Skessuhorn - 01.05.2019, Blaðsíða 1
arionbanki.is Arion appið
Nú geta allir notað
besta bankaappið*
*MMR 2018
ÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 18. tbl. 23. árg. 1. maí 2019 - kr. 750 í lausasölu
Ert Þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
Jörvagleði, menningarhátíð Dala-
manna, fór fram í liðinni viku með
fjölbreyttri dagskrá víða um hérað.
Að sögn skipuleggjenda tókst há-
tíðin með afbrigðum vel; viðburðir
vel sóttir og veðrið lék við fólk.
Meðal annars var skátamessa haldin
í Hjarðarholtskirkju, þar sem með-
fylgjandi mynd var tekin að morgni
sumardagsins fyrsta. Sjá nánar í frétt
í blaðinu í dag. Ljósm. sm.
Grásleppuaflinn undir væntingum
Það sem af er grásleppuvertíðinni
hefur fiskast nánast jafn mikið og á
sama tíma í fyrra. Alls hafði 1.940
tonnum verið landað á landinu
öllu 22. apríl síðastliðinn, en voru
1.962 tonn árið 2018. Engu að síð-
ur hafa nokkru fleiri dagar ver-
ið nýttir á yfirstandandi vertíð en
á sama tíma á síðustu vertíð. Auk
þess sem örlítið fleiri bátar eru við
veiðar nú en þá, eða tíu fleiri en
á síðasta ári. Aflabrögð teljast því
undir væntingum, að því er fram
kemur á vef Landssambands smá-
bátasjómanna.
Meðalverðið fyrir grásleppu
sem seld er á markaði er hins vegar
töluvert hærra en á síðasta ári og
hækkaði um 41% milli ára, úr 205
krónum á hvert kíló í 290 krónur.
„Það kemur því á óvart að bátum á
grásleppu hefur aðeins fjölgað um
tíu milli ára, en alls hafa 159 bátar
hafið veiðar,“ segir á vef LS.
Grásleppu hefur það sem af er
verið landað á 33 stöðum víðs veg-
ar um landið. Mestum afla hefur
verið landað á Bakkafirði, eða 182
tonnum. Á Drangsnesi hefur 174
tonnum verið landað og 168 tonn-
um á Hólmavík.
Á Vesturlandi hefur mestri grá-
sleppu verið landað á Akranesi.
Þar var búið að landa 18 tonnum
22. apríl síðastliðinn, sem er þó
umtalsvert minna en á sama tíma í
fyrra þegar 60 tonnum hafði verið
landað. Tólf tonnum hefur verið
landað í Grundarfirði samanborið
við 19 í fyrra og ellefu í Ólafsvík
samanborið við 30 í fyrra. Í Stykk-
ishólmi er búið að landa meiru en
á sama tíma á síðasta ári, fimm
tonnum en voru tvö í fyrra. Á sama
tíma á síðasta ári hafði einu tonni
af grásleppu verið landað í Rifi en
tonnin eru engin núna.
kgk
Áætlanir um þrjú stór verkefni
til undirbúnings vindorkugörð-
um eru nú á teikniborðinu í Döl-
um og Reykhólahreppi. Ef allar
þessar þrjár hugmyndir koma til
framkvæmda mun heildar raf-
orkuframleiðsla þeirra verða
allt að 410 megawött, eða upp-
undir jafn mikil orka og sam-
anlögð raforkuframleiðsla Búr-
fellsvirkjunar og Blönduvirkjun-
ar. Stærsta virkjunin hér á landi
er Kárahnúkavirkjun sem fram-
leiðir 690 MW.
Sjá nánar bls. 2
Margir vilja beisla
vindorkuna
Grásleppu landað í Stykkishólmi
síðasta sumar.
Ljósm. úr safni/ sá.
Travel West
2019-2020
Ferðablað
Vesturlands
er komið út
Hægt er að
nálgast blöð á
Markaðsstofu
Vesturlands
í Hyrnutorgi