Skessuhorn - 01.05.2019, Qupperneq 4
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 20194
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.976 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.580. Rafræn áskrift kostar 2.337 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.160 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Stuð
Sú frétt í liðinni viku sem vakti mesta athygli mína fjallaði um raforku.
Kannski ekki undarlegt í ljósi allrar þeirrar umræðu sem orðið hefur um
þriðja orkupakkann og meintan rafstreng milli landa. Við segjum frá því á
blaðsíðu 2 hér í blaðinu að þrír hópar fjárfesta undirbúa nú að sækja um
leyfi með tilheyrandi skipulagsbreytingum til að reisa vindorkuver á jafn
mörgum jörðum í Dölum og Reykhólasveit. Fjárfestar tryggja sér jarðir
þar sem byggð er lítil, upplýsingar um vindafar liggja fyrir og samgöngur
eru viðunandi.
Fallegu orðin sem valin eru fyrir slík ver eru „vindorkugarður“ og af-
urðin er „græn“ raforka. Vissulega grænni orka en þegar hún er framleidd
úr jarðefnaeldsneyti svo ekki sé nú talað um kjarnorku. Einnig grænni orka
en sú sem framleidd er með vatnsaflsvirkjunum þar sem aur safnast smám
saman fyrir í uppistöðulónum sem þannig verða aldrei afturkræf. Við sáum
einmitt hvað gerðist í uppistöðulóni Andakílsárvirkjunar og þó telst sú
virkjun lítil á allan mælikvarða dagsins í dag. Að beisla vindinn er vissulega
glæsileg framtíðarsýn svo langt sem það nær. En að kenna tugi vindmylla
við „garð“ er einhvern veginn ekki alveg að hljóma í mín eyru. Ég veit ekki
hvort fólk gerir sér almennt grein fyrir hæð þeirra vindmylla sem menn
hyggjast reisa. Flestir muna eftir skorsteininum sem felldur var í vor hjá
Sementsverksmiðjunni á Akranesi. Hann var hár, en þó ekki nema þriðj-
ungur þeirrar hæðar sem fullvaxin vindmylla af þessari gerð mun ná upp í
loftið á efri brún þess spaða sem hæst rís hverju sinni. Þetta eru náttúrlega
hvílík ferlíki að svona lágvaxinn maður eins og ég á erfitt með að ímynda
mér hæðina. Álíka útópísk hugsun og að reyna að eyða í huganum stóra
vinningnum í Eurojackpot lottóinu þegar hann telur milljarða.
Þegar kemur að staðsetningu slíkra frumskóga vindmylla ber að gæta
hagsmuna þeirra sem búa í sjónlínu frá mannvirkjunum og annarra sem
hafa bæði beinna og óbeinna hagsmuna að gæta. Slíkir hagsmunir eru stór-
ir og geri ég síst lítið úr þeim. Þessi mannvirki munu hafa áhrif á hrein-
leikaímynd landsins okkar og af þeim sökum er í skipulagslögum gert ráð
fyrir andmælarétti þeirra sem telja sig eiga hagsmuna að gæta. Jafnvel þótt
vel megi kalla vindorkurafmagn græna orku munu mannvirkin sem slík
hafa áhrif á ímynd landsins jafnt í okkar eigin huga sem gesta okkar. En
skipulagslög eru til þess að kalla fram sjónarmið allra og mikilvægt að fólk
nýti þann lögvarða rétt sinn. Það þýðir ekkert að röfla eftir á.
