Skessuhorn - 01.05.2019, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2019 15
Laus störf hjá
Akraneskaupstað
Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar:
Skóla- og frístundasvið
Grunnskólar:
Starf matráðs í Grundaskóla.
Starf iðju- eða þroskaþjálfa í Grundaskóla skólaárið 2019-2020.
Störf umsjónarkennara í Grundaskóla.
Starf íþróttakennara í Brekkubæjarskóla skólaárið 2019-2020.
Starf umsjónarkennara á yngsta- og miðstigi í Brekkubæjarskóla
skólaárið 2019-2020.
Leikskólar:
Starf matráðs á Leikskólanum Garðaseli.
Starf leikskólakennara / þroskaþjálfa á Leikskólanum Garðseli.
Starf deildarstjóra á Leikskólanum Akraseli.
Starf leikskólakennara á Leikskólanum Vallarseli.
Tónlistarskóli:
Starf málmblásturskennara.
Starf tréblásturskennara.
Starf píanókennara.
Starf tónfræðakennara.
Starf fiðlukennara skólaárið 2019-2020.
Skipulags- og umhverfissvið
Störf 17 ára unglinga hjá Vinnuskóla Akraness.
Starf yfirverkstjóra (yfirumsjón með vinnuskólanum).
Starf smiðs.
Velferðar- og mannréttindasvið
Störf í stuðningsþjónustu.
Stuðningsfjölskyldur óskast til samstarfs.
Nánari upplýsingar ásamt umsóknareyðublöðum er að finna á
www.akranes.is/lausstorf
Kraftur er í undirbúningi fyrir sum-
arið hjá Sjóminjasafninu á Hellis-
sandi. Safnið fékk nýverið tveimur
styrkjum úthlutað frá SSV. Annars
vegar rekstrarstyrk sem gerir safn-
inu kleift að ráða starfmenn í sumar
og hins vegar styrk til að setja upp
sýninguna Landnámsmenn í vestri.
Sú sýning er ein af hugmyndunum
til að byggja upp útisvæði safnsins
og á að vera í garðinum. Björn G.
Björnsson er að hanna sýninguna.
Einnig er verið að smíða fætur und-
ir 14 skilti sem sett verða upp á úti-
svæði garðsins. Á þeim munu koma
fram ýmsar upplýsingar. Eitt þessara
skilta er komið upp við bátinn Röst
en á því eru upplýsingar um bátinn.
Það er Óskar Skúlason sem á heið-
urinn af smíðavinnunni við skiltið
en hann smíðaði einnig stóra skiltið
sem afmarkar hliðið að garðinum og
safninu. Þess má geta að hann gefur
alla smíðavinnu sína. þa
Endurbætur við
Sjóminjasafnið
á Hellissandi
Í ár eru 100 ár liðin frá stofnun Fé-
lags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Af því tilefni stendur stjórn deild-
ar hjúkrunarfræðinga á Akranesi og
nágrenni fyrir því á afmælisárinu að
birta greinar eftir hjúkrunarfræð-
inga hér í Skessuhorni. Greinarnar
eru birtar jafnt og þétt yfir afmælis-
árið og í þeim hafa lesendur feng-
ið innsýn í þau fjölbreyttu störf og
áskoranir sem hjúkrunarfræðing-
ar fást við. Að þessu sinni kynnir
sig til leiks Kristín Edda Búadótt-
ir hjúkrunarfræðingur á Bráða- og
slysadeild Landspítalans í Fossvogi
og kennari í Fjölbrautaskóla Vest-
urlands á Akranesi.
Ég heiti Kristín Edda og er ákaf-
lega stolt af því að vera hjúkrunar-
fræðingur. Ég er fædd og uppal-
in á Akranesi, gift Ellerti Jóni og
saman eigum við Önnu Magný
15 ára, Huldu Þórunni 11 ára og
Styrmi Jóhann 10 ára. Ég starfa
sem hjúkrunarfræðingur á Bráða-
og slysadeild Landspítalans í Foss-
vogi ásamt því að kenna íslensku og
hjúkrunarfræði við Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi.
