Skessuhorn - 01.05.2019, Síða 22
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 201922
Soffía Meldal Kristjánsdóttir er
ung og efnileg söngkona í Búð-
ardal. Foreldrar hennar eru Björt
Þorleifsdóttur og Kristjáns Mel-
dal. Soffía er nemandi í 10. bekk
í Auðarskóla en samhliða grunn-
skólanáminu hefur hún verið fjar-
nemi í Menntaskóla Borgarfjarð-
ar í vetur. Soffía hefur alltaf ver-
ið góður námsmaður og þegar hún
átti að fara í 7. bekk var hún færð
upp um bekk. „Ég var þá á undan
í öllu svo ég var færð upp og tók
því aldrei 7. bekkinn. Í fyrra ákvað
ég svo að klára ekki 10. bekk strax
því ég vildi ljúka námi með jafn-
öldrum mínum,“ segir Soffía í sam-
tali við blaðamann. Hún útskrifað-
ist þó úr stærðfræði, íslensku, ensku
og dönsku síðasta vor og fór strax
í fjarnám í þeim áföngum síðast-
liðið haust. „Ég ákvað að taka bara
tvo áfanga núna eftir áramót. Þetta
var dálítið álag fyrir áramót í fjórum
áföngum í fjarnámi en núna er þetta
ekki svo mikið. Það er bara eins og
ég sé í grunnskóla. Ég læri í skól-
anum og tek þátt í öllu þar. Þegar
bekkjarfélagar mínir eru í tíma er ég
líka í tíma en bara að læra annað og
tek því tölvuna mína með mér,“ seg-
ir Soffía og bætir því við að henni
þykir álagið ekki svo mikið þó hún
sé í grunnskóla og framhaldsskóla á
sama tíma. „Ég bara læri þegar ég
þarf eins og ég hef alltaf gert.“
Söngkeppni framhaldsskólanna
fór fram í Bíóhöllinni á Akranesi
13. apríl og tók Soffía þátt fyrir
hönd Menntaskóla Borgarfjarðar.
„Ég sá að þau voru að auglýsa eftir
einhverjum til að taka þátt. Ég vissi
ekki alveg hvort ég ætti að taka þátt
þar sem ég er aldrei í skólanum þó
ég sé nemandi þar. En ég ákvað að
prófa og komst áfram,“ segir Soffía.
„Ég söng lagið Creep með Ra-
diohead, en í annarri útgáfu. Mér
gekk bara ágætlega og þetta var
mjög skemmtilegt, smá stressandi
því þetta var alveg nýtt, en samt
skemmtilegt,“ bætir hún við. Að-
spurð segist hún alltaf hafa verið að
syngja og hún æfir söng og spilar á
píanó. „Ég stefni á að halda áfram
að syngja í framtíðinni en hef ekki
gert nein plön um framtíðina, hvort
ég geri eitthvað með sönginn eða
ekki,“ segir Soffía að endingu.
arg Soffía Meldal Kristjánsdóttir hefur verið í fjarnámi frá Menntaskóla Borgarfjarðar samhliða námi í 10. bekk í Auðarskóla.
Soffía söng fyrir hönd MB í
Söngkeppni framhaldsskólanna
Skeifudagurinn, uppskeruhátíð
hestakennsku á Hvanneyri, var
haldinn venju samkvæmt á sumar-
daginn fyrsta. Dagskráin hófst eftir
hádegi á Mið-Fossum með fánareið
og setti Álfheiður Marinósdóttir
kennslustjóri dagskrána. Borgfirzk
börn undir stjórn Þórdísar Fjelds-
ted sýndu atriði og á eftir fylgdi
kynning á frumtamningartryppum
nemenda. Sýningaratriði frá Tölt-
grúbbu Vesturlands undir stjórn
Ragnheiðar Samúelsdóttur kom
svo í salinn og sýndi munsturreið.
Í lokin kepptu svo nemendur til úr-
slita í Gunnarsbikarnum. Að venju
var svo kaffi og verðlaunaafhend-
ing á Hvanneyri eftir sýninguna og
dregið í vinsælu folatollshappdrætti
nemendafélagsins.
Helstu úrslit urðu þessi:
Nemendur í Skeifukeppninni að
þessu sinni voru: Bjarki Már Har-
aldsson frá Sauðárkróki, Elín Sara
Færseth frá Grindavík, Eydís Anna
Kristófersdóttir frá Finnmörk,
Guðjón Örn Sigurðsson frá Skolla-
gróf, Jóna Þórey Árnadóttir frá Vík
og Þuríður Inga G. Gísladóttir frá
Skammdal 2. Kennari er Gunn-
ar Reynisson. Morgunblaðsskeifan
var veitt í 63. skipti en hún er veitt
fyrir bestan samanlagðan árang-
ur í frumtamningarprófi og reið-
mennskuhluta. Hana hlaut Guðjón
Örn Sigurðsson. Í öðru sæti varð
Eydís Anna Kristófersdóttir og í
þriðja sæti Þuríður Inga G Gísla-
dóttir.
Í keppni um Gunnarsbikarinn er
keppt í fjórgangi. Gunnarsbikar-
inn, í minningu Gunnars Bjarna-
sonar, hlaut Guðjón Örn Sigurðs-
son, í öðru sæti varð Þuríður Inga
G. Gísladóttir og í þriðja sæti Eydís
Anna Kristófersdóttir.
Ásetuverðlaun Félags tamning-
armanna hlaut Guðjón Örn Sig-
urðsson.
Framfaraverðlaun Reynis hafa
verið veitt síðan 2013 þeim nem-
anda sem hefur sýnt hvað m est-
an áhuga, ástundun og tekið hvað
mestum framförum í reiðmennsku-
áföngum. Þessi bikar er afhentur til
minningar um Reyni Aðalsteinsson
og hans góða starf við skólann og
víðar. Þau hlaut Bjarki Már Har-
aldsson.
Eiðfaxaverðlaunin eru veitt fyrir
bestan árangur í bóklegum áföng-
um í hestafræðum. Þar urðu jafnar
Þuríður Inga G. Gísladóttir og Elía
Bergrós Sigurðardóttir.
mm/ Ljósm. LhhÍ.
Glæsileg sýningaratriði á Skeifudeginum
Gunnarsbikarinn afhentur. Hann er gefinn af Bændasamtökum Íslands til minningar um Gunnar Bjarnason, fyrrum hrossaræktarráðunaut og kennara á Hvanneyri.
Borgfirzk börn undir stjórn Þórdísar Fjeldsted sýndu atriði.
Glæislegt sýningaratriði frá Töltgrúbbu Vesturlands var á Mið-Fossum undir stjórn
Ragnheiðar Samúelsdóttur.
Frá tryppasýningu nemenda LbhÍ.