Skessuhorn - 01.05.2019, Qupperneq 24
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 201924
Óskað eftir
styrkumsóknum
AKRANES: Akraneskaup-
staður óskar eftir umsóknum
um styrki til íþrótta- og tóm-
stundamála, en bæjarfélag-
ið veitir 15,5 milljónum til
íþrótta- og tómstundafélaga á
árinu 2019. Markmiðið er að
styðja virk félög á Akranesi til
að halda uppi öflugu íþrótta-,
félags- og tómstundastarfi fyr-
ir börn og unglinga. Styrkjun-
um er ætlað að veita fjárhags-
legan stuðning til þjálfunar
og leiðsagnar barna á aldrin-
um þriggja til 18 ára. Skilyrði
er að viðkomandi félag hafi
starfað í að minnsta kosti tvö
ár og staðið skil á lögform-
legum skyldum sínum. Sótt er
um styrkina rafrænt á heima-
síðu Akraneskaupstaðar. Um-
sóknarfrestur er til og með 20.
maí næstkomandi. -kgk
Staðfesta
samruna
LANDIÐ: Samkeppniseft-
irlitið hefur gefið samþykki
fyrir kaupum Arctic Advent-
ures hf. á eignarhlutum í fyr-
irtækjunum Into the glacier,
Skútusiglingum, Óbyggða-
setri, Welcome Entertain-
ment og Raufarhól, að því er
fram kemur í frétt Viðskipta-
blaðsins. „Félögin verða áfram
rekin sjálfstætt en í nánu sam-
starfi við Arctic Adventures,“
segir í fréttinni. -arg
Páskaaflatölur
fyrir Vesturland
20.-26. apríl
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu
Akranes: 24 bátar.
Heildarlöndun: 158.194
Mestur afli: Eskey ÓF: 46.744
kg í fimm róðrum.
Arnarstapi: 3 bátar.
Heildarlöndun: 17.116 kg.
Mestur afli: Bárður SH:
10.564 kg í einni löndun.
Grundarfjörður: 10 bátar.
Heildarlöndun: 239.495 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
65.166 kg í einum róðri.
Ólafsvík: 26 bátar.
Heildarlöndun: 621.496 kg.
Mestur afli: Steinunn SH:
95.555 kg í fjórum löndunum.
Rif: 12 bátar.
Heildarlöndun: 299.772 kg.
Mestur afli: Magnús SH:
82.778 kg í þremur róðrum.
Stykkishólmur: 4 bátar.
Heildarlöndun: 26.486 kg.
Mestur afli: Friðborg SH:
10.700 kg í fjórum róðrum.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Hringur SH - GRU:
65.166 kg. 25. apríl.
2. Sigurborg SH - GRU:
63.951 kg. 23. apríl.
3. Helgi SH - GRU:
46.304 kg. 23. apríl.
4. Magnús SH - RIF: 44.100
kg. 24. apríl.
5. Farsæll SH - GRU: 43.870
kg. 24. apríl.
-kgk
Færeyingar halda Flaggdagin
hátíðlegan ár hvert 25. apríl.
Nú eru liðin 100 ár frá því
færeyski fáninn blakti fyrst við
hún við brúðkaup í Fámjin í
Suðurey 25. apríl 1919. Send-
istofa Færeyja á Íslandi bauð
Færeyingum á Íslandi og öðru
tignarfólki til samkomu að
Kjarvalsstöðum í Reykjavík af
þessu tilefni. Boðið var upp á
færeyskan mat, færeyskan dans
og fleira. Ræðumaður dagsins
var Høgni Hoydal fiskimála-
ráðherra.
þg
Þessar glaðlegu stúlkur, Ásdís Re-
bekka, Eva María og Tinna Dís eru
allar nemendur í 4. bekk Brekku-
bæjarskóla á Akranesi. Ljósmyndari
Skessuhorns hitti þær á göngu síð-
astliðinn föstudag þar sem þær voru
að tína rusl úr beðum og meðfram
umferðargötum við Stillholt og
Kirkjubraut á Akranesi. Aðspurð-
ar sögðust þær vera að hreinsa upp
rusl að eigin frumkvæði. Þetta væri
ekki að frumkvæði skólans, foreldra
eða annarra, en þess má geta að víða
um suðvestanvert landið var mikill
plokkdagur haldinn á sunnudag-
inn. Stúlkurnar segja að þeim hafi
einfaldlega dottið í hug að gaman
væri að gera umhverfið fallegra og
minnka ruslið sem allsstaðar ligg-
ur. „Við vorum að læra um Jörðina
í skólanum í fyrra og hvað við sjálf-
ar gætum gert betur til að vernda
hana og bæta. Því ákváðum við að
fara bara sjálfar út og tína rusl, það
er sko fullt af því,“ sögðu þær glað-
beittar, enda voru þær fljótar að
fylla pokana sem þær voru með.
mm
Hjónin Bjarnheiður Jóhanns-
dóttir og Reynir Guðbrands-
son á Jörva í Haukadal og hjónin
Sigurbjörg Kristmundsdóttir og
Pétur Guðsteinsson á Giljalandi
í Haukadal hafa tekið við umsjón
Eiríksstaða af Sigurði Jökulssyni
frá Vatni í Haukadal. Fyrsti opn-
unardagur sumarsins á Eiríks-
stöðum er í dag, 1. maí, og verð-
ur opið alla daga til 30. septem-
ber. „Þetta verður örugglega ein-
hver breyting frá því sem var, en
Siggi á Vatni hefur séð um Ei-
ríksstaði í 16 ár. Sagan er þó að
sjálfsögðu sú sama og við mun-
um áfram bjóða upp á lifandi
leiðsögn. Gestir geta líka kom-
ið til okkar og fengið að klæðast
hjálmum og bera vopn og taka
myndir en það hefur verið mjög
vinsælt meðal ferðamanna,“ segir
Bjarnheiður í samtali við Skessu-
horn. Spurð hvers vegna þau
ákváðu að sækja um starfið seg-
ir Bjarnheiður að búseta og áhugi
á sögunni hafi spilað stórt hlut-
verk. „Við búum á móti Eiríks-
stöðum og það lá því beinast við
að sækja vinnu þangað. Við erum
líka mjög áhugasöm um land-
námsárin og söguna um Eiríks-
staði,“ segir Bjarnheiður.
Bæði hjónin á Jörva og Gilja-
landi eru með ferðaþjónustu í
Haukadal þar sem boðið er upp
á gistingu og segir Bjarnheið-
ur Eiríksstaði passa vel samhliða
því. „Þetta passar vel við það sem
við erum að gera og við erum að
bæta við okkar þjónustu vetrar-
ferða í Haukadal. Þá væri sniðugt
að bjóða því fólki líka á Eiríks-
staði,“ segir Bjarnheiður. arg
Færeyski fáninn.Á meðfylgjandi mynd eru nokkrir prúðbúnir Færeyingar. Høgni Hoydal er lengst til
vinstri á myndinni.
Færeyska fánanum nú flaggað í eina öld
Hreinsuðu rusl að eigin frumkvæði
Framtakssamar stúlkur hreinsa rusl. F.v: Ásdís Rebekka Karlsdóttir, Eva María Elíasdóttir og Tinna Dís Orradóttir.
Nýir umsjónaraðilar opna á Eiríksstöðum í dag, 1. maí. Ljósm. úr safni.
Nýir umsjónaraðilar á Eiríksstöðum
Bjarnheiður Jóhannsdóttir er ein fjögurra sem hafa tekið við umsjón með Eiríks-
stöðum.