Skessuhorn - 01.05.2019, Qupperneq 12
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 201912
Félagar í Björgunarsveitinni Ósk í
Búðardal héldu um helgina 13.-14.
apríl sl. námskeiðið slöngubátur 1,
en það er hluti af grunnnámi björg-
unarsveitarfólks. Námskeiðið var
haldið í Búðardal. Þar lærir björg-
unarsveitarfólk um slöngubátinn
og búnað hans, lærir stjórntökin og
hvernig sigla skuli við misjafnar að-
stæður, um öryggi báts og áhafn-
ar, um mótorinn og umgengni við
hann og viðbrögð ef bátur veltur.
Markmið námskeiðsins er að nem-
endur öðlist almenna þekkingu á
störfum um borð í slöngubátum
og geti eftir námskeiðið tekið þátt
í þeim störfum sem slöngubátar
eru gerðir fyrir. Einnig að öryggi
bátsins og áhafnar hans sé tryggt
við störf um borð. Sömuleiðis að
nemendur geti notað þann búnað
sem í bátnum er til að bjarga fólki
og sjálfum sér úr sjávarháska og að
geta komið skipstjórnarmönnum til
aðstoðar við stjórn bátsins.
kgk
Fjármála- og efnahagsráðherra
hefur lýst kröfum ríkisins um
þjóðlendur á svæði 10C, sem nær
yfir Barðastrandasýslur. Óbyggða-
nefnd tók svæðið til umfjöllunar
í nóvember á síðasta ári og veitti
ráðherra framlengdan frest til 15.
apríl til að lýsa kröfum fyrir hönd
ríkisins.
Gerð er krafa um að tvö tilgreind
svæði innan Reykhólahrepps verði
að þjóðlendum og þar með ekki
eignarlönd. Þau eru annars veg-
ar landið Hvannahlíð, sem er inn
af Þorskafirði og nær að mörkum
Reykhólahrepps og Strandabyggð-
ar og hins vegar Skálmardalsheiði
sem er í landi Reykhólahrepps og
liggur að Vesturbyggð og V-Ísa-
fjarðarsýslu.
Kröfurnar verða kynntar í Lög-
birtingarblaðinu og víðar. Þeim
sem telja til eignarréttinda eða
annarra réttinda á þeim svæðum
sem ríkið gerir tilkall til er veittur
minnst þriggja mánaða frestur til
að lýsa kröfum á móti. kgk
Fjölmenni var á tónleikum í Safna-
húsi Borgarfjarðar í Borgarnesi
á sumardaginn fyrsta. Þar fluttu
nemendur Tónlistarskóla Borg-
arfjarðar frumsamda tónlist sína
við ljóð Böðvars Guðmundssonar
skálds frá Kirkjubóli í Hvítársíðu.
Á þriðja tug nýrra laga voru flutt
og tugir nemenda tóku þátt í flutn-
ingnum ásamt kennurum sínum.
Böðvar var sjálfur viðstaddur tón-
leikana, en hann er búsettur í Dan-
mörku. Taldi hann ekki eftir sér að
skreppa heim í Borgarfjörð af þessu
tilefni.
Tónleikarnir voru uppskeru-
hátíð verkefnisins „Að vera skáld
og skapa,“ sem byggir á samstarfi
Safnahúss og Tónlistarskólans. Var
gerður góður rómur að framgöngu
nemenda þar sem gleðin og sköp-
unarkrafturinn var í fyrirrúmi í list-
rænum leik með íslenska tungu.
mm/gj
Jörvagleði, menningarhátíð Dala-
manna, var haldin í síðustu viku.
Hún hófst á síðasta vetrardag og
stóð fram á sunnudag en hátíð-
in hefur verið haldin annað hvert
ár í kringum sumardaginn fyrsta
allt frá 1977. Að sögn Bjarnheið-
ar Jóhannsdóttur, ferðamálafull-
trúa Dalabyggðar og skipuleggj-
anda hátíðarinnar, var hátíðin í ár
vel heppnuð og skemmtileg. Há-
punktur að hennar sögn var söng-
skemmtun á Staðarfelli á laugar-
dagskvöldinu þar sem var húsfyllir
og mikið stuð. „Veðrið var dásam-
legt alla daga hátíðarinnar og flest-
ir viðburðir voru mjög vel sóttir.
Þetta var einstaklega vel heppnuð
hátíð,“ segir Bjarnheiður.
„Við vorum með hlaup upp að
Tregasteini í Hörðudal á laugar-
dagsmorgni og það var mjög vel
heppnað. Á sunnudagsmorgninum
var annað hlaup á Fellsströnd þar
sem um 40 manns hlupu í dásam-
legu veðri. Á sumardaginn fyrsta
voru skátarnir með skátaleiki sem
heppnuðust mjög vel og eftir það
voru Söngbræður með einstaka tón-
leika. Tveir ferðaþjónustubændur
úr Hörðudal buðu heim og margt
fleira skemmtilegt var í boði,“ seg-
ir Bjarnheiður og bætir því við að
gestir á hátíðinni hafi heilt yfir ver-
ið mjög ánægðir og þakkar því fjöl-
marga fólki sem lagði á sig vinnu til
að gera hátíðina sem glæsilegasta.
arg
Krakkar á leiklistarnámskeiði sem í boði var á Jörvagleðinni.
Ljósm. Fjóla Mikaelsdóttir.
Veðrið fór vel með
gesti Jörvagleðinnar í ár
Frá skátamessu í Hjarðarfellskirkju á Jörvagleði. Ljósm. sm.
Frá göngu upp að Tregasteini í Hörðudal. Ljósm. Helga Elínborg Guðmundsdóttir.
Hér má sjá Böðvar Guðmundsson ásamt tónlistarfólki dagsins. Ljósm. gj.
Tónleikar í Safnahúsi
í upphafi sumars
Svæðin tvö í Reykhólahreppi eru Hvannahlíð og Skálmardalsheiði. Kort fengið af
vef óbyggðanefndar.
Ríkið gerir þjóðlendukröfur í
Reykhólahreppi
Lærðu björgun með slöngubát
Svipmynd frá
slöngubáts-
námskeiðinu
í Búðardal.
Ljósm. Björg-
unarsveitin
Ósk.