Fór til Danmerkur
í nám
Á árunum 2007 til 2015 bjuggum
við fjölskyldan í Árósum í Dan-
mörku þar sem við meðal ann-
ars lögðum stund á nám. Ég út-
skrifaðist sem hjúkrunarfræðingur
frá háskólanum þar í bæ og starf-
aði bæði á bráðabæklunardeild við
Aarhus Universitets hospital og við
heimahjúkrun langveikra barna hjá
einkareknu hjúkrunarfyrirtæki. Það
sem heillaði mig við námið á sín-
um tíma var hversu fjölbreytt það
er ásamt því að atvinnumöguleikar
að námi loknu eru yfirleitt mjög
góðir víðast hvar. Námið er krefj-
andi en skemmtilegt og við skólann
í Árósum er mikið lagt upp úr verk-
lega hlutanum, sem vegur 40% af
náminu.
Önnunum var skipt í tvö svoköll-
uð modul sem spanna hvert um sig
hér um bil 12 vikur. Skólaárið er
því nokkuð langt eða frá ágúst fram
í janúar og frá janúar út júní í 3,5 ár.
Á fyrsta ári fara 11 vikur í starfsnám
á annað hvort hand- eða lyflækn-
ingadeild. Á öðru ári fara 16 vikur
í starfsnám sem dreift er á geðdeild,
heimahjúkrun og ungbarnaeftirlit.
Á þriðja ári fara 23 vikur í starfs-
nám þar sem helmingurinn fer í
hand- eða lyflækningadeild (það fer
eftir því hvað þú tókst á fyrsta ári)
og helmingurinn á bráða- eða líkn-
ardeild. Fjórða árið fer í rannsókn-
arvinnu og BS-verkefni sem nem-
endur þurfa í lokin að verja til að
útskrifast.
Mest munnleg lokapróf
Öll lokapróf sem lögð voru fyr-
ir úr bóklega hlutanum í skólan-
um voru munnleg að undanskildu
einu skriflegu í lyfjaútreikningum.
Próf í lok verknáms voru með þeim
hætti að fyrri part vaktar var manni
fylgt eftir af klínískum leiðbeinanda
sem skráði niður allt sem á daginn
dreif og lagði mat á hvernig það var
framkvæmt. Þetta voru ýmis hjúkr-
unarverk eins og samtöl og sam-
skipti við sjúklinga og aðstand-
endur, sárameðferð, lífsmarkamæl-
ing, setja upp æðalegg, hengja upp
vökva, setja upp þvaglegg, blanda
lyf, undirbúa sjúkling fyrir aðgerð,
taka á móti sjúklingi af vöknun,
taka á móti sjúkrabíl, stofugangur,
taka blóðprufur, gefa blóð og svona
mætti lengi telja, og alltaf með hlið-
sjón af reglum um sýkingavarnir og
mikil áhersla var lögð á almennt
hreinlæti, rétta handhreinsun og
hrein/steríl vinnubrögð. Ef maður
stóðst þennan verklega hluta próf-
dagsins fékk maður klukkutíma til
að undirbúa sig fyrir munnlegt próf
þar sem kennari úr skólanum ásamt
klínískum leiðbeinanda spurði út í
verkefni morgunsins þar sem kom-
Innsýn í hjúkrunarfræðinám erlendis
ið var inn á allt mögulegt úr bók-
lega náminu, til að mynda hjúkrun-
arkenningar, lyfjafræði, líffæra-og
lífeðlisfræði, sjúkdómafræði o.s.frv.
Mæli með að fara
erlendis í nám
Ég mæli eindregið með náminu
og þreytist ekki á því að hvetja fólk
til að sækja nám eða starfsreynslu,
þótt ekki væri nema að hluta til í
eina eða tvær annir, erlendis. Mað-
ur kemur svo sannarlega reynslunni
ríkari heim. Flestir útlendingar sem
vilja stunda nám í hjúkrunarfræði í
Danmörku sækja um í svokölluðum
kvóta 2 en þá eru ýmis önnur atriði
tekin til greina heldur en einungis
stúdentsprófið. Þar á meðal vegur
lífsreynsla eins og hjálparstarf er-
lendis þungt, en einnig reynsla af
störfum innan heilbrigðisgeirans.
Hjúkrunarstarfið er fjölbreytt
eins og áhugasamir lesendur
Skessuhorns hafa fengið að kynn-
ast undanfarið og fá áfram að kynn-
ast á næstu vikum og ég vil líka
nefna að framhaldsnám innan fags-
ins býður upp á ýmsa spennandi
möguleika í sérhæfingu og frek-
ari rannsóknarvinnu hafi maður
áhuga á því. Bæði hér heima sem
og erlendis. Til dæmis hér: https://
www.finduddannelse.dk/artikler/
guides/videreuddannelse-sygeplej-
erske-11452.
Kristín Edda Búadóttir