Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.01.2020, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 10.01.2020, Qupperneq 40
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000 Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Árna Helgasonar BAKÞANKAR Barack Obama lýsti ágætlega kúltúrnum á samfélags-miðlum nútímans þegar hann talaði um hvernig margir virtust líta á það sem aktívisma og framlag í baráttunni fyrir betri heimi að hnýta í aðra. Með því teldi fólk sig hafa gert gagn, gæti þá hallað sér aftur í sófanum og haldið áfram að horfa á Netflix. Eins og fyrrverandi forseti Bandaríkjanna þekkir sennilega manna best, þá er heimur- inn hins vegar flóknari en svo. Þessi orð rifjuðust upp fyrir mér þegar ég las gagnrýni í garð Stjörnu-Sævars og Andra Snæs Magnasonar fyrir að vera ekki grænmetisætur á sama tíma og þeir berðust gegn loftslags- breytingum. Sennilega eru vand- fundnir menn sem hafa lagt meira af mörkum í baráttunni fyrir umhverfið. En krafan um að vera óaðfinnanlegur er þung um þessar mundir. Ég spila reglulega körfubolta með öðrum ungmiðaldra stirðum skrifstofumönnum sem ofmeta eigin getu í íþróttinni. Mistök eru því algeng. Samherjar geta þá gert annað af tvennu, dæst og gargað ókvæðisorð eða hvatt áfram og sýnt því skilning að liðsfélaginn náði kannski ekki að troða. Þetta hefur mjög ólík áhrif. Dæs og niðurrif gerir liðsfélagana meðvitaða og setur þá í varnar- stellingar en hvatningin gefur sjálfstraust. Ekki kannski þannig að troðslurnar fari að takast en stemningin verður betri. Staðreyndin er sú að f lestir vilja láta gott af sér leiða og eru nú þegar að gera það, t.d. með minni kjötneyslu, að plokka rusl og velja raf bíl. Því miður getum við ekki bjargað heiminum ein, sama hversu langt við myndum ganga. Eigum við ekki að fagna öllu því góða sem er að gerast, viðleitninni og vitundarvakningunni frekar en að hnýta í það sem uppfyllir ekki alveg ítrustu skilyrði? Vammlaust fólk VÁ VERÐ LAYS 175 G 249 KR/STK 1423 KR/KG FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 AFGREIÐSLUTÍMI Mán.–fös. 10–18 | Lau. 11–16 www.betrabak.is STILLANLEG RÚM • HEILSURÚM OG -DÝNUR • GAFLAR • SÆNGUR • KODDAR • SVEFNSÓFAR • STÓLAR • SÆNGURFÖT, O.FL. 60%A F S L ÁT T U R A L LT A Ð ÚTSALA VEFVERSLUN www.betrabak.is OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.