Skessuhorn - 01.05.2019, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2019 9
•
•
•
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Laus störf í Ásbyrgi, Stykkishólmi!
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir laus til
umsóknar eftirtalin störf í Ásbyrgi, hæfingar- og vinnustað
fólks með skerta starfsgetu.
Forstöðumaður - 1 stöðugildi
Leitað er einstaklings er hefur þroskaþjálfa- eða
iðjuþjálfamenntun ellegar sambærilega menntun og reynslu
er nýtist í starfinu, góða samvinnu- og samskiptahæfileika og
áhuga fyrir starfi með fólki með skerta starfsgetu og til að leiða
markvert þjónustuhlutverk Ásbyrgis.
Starfsmaður - 2 stöðugildi
Leitað er einstaklinga sem hafa lokið og/eða eru í starfstengdu
námi félagsliða eða stuðningfulltrúa eða sambærilegu
námi og reynslu er nýtist í starfi; hafa góða samvinnu- og
samskiptahæfileika og áhuga fyrir starfi með fólki með skerta
starfsgetu.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra
sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga.
Skriflegar umsóknir um störf þessi er tilgreini menntun, starfsferil
og umsagnaraðila ásamt prófskírteini og sakavottorði berist
undirrituðum sem jafnframt veitir frekari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 25. maí 2019
Sveinn Þór Elinbergsson forstöðumaður
Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbær; sveinn@fssf.is
Á aðalfundi Verkalýðsfélags Snæ-
fellinga 15. apríl síðastliðinn tók
Vignir Smári Maríasson við starfi
formanns félagsins af Sigurði A
Guðmundssyni, en Sigurður hafði
starfað fyrir félagið í nærri ellefu ár.
Vignir er uppalinn í Strandasýslu
en er nú búsettur í Grundarfirði
ásamt eiginkonu sinni, Maríu Pá-
leyju Gestsdóttur. Hann fór á sjó 18
ára gamall og starfaði sem sjómað-
ur til ársins 2006 en þá tók hann til
starfa hjá Almennu umhverfisþjón-
ustunni í Grundarfirði. Aðspurð-
ur segist Vignir ekki hafa átt beina
aðkomu að verkalýðsmálum áður.
„Þegar ég var á sjónum þurftum við
sjálfir að semja um fiskverð, sem er
eins nálægt og ég hef komist því að
taka þátt í samningum um kaup og
kjör,“ segir Vignir. En hvernig kom
það þá til að hann gaf kost á sér sem
formaður í Verkalýðsfélagi Snæfell-
inga? „Ég frétti af því að Siggi væri
að hætta og leit á það sem kjörið
tækifæri til að byrja að gera eitt-
hvað sjálfur. Maður hefur alltaf
fylgst með verkalýðsstarfinu og set-
ið inni á kaffistofum og nöldrað yfir
því en nú fannst mér tími til kom-
inn að fara að gera eitthvað sjálfur.
Ég ákvað því bara að sjá hvort fólk-
ið vildi mig og hér er ég kominn,“
segir Vignir kátur.
Spurður hverju fólk megi bú-
ast við frá honum innan verkalýðs-
hreyfingarinnar segist Vignir það
bara verða að koma í ljóst. „Ég er
ekki að fara í neina hallarbyltingu
og hef ekkert fastnegldar fram-
kvæmdir sem ég vil fara í. En mig
langar að gera félagið sýnilegra og
heimasíðuna líflegri, svona til að
byrja með allavega. Hitt kemur
bara í rólegheitunum og ég er enn
að læra inn á þetta allt, svo lengi
lærir sem lifir og allt það,“ segir
Vignir og hlær. „En ég hef gott fólk
með mér sem kennir mér handtök-
in,“ bætir hann við. arg
Vignir Smári er nýr formaður
Verkalýðsfélags Snæfellinga
Vignir er nýr formaður Verkalýðsfélags
Snæfellinga. Ljósm. aðsend.
Það er gamall siður að leggja til
geymslu í húsakynnum, innundir
súð eða uppi á háalofti, blöð sem
sýna dagsetningu þess þegar fram-
kvæmdir stóðu yfir. Margsinnis
hafa á liðnum árum og áratugum
komið í ljós gömul blöð sem varpað
hafa ljósi á sitthvað sem tengja má
við framkvæmdir fyrri tíma, jafn-
vel alda. Þessi siður er enn við lýði.
Nýverið lauk húsráðandi í Borgar-
firði við framkvæmdir þegar hann
klæddi innan veggi í nýbyggingu
við hús sitt. Eitt af síðustu verkun-
um áður en veggklæðingu var lokað
var að setja nýlegt eintak af Skessu-
horni undir plötu. Þegar fram líða
stundir er aldrei að vita nema slíkt
eigi eftir að varpa ljósi á mannvist
okkar tíma eftirlifendum til gagns
og vonandi ánægju. mm
Svo fornleifafræðingar
framtíðarinnar viti betur