Skessuhorn - 01.05.2019, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 20198
Stolið hjól
fannst
AKRANES: Að sögn lög-
reglu fer hjólaþjófnuðum
jafnan fjölgandi á vorin og
snemmsumars, samhliða því
að fleiri fara ferða sinna hjól-
andi. Tilkynnt var um stuld
á reiðhjóli þriðjudaginn 23.
apríl síðastliðinn. Mongoose
reiðhjól hafði verið tekið
ófrjálsri hendi við Brekku-
braut á Akranesi. Lögregla
fann hjólið við hefðbundið
eftirlit, flutti það á lögreglu-
stöðina og hafði samband
við eigandann. -kgk
Djúpar holur
í veginum
HVALFJ: Vegfarandi hafði
samband við lögreglu í vik-
unni og tilkynnti um djúpar
holur í Hvalfjarðarvegi við
Eystra-Miðfell. Holurnar
sagði hann auk þess fullar af
vatni. Taldi hann að bifreið
sín hefði orðið fyrir tjóni
þegar hann ók ofan í hol-
urnar. Vegagerðinni var gert
viðvart um málið sem veg-
haldara þjóðvegarins. -kgk
Mótum Vestur-
land í samein-
ingu!
VESTURLAND: Samtök
sveitarfélaga á Vesturlandi
standa fyrir íbúaþingi næst-
komandi mánudag undir yf-
irskriftinni Mótum fram-
tíð Vesturlands í samein-
ingu. Þingið verður haldið í
Hjálmakletti í Borgarnesi frá
kl. 13:00 til 16:00. Markmið-
ið með þinginu er að fá íbúa
á Vesturlandi til að koma
saman, skiptast á skoðunum
og hugmyndum um hvern-
ig þeir vilja sjá landshlutann
þróast. „Þátttakendur munu
móta framtíðarsýn, markmið
og tillögur að aðgerðum sem
verða leiðarljós fyrir Sóknar-
áætlun Vesturlands fyrir árin
2020 til og með 2024. Auk
þess mun afrakstur íbúa-
þingsins nýtast við vinnu við
sviðsmyndagerð um þróun
atvinnulífs á Vesturlandi,“
segir á vef SSV. Vestlending-
ar allir eru boðnir velkomn-
ir til þingsins en áhugasam-
ir eru beðnir að skrá sig með
tölvupósti á saedis@ssv.is.
-kgk
Árstíðaleið-
rétt atvinnuleysi
reyndist 2,9%
LANDIÐ: Samkvæmt árs-
tíðaleiðréttum tölum vinnu-
markaðsrannsóknar Hag-
stofunnar var fjöldi fólks
á vinnumarkaði 210.900 í
mars á þessu ári. Árstíðar-
leiðrétt atvinnuþátttaka var
82,7%, sem er 1,9 prósentu-
stigi meira en í febrúar. Sam-
kvæmt árstíðaleiðréttingu
voru atvinnulausir 6.200 í
mars, eða 2,9%, sem er 0,3
prósentustigum lægra en í
febrúar. Fyrir sama tímabil
jókst leiðrétt hlutfall starf-
andi fólks um 2,1 prósentu-
stig, eða í 80,2% fyrir mars
2019.
-mm
Ekið án réttinda
VESTURLAND: Lögregla
stöðvaði för ökumanns sem
talinn var aka án ökuréttinda.
Hann er sömuleiðis grunað-
ur um ávana- og fíkniefna-
brot og að hafa ekið undir
áhrifum. Lögregla segir allt-
af töluvert um að hún hafi
afskipti af fólki sem grunað
er um akstur undir áhrifum
áfengis eða fíkniefna. Gjarn-
an tilkynna aðrir vegfarend-
ur um undarlegt aksturslag
og þá kannar lögregla mál-
ið. Töluvert er um slíkt, að
sögn lögreglu. Dæmi um
slíkt var tilkynning sem lög-
reglu barst í vikunni um bíl
sem rásaði mikið þar sem
honum var ekið á Vestur-
landsvegi við Fiskilæk í átt
að Borgarnesi. Ökumaður-
inn var stöðvaður og reynd-
ist vera í lagi, s.s. með rétt-
indi og ekki undir áhrifum.
