Skessuhorn - 01.05.2019, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 20192
Skessuhorn minnir á að í dag, 1.
maí, er alþjóðlegur baráttudagur
verkafólks. Af því tilefni eru hátíð-
arhöld um allan landshlutann og
hvetjum við alla til að taka þátt.
Á morgun er spáð 8-13 m/s og
skýjað en úrkomulítið verður á
Norður- og Austurlandi. Hægari
breytileg átt suðvestanlands og
dálítil rigning. Hiti 0-7 stig, svalast
í innsveitum á Norðausturlandi.
Vægt frost um kvöldið norðan- og
austanlands. Á föstudag og laugar-
dag er spáð breytilegri átt 3-10 m/s
og yfirleitt þurrt á landinu og bjart
á köflum. Hiti 3-9 stig að deginum.
Á sunnudag og mánudag er útlit
fyrir austan- og suðaustanátt 5-13
m/s sunnanlands og dálítil væta af
og til. Hægari breytileg átt og þurrt
í öðrum landshlutum. Hiti 2-10 stig
og hlýjast á Vesturlandi.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns: „Vilt þú að Íslend-
ingar samþykki orkupakka þrjú?“
Óhætt er að segja að niðurstað-
an sé afgerandi. Mikill meirihluti,
eða 83% svarenda, svöruðu spurn-
ingunni neitandi. 12% sögðu að
við ættum að samþykkja orku-
pakka þrjú en 5% svarenda höfðu
ekki skoðun á málinu.
Í næstu viku er spurt:
Hvernig ætlar þú að
verja sumarfríinu?
Jóhanna Bergmann Þorvaldsdótt-
ir geitabóndi á Háafelli í Hvítár-
síðu og fjölskylda hennar hefur
unnið mikilvægt brautryðjenda-
starf á síðustu þrjátíu árum. Lagt
lóð á vogarskálina til að bjarga ís-
lenska geitastofninum frá útrým-
ingu. Nánar er hægt að lesa um
geitaræktun Jóhönnu í viðtali hér í
Skessuhorni. Jóhanna er Vestlend-
ingur vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Allt í sóma við
skólana
AKRANES: Föstudaginn
26. apríl síðastliðinn var lög-
regla við skólaeftirlit á Akra-
nesi. Hafði lögregla uppi eft-
irlit við Grundaskóla, Brekku-
bæjarskóla og Akrasel kl. kort-
er í átta að morgni. Þá er at-
hugað hvort börn og foreldrar
séu í bílbeltum og fylgst með
ökuhraða við skólana. Ekkert
var bókað við eftirlitið, sem
þýðir að engin mál komu upp
og allt reyndist í stakasta lagi.
Er lögregla að vonum ánægð
með það.
-kgk
Krefst fimm ára
fangelsis
AKRANES: Ákæruvald-
ið krefst fimm ára fangelsis-
dóms í máli liðlega sjötugrar
konu sem ákærð er fyrir til-
raun til manndráps. Konunni
er gefið að sök að hafa stung-
ið sambýlismann dó ttur sinn-
ar með hnífi á Akranesi 10.
nóvember síðastliðinn. Greint
er frá þessu á vef RÚV. Að-
almeðferð í málinu fór fram
á mánudag og var það dóm-
tekið í lok dagsins. Verjandi
konunnar krefst sýknu, en til
vara að hún verði sakfelld fyr-
ir líkamsárás en ekki tilraun til
manndráps. Við skýrslutöku
fyrir dómi kom fram að sak-
borning og brotaþola greinir
á um aðalatriði málsins. Mað-
urinn segir konuna hafa ráð-
ist á sig með hnífi inni í svefn-
herbergi en konan kveðst ekk-
ert kannast við að hafa geng-
ið með hníf um íbúðina. Þá
kannast hún ekki við að hafa
verið ölvuð þegar hún gætti
barnabarna sinna þennan dag,
en niðurstöður blóðprufu
benda til þess að hún hafi ver-
ið með 1,95 prómill af vínanda
í blóðinu.
-kgk
Óhætt er að segja að margir hugsi
sér gott til glóðarinnar í raforku-
framleiðslu með risavöxnum vind-
KÓÐI Í NETVERSLUN:
SUMAR
30%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
VÖRUM
OPNUNARTILBOÐ 30%
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM
1.-5. MAÍ, NÝ OG ENDURBÆTT
VERSLUN Á SMÁRATORGI
SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS
Áætlanir um þrjú vindorkuver í
Dölum og Reykhólahreppi
Heildarorkuframleiðsla á við samanlagða framleiðslu Blöndu- og Búrfellsvirkjunar
myllum. Vissulega getur vindur-
inn verið auðlind og orku hans
vilja menn nú hver í kapp við ann-
an beisla og framleiða dýrmæta raf-
orku. Sjónræn mengun fylgir þó
slíkum verkefnum og því leitast
fjárfestar nú eftir því að taka und-
ir vindorkugarða framtíðarinnar
strjálbýl svæði á landsbyggðinni.