Almennt er gert ráð fyrir að vindorka verði sú framleiðsluaðferð sem
mest mun vaxa hér á landi í samanburði við hefðbundna orku sem beisluð
er með virkjun fallvatna. Framleiðslugeta þeirra þriggja vindorkuvera sem
hér að framan voru nefnd er um og yfir 400 MW. Það er meira en helm-
ingur þeirrar orku sem hin umdeilda Kárahnúkavirkjun framleiðir. Það er
því ljóst að Landsvirkjun mun fá samkeppni á næstu árum og raunar löngu
tímabært. Meira að segja stjórnendur Landsvirkjunar hafa viðurkennt að
vindorkan sé orðin samkeppnishæf í verði, en fram að þessu hafa þeir ekki
viðurkennt það. Ástæðan er tækniframfarir í framleiðslu vindmylla og þær
því orðnar hagkvæmari í framleiðslu. Þetta vita fjárfestar sem kaupa nú
jarðir eins og enginn sé morgundagurinn og undirbúa af kappi umsóknir
fyrir uppsetningu vindorkuvera á þeim. Líklega eru nægir kaupendur að
allri þessari orku, án útflutnings um sæstreng, því benda má á að t.d. Norð-
urál hefur fyrir löngu sótt um aukið rafmagn til að stækka steypuskálann
á Grundartanga, en fram að þessu ekki fengið vilyrði fyrir þeirri orku sem
stækkunin þarfnast. Auk þess hefur verið bent á að aukin nýting vindorku-
vera erlendis gæti farið að hafa áhrif á samkeppnishæfni íslenska raforku-
markaðarins. Af öllu þessu er ljóst að miklar breytingar eru í vændum hvort
sem við lítum til stóriðju eða raforkuframleiðslu.
Magnús Magnússon
Alþýðusambandi Íslands sendi í
liðinni viku frá sér tilkynningar
um 1. maí hátíðarhöld í meira en
30 sveitarfélögum á landinu auk
fjölmargra viðburða á höfuðborg-
arsvæðinu hjá stóru stéttarfélög-
unum. Meðfylgjandi upplýsingar
sendi ASÍ og snerta Vesturland:
Akranes
Safnast verður saman við Kirkju-
braut 40, kl. 14:00 og genginn
hringur á neðri-Skaga. Hátíðar-
dagskrá í sal Verkalýðsfélags Akra-
ness á 3. hæð Kirkjubrautar 40 að
göngu lokinni. Ræðumaður dags-
ins: Vilhjálmur Birgisson for-
maður Verkalýðsfélag Akraness.
Kvennakórinn Ymur syngur nokk-
ur lög og kaffiveitingar í boði. Frítt
í bíó fyrir börnin í Bíóhöllinni kl.
15:00.
Borgarnes
Hátíðar- og baráttufundur hefst í
Hjálmakletti kl. 11.00. Ávarp: Ei-
ríkur Þór Theodórsson, formaður
ASÍ-UNG. Ræða dagsins: Sigur-
steinn Sigurðsson arkitekt. Tón-
listaratriði: Soffía Björg Óðins-
dóttir. Ronja Ræningjadóttir kíkir
í heimsókn, Gleðigjafar kór eldri
borgara í Borgarnesi syngur og
leiðir hópsöng, Internasjónalinn.
Súpa og brauð að fundi loknum.
Kvikmyndasýning fyrir börn verð-
ur í Óðali kl. 13:30, boðið verður
upp á popp og ávaxtasafa.
Stykkishólmur
Hótel Stykkishólmi kl.13:30.
Kynnir: Berglind Eva Ólafsdóttir,
SDS. Ræðumaður: Vignir Smári
Maríasson. Tónlistaatriði úr Tón-
listarskóla Stykkishólms. Þórunn
Lárusdóttir og Karl Olgeirsson.
Kaffiveitingar.
Grundarfjörður
Samkomuhúsinu kl.14:30. Kynnir:
Garðar Svansson stjórnarmaður.
Ræðumaður: Vignir Smári Marí-
asson. Tónlistaatriði frá Tónlistar-
skóla Grundarfjarðar. Þórunn Lár-
usdóttir og Karl Olgeirsson. Kaffi-
veitingar að hætti Gleym-mér-ei.
Snæfellsbær
Félagsheimilinu Klifi kl.15:30.
Ræðumaður: Vignir Smári Marí-
asson. Tónlistaskóli Snæfellsbæj-
ar. Þórunn Lárusdóttir og Karl Ol-
geirsson. Kaffiveitingar að hætti
eldri borgara. Sýning eldri borgara.