-kgk
Með hjálmlaust
barn á hjóli
SNÆFELLSNES: Lög-
regla hafði afskipti af öku-
manni bifhjóls sem ekið var
eftir Snæfellsnesvegi á leið-
inni til Ólafsvíkur í vikunni
sem leið. Barn var farþegi á
hjólinu og ekki með hjálm.
Lögregla minnir á að skylt
er að ökumaður og farþegar
bifhjóla hafi hjálm á höfðinu
og þarf vart að taka fram hve
hættulegt getur verið að vera
hjálmlaus á bifhjóli.
-kgk
Tvisvar ekið
utan vegar
GRUNDARFJ: Árið 2018
var fimm sinnum tilkynnt um
akstur utan vegar í umdæmi
Lögreglunnar á Vesturlandi.
Þrjár tilkynninganna áttu
ekki við rök að styðjast, að
sögn aðstoðaryfirlögreglu-
þjóns. Tvö atvik voru kærð
og í báðum tilvikum voru
það erlendir ríkisborgarar
sem voru kærðir fyrir að aka
utan vegar í nágrenni Kirkju-
fells á Snæfellsnesi. Fóru þeir
ekki inn á bílastæðið sem þar
er, heldur út af veginum og
ullu spjöllum. Var ökumönn-
unum í báðum tilvikum gert
að greiða 100 þús. króna sekt
fyrir athæfið.
-kgk
Kæra Hval
HVALFJ: Jarðarvinir hafa
lagt fram kæru á hendur
Hval hf. fyrir brot á reglum
um hvalveiðar. Samtök-
in saka fyrirtækið um að
standa ekki skil á afladag-
bók um veiðarnar í samræmi
við það sem reglugerðin ger-
ir ráð fyrir. Málið er komið
í ferli og kemur þá til kasta
rannsóknardeildar Lögregl-
unnar á Vesturlandi, að sögn
aðstoðaryfirlögreglustjóra.
-kgk
Myndavélar beggja vegna vegar-
ins við gamla gjaldskýli Hvalfjarð-
arganga hafa undanfarna daga vak-
ið athygli vegfarenda. Skessuhorni
barst ábending þess efnis að nýj-
ar myndavélar hefðu verið sett-
ar upp við göngin en svo mun ekki
vera. Um er að ræða vélar sem sett-
ar voru upp fyrir þremur árum og
voru hluti af gjaldtökukerfi Spalar.
„Þær voru partur af uppfærslu sem
var fyrir Qfree rukkunarkerfið sem
Spölur var með og það var Spölur
sem lét setja vélarnar upp, þann-
ig að þær eru alls ekki nýjar,“ segir
G. Pétur Matthíasson, upplýsinga-
fulltrúi Vegagerðarinnar, í samtali
við Skessuhorn. Eftir að gjaldtöku í
Hvalfjarðargöng var hætt og göng-
in afhent ríkinu fengu myndavél-
arnar síðan nýtt hlutverk. „Við not-
um þær áfram sem öryggismynda-
vélar fyrir vaktstöðina og það var
verið að hækka þær um daginn til
að fá betri mynd af gangamunn-
anum,“ segir upplýsingafulltrúinn.
Telur hann hækkun vélanna geta
verið ástæðu þess að vegfarend-
ur hafi talið að um nýjar vélar væri
að ræða. „Það er breyting og menn
taka þá eftir því,“ segir Pétur.
kgk
Myndavélar við göngin hækkaðar
Myndavélarnar sem um ræðir eru staðsettar bæði fyrir ofan veg og neðan.
Stærðfræðikeppni grunnskólanna á
Vesturlandi var haldin í 21. skipti í
Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi föstudaginn 29. mars síðastlið-
inn og voru verðlaun afhent síðastlið-
inn laugardag. 96 keppendur í 8.-10.
bekk frá sex grunnskólum á Vestur-
landi tóku þátt í keppninni. Þeir voru
frá Auðarskóla, Brekkubæjarskóla,
Grundaskóla, Grunnskóla Borgar-
fjarðar, Grunnskólanum í Borgar-
nesi og Grunnskóla Snæfellsbæjar.
