í huga að til að
frásoga járn úr fæðunni, hjálpar
til að taka C-vítamín þar sem það
eykur frásog. Að sama skapi skal
forðast mjólkurvörur þar sem
þær hindra eða draga verulega úr
upptöku.
Joðskortur og skjaldkirtill
Vegna breytts mataræðis mælist nú
í fyrsta sinn joðskortur á Íslandi og
er það fyrst og fremst rakið til sam-
dráttar í neyslu mjólkurvara og
fisks. Joðskortur getur verið mjög
alvarlegur og hjá börnum getur
hann valdið þroska skerðingu. Joð
hefur áhrif á skjaldkirtilsvirkni og
eru helstu einkenni skorts þreyta,
aukin þyngd og aukin næmni fyrir
kulda svo dæmi sé tekið. Það eru
ekki til margar joðuppsprettur svo
að það getur verið nauðsynlegt að
fá það úr bætiefnum, sérstaklega ef
neysla á mjólkurvörum og fiski er
undir útgefnum ráðleggingum um
mataræði.
Vegan Health frá Better You
Vegan Health er fyrsti munnúðinn
sinnar tegundar í heiminum
en með þessum munnúða fer
öll upptaka gegnum slímhúð í
munni, magaónot verða engin og
hámarksupptaka er tryggð. Þessi
blanda inniheldur:
n D3 vítamín (vegan)
n B12 (methylcobalamin & adeno-
zylcobalamin)
n Járn
n Joð
Fjórir úðar daglega gefa 5mg
af járni, 3000 ae af D-vítamíni,
6μg af B12 og 150μg af joði. Vegan
Health hentar öllum, einnig á
meðgöngu.
Fær líkaminn þinn allt sem þarf?
Vegan Health munnúðinn frá Better You er samsettur úr D-vítamíni og joði ásamt B12 og járni
fyrir þá sem eiga erfitt með upptöku þess úr fæðunni og þá sem neyta ekki dýraafurða.
Vegna breytts
mataræðis er í
fyrsta sinn farinn
að mælast joð-
skortur á Íslandi
og er það fyrst
og fremst rakið
til samdráttar á
neyslu mjólkur-
vara og fisks.
Vissir þú að:
Til framleiðslu á rauðum blóð-
kornum þarf m.a. járn, B12 víta-
mín og fólínsýru en ef skortur
er á einhverju þessara efna,
minnkar framleiðsla rauðra
blóðkorna. Við þetta minnkar
flutningsgeta þeirra á súrefni
um líkamann og frumurnar tapa
orku sem getur valdið ýmsum
líkamlegum kvillum.
Valið BESTA
NÝJA BÆTI-
EFNIÐ á Natural
& Organics í
London 2019.
Umbúðir eru
gerðar úr endur-
unnu plasti
úr sjónum og
stefna fyrir-
tækisins er að
í lok árs 2019
verði allar
umbúðir sem
fyrirtækið notar
úr kolefnis-nei-
kvæðu (carbon
negative)- eða
endurunnu
plasti og að allt
sé endurvinnan-
legt.
Þetta bætiefni inniheldur glúkósamín og
kondtrótín súlfat en þessi tvö efni hafa
reynst mörgum vel fyrir liðina.
Dagsskammtur inniheldur 1000 mg af
glúkósamíni og 200 mg af kondrótíni
ásamt engifer, túrmerik, C-vítamíni og
rósaldin (rosehips).
C -vítamín stuðlar að eðlilegri myndun
kollagens fyrir eðlilega starfsemi
brjósks.
Glucosamine
& Chondroitin
Complex
Fæst í apótekum og stórmörkuðum.
Efni sem
bæklunarlæknar
mæla með
Nú á bætiefnaformi
KYNNINGARBLAÐ 3 F Ö S T U DAG U R 1 0 . JA N ÚA R 2 0 2 0 VEGANÚAR