Bíósýning.
Búðardalur
Stéttarfélag Vesturlands og SDS,
Samkoma í Búðardal kl. 14:30.
Kynnir Helga Hafsteinsdóttir for-
maður SDS. Ræðu dagsins flytur
Sigursteinn Sigurðsson arkitekt.
Skemmtiatriði frá Tónlistarskóla
Auðarskóla og Helga Möller syng-
ur. Kaffiveitingar að lokinni dag-
skrá. Drekkhlaðið borð af hnall-
þórum og fleira góðgæti að hætti
Katrínar. mm
Fyrir síðustu helgi var umferð
hleypt á þrjár aðkomuleiðir af fjór-
um á endurgerðu Kalmanstorgi
á Akranesi, en það er hringtorg-
ið á mótum Esjubrautar, Kalmans-
brautar og Akranesvegar. Þó er eft-
ir að ljúka við frágang á mönum og
gönguleiðum að torginu. Torg þetta
var í daglegu tali kallað spælegg-
ið, en hefur nú breytt um útlit svo
spurning er hvort það standi undir
því nafni. Stuðlabergssúla skreytir
mitt torgið. Við nýtt hringtorg eru
gönguþveranir við allar aðkomu-
leiðir og munu þær auka umferð-
aröryggi til muna. Meðal annars
verður nú í fyrsta skipti til göngu-
tenging við tjaldsvæðið í Kalmans-
vík. Eftir er að opna fyrir aðkomu
að Kalmanstorgi frá Esjubraut en
fyrirhugað er að gera nýjan göngu-
stíg norðan við Esjubraut og lag-
færa á yfirborð götunnar til austurs
að Esjutorgi, á mótum Esjubrautar,
Innnesvegar og Þjóðbrautar. Sam-
hliða gatnaframkvæmdunum munu
Veitur endurnýja hitaveitu, vatns-
veitu, fráveitu og rafveitu á svæðinu
líkt og gert var undir nýja hring-
torginu. mm
Dagana 6. og 7. maí verður blóð-
söfnun í Grundarfirði, Stykkis-
hólmi og Ólafsvík. Eins og kunn-
ugt er er Blóðbankabíllinn útibú
frá Blóðbankanum. Í Grundar-
firði verður bíllinn við Kjörbúðina
mánudaginn 6. maí kl. 12:00-17:00.
Bíllinn verður við Íþróttamiðstöð-
ina í Stykkishólmi miðvikudaginn
7. maí klukkan 8:30-12:00 og við
Söluskálann ÓK í Ólafsvík sama
dag frá klukkan 14:30-18:00.
„Í bílnum er góð aðstaða til blóð-
söfnunar og er bíllinn okkur afar
mikilvægur til að nálgast nýja blóð-
gjafa og auðvelda virkum blóðgjöf-
um að gefa blóð. Blóðgjöf er raun-
veruleg lífgjöf og getur ein blóðgjöf
bjargað allt að þremur mannslíf-
um. Því skiptir hver og einn blóð-
gjafi ótrúlega miklu máli. Til þess
að anna eftirspurn eftir blóði þarf
u.þ.b. 2000 nýja blóðgjafa á hverju
ári til viðbótar við þann hóp sem
við höfum nú þegar,“ segir Þor-
björg Edda Björnsdóttir hjúkrunar-
fræðingur, en hún starfar sem for-
stöðumaður öflunar blóðgjafa og
kynningarmála hjá Blóðbanka Ís-
lands.
Þorbjörg segir að þeir megi gefa
blóð sem orðnir eru 18 ára og jafn-
framt heilsuhraustir. Allar nánari
upplýsingar um ferð Blóðbankans
á Snæfellsnes má finna inni á blod-
bankinn.is og á Facebook. mm
Fjölbreytt dagskrá í boði á 1. maí
Vorferð Blóðbankabílsins
framundan á Snæfellsnes
Umferð hleypt á nýtt hringtorg