Þrjú stór verkefni til undirbúnings
vindorkugörðum eru nú á teikni-
borðinu í Dölum og Reykhóla-
hreppi. Ef allar þessar þrjár hug-
myndir koma til framkvæmda mun
heildar raforkuframleiðsla þeirra
verða allt að 410 megawött, eða
uppundir jafn mikil orka og sam-
anlögð raforkuframleiðsla Búr-
fellsvirkjunar og Blönduvirkjun-
ar. Stærsta virkjunin hér á landi er
Kárahnúkavirkjun sem framleiðir
690 MW.
Matsáætlun fyrir
Garpsdal
Fyrst skal nefna að EM-Orka ehf.
hefur lagt fram tillögu að matsáætl-
un vegna umhverfisáhrifa allt að
130 MW vindorkugarðs í Garpsdal
í Reykhólahreppi. Tillagan er nú
aðgengileg á vef Skipulagsstofnun-
ar með athugasemdafresti til 8. maí
næstkomandi. Forathugun gefur til
kynna að svæðið í Garpsdal gæti af-
kastað allt að 130 MW orkuvinnslu,
miðað við að allt að 35 vindmyllur
verði reistar og að hæð þeirra verði
allt að 150 metrar. „Vindorkugarð-
ur í Garpsdal mun vera 16,2 millj-
arða króna fjárfesting inn í íslenska
orkugeirann,“ segir á heimasíðu
EM-Orku.
Stærsti vindorkugarður-
inn á Sólheimum
Sveitarstjórn Dalabyggðar auglýsti
í vikunni skipulags- og matslýsingu
vegna mögulegrar breytingar á að-
alskipulagi sveitarfélagsins sem snýr
að fyrirhuguðum vindorkugarði á
Sólheimum í Laxárdal. Samkvæmt
skýrslu sem verkfræðistofan Efla
hefur unnið fyrir landeigendur á
Sólheimum 1 og 2 vegna verkefnis-
ins er gert verði ráð fyrir að rúmlega
400 af 3000 ha flatarmáli jarðarinn-
ar verði skilgreint sem iðnaðarsvæði
til vindorku, en einnig til áfram-
haldandi landbúnaðar. Áætlað er að
reistar verði allt að 30 vindmyllur á
Sólheimum sem framleitt gætu allt
að 150 MW af raforku. Hæð hverr-
ar vindmyllu gæti orðið allt að 110
metrar í miðju hverfils og spaðar
munu rísa í allt að 180 metra hæð,
eða tæplega þrisvar sinnum meiri
hæð en nýlega fallinn strompur
Sementsverksmiðjunnar á Akranesi
náði. Þá er raforkan sem vindorku-
garður á Sólheimum getur framleitt,
gangi þessar fyrirætlanir eftir, nítján
sinnum meiri en heildarorkufram-
leiðsla Andakílsárvirkjunar í Borg-
arfirði, sem framleiðir 8 MW.
Með skipulags- og matslýsingu
nú er íbúum í Dalabyggð og öðrum
hagsmunaaðilum gefinn kostur á að
koma með ábendingar og athugas-
emdir sem snúa að málefnum aðal-
skipulagsins fyrir 7. júní næstko-
mandi.
Hróðnýjarstaðir einnig í
lýsingarferli
Fram kemur í gögnum Dalabyggð-
ar að lýsingarferli annars verkefnis
af svipuðu tagi sé einnig í gangi, en
það er að Hróðnýjarstöðum einn-
ig í Laxárdal. Fyrirtækið Storm
Orka ehf. hefur lagt fram tillögu
til Skipulagsstofnunar vegna mats á
umhverfisáhrifum á 80 til 130 MW
vindorkuvers að Hróðnýjarstöðum.
Í því tilfelli yrði um að ræða allt að
24 vindmyllur sem náð gætu sömu
hæð og þær sem gert er ráð fyrir að
reistar verði á Sólheimum. Fram
kemur á síðu Skipulagsstofnunar að
hægt sé að gera skriflegar athuga-
semdir við tillöguna fram til 2. maí
næstkomandi, þ.e. á morgun.
Til að tryggja aðkomu
almennings
Gerð skipulagslýsinga eins og hér
hafa verið nefndar eru hugsaðar til
að „tryggja aðkomu almennings og
hagsmunaaðila að skipulagsferlinu
á fyrstu stigum þess, auka gagnsæi,
tryggja betra upplýsingaflæði, skila
betri og markvissari skipulagsvinnu
og gefa sveitarstjórn og öðrum að-
ilum sem koma að ferlinu betri
yfirsýn allt frá fyrstu skrefum,“ eins
og segir í skýrslu Eflu um verkefnið
á Sólheimum. mm