Skessuhorn - 01.05.2019, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2019 11
Vorhreinsun á Akranesi
Plokkum og flokkum
Akraneskaupstaður og Íþróttabandalag Akraness vilja hvetja alla bæjarbúa, unga sem aldna sem og fyrirtæki,
stofnanir og hópa til að taka þátt í hreinsun og fegrun umhverfisins þann 8. maí næstkomandi.
Hægt er að tína upp rusl eða „plokka“ á förnum vegi á meðan gengið er eða skokkað. Þannig má sameina áhuga á
útiveru og umhverfismeðvitund og ánægjan af því að fara út og hreyfa sig verður margfalt meiri.
Aðildarfélög Íþróttabandalags Akraness ætla að tína upp rusl á völdum svæðum milli kl. 17:00 - 18:30 og vilja með
því sýna umhverfisábyrgð og hvetja aðra til þess að taka þátt í nýjum heilsusamlegum og umhverfisvænum sið.
Að vinnu lokinni verður boðið upp á kakó og kleinur við Íþróttahúsið við Vesturgötu og Íþróttamiðstöðina á Jaðars-
bökkum. Einnig verður frítt í sund fyrir alla sem taka þátt.
Gámar verða staðsettir á ákveðnum stöðum í bænum og geta íbúar og
hópar skilað þar endurgjaldslaust því sem saman safnast. Ætlast er til að
sorp sé flokkað og verða gámar merktir með
viðeigandi flokkunarmerkjum.
Allar nánari upplýsingar
er að finna á vef
Akraneskaupstaðar
www.akranes.is
Vorhreinsun
Vorhreinsun íbúa, fyrirtækja og stofnana fer fram dagana 8. – 13. maí
Bæjarbúar, ungir sem aldnir eru hvattir til að fagna vori og taka þátt í hreinsun og fegrun lóða og umhverfis í þágu
allra bæjarbúa. Gámar verða staðsettir á ákveðnum stöðum í bænum á tímabilinu og geta íbúar og fyrirtæki skilað
þar endurgjaldslaust því sem til fellur við vorhreinsunina.
Ætlast er til að sorp sé flokkað og verða gámar merktir með viðeigandi flokkunarmerkjum.
Aldraðir og öryrkjar geta óskað eftir að fá aðstoð við að sækja staka þunga eða stóra hluti.
Allar nánari upplýsingar er að finna á vef Akraneskaupstaðar www.akranes.is
Félagar í Rótarýklúbbi Akraness
fóru venju samkvæmt upp í Berjadal
í Akrafjalli á sumardaginn fyrsta og
settu göngubrúna á Berjadalsá. Eins
og vani er verður brúin látin standa í
sumar en verður tekin niður í haust,
áður en veður tekur að versna.
Brúin er í tveimur hlutum og sett
saman á staðnum. Brúarvinnuflokk-
ur Rótarýklúbbsins naut aðstoðar
nokkurra fjallgöngugarpa við verk-
ið. Jens Baldursson segir í íbúahópi
Akurnesinga á Facebook að sú að-
stoð hafi verið vel þegin, enda vinni
margar hendur létt verk.
kgk/ Ljósm. Jens Baldursson.
Velferðar- og mannréttindasvið
Akraneskaupstaðar hefur óskað eft-
ir stuðningsfjölskyldum fyrir börn
með sérþarfir. Stuðningsfjölskyld-
ur gegna mikilvægu hlutverki bæði
fyrir börnin sem nýta sér þjón-
ustuna og foreldra þeirra. Hlutverk
stuðningsfjölskyldna er að styðja
við foreldra barnsins og veita þeim
hvíld auk þess að veita barninu til-
breytingu og stuðning. „Stuðn-
ingsfjölskyldur eru mikilvægar fyr-
ir forelda barna með krefjandi um-
önnun. Foreldrarnir fá þá tíma fyrir
sig og barnið kynnist nýju umhverfi
sem er gott fyrir báða aðila,“ út-
skýrir Arnheiður Andrésdóttir, ráð-
gjafaþroskaþjálfi Akraness, í samtali
við Skessuhorn.
Stuðningsfjölskyldur taka venju-
lega barn eina eða tvær helgar í
mánuði og fá greitt fyrir það eft-
ir fyrirfram ákveðinni gjaldskrá.
„Þegar barnið er hjá stuðningsfjöl-
skyldunni er ætlunin að það sé part-
ur af fjölskyldunni. Það er ekki ætl-
unin að á heimilinu séu sérstaklega
skipulagðar frístundir þennan tíma
heldur bara venjulegt fjölskyldu-
líf sem barnið fær að vera hluti
af,“ segir Arnheiður. Spurð hvern-
ig fjölskyldum sé leitað að segir
Arnheiður það fara algjörlega eftir
barninu sem þarf á stuðningsfjöl-
skyldu að halda. „Það geta allir sótt
um að verða stuðningsforeldrar og
við leitum bæði að fjölskyldum og
einstaklingum. Fyrst og fremst þarf
þetta að vera fjölskylda eða einstak-
lingur sem vill taka að sér barn og
gera eitthvað skemmtilegt með því.
Það er kostur ef viðkomandi hefur
reynslu af börnum, hvort sem er í
gegnum starf eða af eigin börnum,
en það mega gjarnan vera önn-
ur börn á heimilum stuðningsfjöl-
skyldna,“ segir Arnheiður.
Til þess að gerast stuðningsfjöl-
skylda geta áhugasamir foreldrar
sótt um það hjá sínu bæjarfélagi og
þá fer ákveðið ferli af stað. „Um-
sóknir stuðningsfjölskyldna fara í
gegnum barnaverndarnefnd. Það
þarf að skila inn sakavottorði fyr-
ir alla á heimilinu eldri en 15 ára
og einnig læknisvottorði sem sýnir
fram á að engin fyrirstaða sé fyrir
því að viðkomandi fjölskylda gæti
hugsað um barn með fötlun. Starfs-
maður barnaverndar tekur þvínæst
út heimilið og samþykkir eða hafnar
umsókninni,“ segir Arnheiður. Að-
spurð segir hún oftast skorta stuðn-
ingsfjölskyldur og því er mikilvægt
að allir sem hafi áhuga sæki um.
arg
Stuðningsfjölskyldur mikil-
vægar fyrir börn með sérþarfir
Brúin sett saman á Berjadalsánni.
Brúin komin
á Berjadalsána
Brúarvinnuflokkur Rótarýklúbbs Akraness ásamt fjallgöngugörpum sem að-
stoðuðu við verkið.