Fréttablaðið - 10.01.2020, Page 24
Spennandi lína af vegan vörum
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Hinn reyndi sérfræðingur dr. Michael Greger frá Banda-ríkjunum er væntanlegur á
ráðstefnuna í maí, sem Elín Sandra
Skúladóttir heldur með Ingibjörgu
Elísabetu Garðarsdóttur vinkonu
sinni. Michael Greger er læknir
sem hefur gefið út tvær bækur
um plöntumiðað mataræði. „Dr.
Greger er mjög virkur á samfélags-
miðlum og birtir rannsóknir og
heldur fyrirlestra og það má segja
að hann sé einn af þeim sem er
hvað best að sér í rannsóknum á
þessu sviði,“ segir Elín.
Auk dr. Gregers verða íslenskir
fyrirlesarar á ráðstefnunni sem
verður með svipuðu sniði og sú
sem var haldin í október að sögn
Elínar. Áherslan verður þó minni
á krabbamein og hjartasjúkdóma
en fjallað verður meira um heilsu
almennt.
„Nýja bókin hans dr. Gregers
heitir How not to diet. Hún fjallar
svolítið um af hverju þyngdar-
tap er erfitt og hvernig er hægt að
grennast án þess að fara í megrun
heldur breyta bara um lífsstíl,“
segir Elín.
„Mataræðið sem dr. Greger
mælir með er hollt plöntumiðað
fæði. Hann velur hreinan óunninn
mat úr plönturíkinu. Það er komið
svo mikið af vegan vörum núna,
sem er kostur en líka ókostur.
Heilsuáhrifin verða meiri ef maður
velur sér hreinan óunninn mat,“
segir Elín.
Elín greindist með krabbamein
fyrir þremur árum og ákvað þá
að skipta yfir í vegan fæði til að
ná betri heilsu. „Mig hafði alveg
langað að gera það áður, en ég satt
best að segja hélt ég að ég gæti það
ekki,“ segir hún.
Vildi hámarka lífslíkur sínar
„Þegar ég veiktist fór ég að skoða
möguleika mína, ég vildi hámarka
líkur mínar á að lifa sem lengst. Ég
byrjaði á að skoða ketó mataræðið.
Ég skoðaði rannsóknir sem sýndu
að það myndi lengja líf mitt, en á
sama tíma skoðaði ég rannsóknir
sem töluðu gegn því og var f ljót að
afskrifa það þegar ég bar saman
þessar rannsóknir.“
Eftir því sem Elín skoðaði meira
af rannsóknum varð niðurstaðan
hollt plöntumiðað fæði. „Þarna
er allur maturinn sem er hollur.
Fæðutegundir sem virðast hjálpa
líkamanum að verja hann fyrir
krabbameini, eins og til dæmis
jarðarber, bláber, túrmerik og
fleira. Ég sá enga ókosti við þetta
mataræði fyrir utan að ég þyrfti
mögulega að taka inn B12,” segir
Elín.
„Ég mat það þannig að ég myndi
hámarka líkur mínar á að lifa
sem lengst með því að gera þessar
breytingar.“
Breytingarnar voru ekki auð-
veldar til að byrja með að sögn
Elínar. „Sérstaklega af því ég var
ekki að nota staðgengil fyrir kjöt
eins og gervikjöt og ég hafði aldrei
eldað úr baunum. Ég hafði einu
sinni gert tófúrétt sem mér fannst
ógeðslegur þannig að ég varð að
læra allt upp á nýtt. En það lærðist
f ljótt,“ útskýrir hún.
„Núna er miklu meiri upp-
lýsingar í boði en voru bara fyrir
þremur árum þegar ég breytti um
mataræði. Mér finnst margt hafa
breyst á stuttum tíma. Ég viður-
kenni að ég var frekar óflink í eld-
húsinu og fannst alltaf ógeðslega
leiðinlegt að elda. En það breyttist
alveg eftir að ég hætti að elda úr
kjöti. Núna hef ég bara gaman af
að vera í eldhúsinu.“
Elín segist hafa upplifað mjög
jákvæðar breytingar á sjálfri
sér eftir að hún byrjaði á vegan
mataræði.
„Ég var að fara í gegnum erfiða
lyfjameðferð og skurðaðgerðir og
þetta mataræði hafði svo mikil
áhrif á meðferðina og hvernig mér
leið. Ég var svo hress eitthvað.
Þegar ég horfi til baka á þennan
tíma og geri upp meðferðina þá
finnst mér hún hafa leitt meira
gott af sér en slæmt. Þess vegna
vil ég miðla fróðleik um þetta
mataræði áfram. Ekki bara til
þeirra sem eru með krabbamein
heldur líka þeirra sem vilja ekki
fá krabbamein. Einn af hverjum
þremur Íslendingum fær krabba-
mein á lífsleiðinni svo mér finnst
gríðarlega mikilvægt að koma
þessu á framfæri.“
Upplifði mjög jákvæðar breytingar
Elín Sandra Skúladóttir ákvað að gerast vegan eftir að hafa lesið rannsóknir um heilsufarlegan ávinning þess. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Elín Sandra gerð-
ist vegan eftir að
hún fékk krabba-
mein. Í haust hélt
hún ráðstefnuna
Vegan heilsa þar
sem sérfræð-
ingar ræddu áhrif
plöntufæðis á
heilsu. Önnur ráð-
stefna er á dag-
skrá í maí.
Ég hafði aldrei
eldað úr baunum.
Ég hafði einu sinni gert
tófúrétt sem mér fannst
ógeðslegur þannig að ég
varð að læra allt upp á
nýtt. En það lærðist
fljótt.
8 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . JA N ÚA R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RVEGANÚAR