Keppendur voru til fyrirmyndar og
keppnin gekk mjög vel fyrir sig. Eins
og venja er fyrir voru 10-12 efstu í
hverjum aldurshópi boðið til verð-
launaafhendingar í FVA á laugardag-
inn og fengu efstu þrír í hverjum ár-
gangi peningaverðlaun.
Verðlaunahafar
Verðlaunahafar úr 8. bekk eru: Í
fyrsta sæti varð Ole Pétur Ahlbrecht
frá Brekkubæjarskóla. Í öðru sæti
Ingibjörg Svava Magnúsdóttir frá
Brekkubæjarskóla og í þriðja Pét-
ur Lárusson frá Grunnskóla Borga-
fjarðar.
Verðlaunahafar úr 9. bekk voru
eftirtaldir: Jöfn í fyrsta til öðru sæti
voru Alexander Jón Finnsson og
Díana Dóra Bermann Baldursdótt-
ir, bæði frá Grunnskólanum í Borg-
arnesi. Í þriðja sæti varð Róbert
Leó Gíslason frá Grundaskóla.
Verðlaunahafar úr 10. bekk eru
Þórunn Sara Arnardóttir frá Grunn-
skólanum í Borgarnesi í fyrsta sæti,
í öðru sæti Guðrún Karitas Guð-
mundsóttir frá Brekkubæjarskóla
og í þriðja sæti Benedikt Gunnars-
son frá Grunnskóla Snæfellsbæjar.
Tíu efstu nemendur
í 8. bekk:
Anja Huld Jóhannsdóttir ,
Grunnskóli Snæfellsbæjar
Hjördís Ylfa Kulseng,
Grunnskóla Borgarfjarðar
Ingibjörg Svava Magnúsardóttir,
Brekkubæjarskóla
Jara Natalia Björnsdóttir,
Grunnskóla Borgarfjarðar
Jóhannes Hrafn Cornette,
Auðarskóla
Karl Þór Þórisson,
Brekkubæjarskóla
Kristján Magnússon,
Brekkubæjarskóla
Ole Pétur Ahlbrecht,
Brekkubæjarskóla
Orri Bergmann Ingþórsson,
Brekkubæjarskóla
Pétur Lárusson,
Grunnskóla Borgarfjarðar
Unnur Björg Ómarsdóttir,
Grunnskóla Borgarfjarðar
Tíu efstu nemendur
í 9. bekk:
Alexander Jón Finnsson,
Grunnskólanum í Borgarnesi
Árný Lind Árnadóttir,
Brekkubæjarskóla
Dagbjört Lilja Helgadóttir,
Grunnskólanum í Borgarnesi
Díana Dóra Bergmann Baldursdóttir,
Grunnskólanum í Borgarnesi
Elinóra Ýr Kristjánsdóttir,
Grunnskólanum í Borgarnesi
Ellert Lár Hannesson,
Grundaskóla
Hafþór Örn Arnarson,
Grundaskóla
Hólmfríður Erla Ingadóttir,
Grundaskóla
Lilja Gréta Jonsson,
Grunnskóla Borgarfjarðar
Róbert Leó Gíslason,
Grundaskóla
Snædís Lilja Gunnarsdóttir,
Brekkubæjarskóla
Stefán Ingi Þorsteinsson, Auð-
arskóla
Tíu efstu nemendur
í 10. bekk:
Arilíus Dagbjartsson,
Grunnskóla Borgarfjarðar
Benedikt Gunnarsson,
Grunnskóli Snæfellsbæjar
Björn Viktor Viktorsson,
Grundaskóla
Dang Nguyen Hieu Ngan,
Brekkubæjarskóla
Davíð Pétursson,
Grunnskóla Borgarfjarðar
Elías Andri Harðarson,
Grunnskóla Borgarfjarðar
Guðrún Karitas Guðmunds-
dóttir, Brekkubæjarskóla
Hrafnhildur Jökulsdóttir,
Brekkubæjarskóla
Sólrún Lilja Finnbogadóttir,
Grundaskóla
Þórunn Sara Arnarsdóttir,
Grunnskólanum í Borgarnesi
arg
Verðlaun fyrir árangur í stærð-
fræðikeppni grunnskólanna
Frá verðlaunaafhendingu í stærðfræðikeppni grunnskólanna. Ljósm. Dröfn Viðarsdóttir.