Skessuhorn - 01.05.2019, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2019 25
Í fyrra fóru Íslendingar í um 668
þúsund ferðir til útlanda og námu
útgjöld þeirra 199 milljörðum
króna við þessi ferðalög. Þetta jafn-
gildir því að hver Íslendingur hafi
að jafnaði farið í tvær utanlands-
ferðir á árinu. Meðalútgjöld í ferð
námu um 297 þúsund krónum og
lækkaði lítillega frá fyrra ári. Með-
alútgjöld Íslendinga á ferðalagi er-
lendis eru ríflega tvöfalt hærri en
meðalútgjöld erlendra ferðamanna
í fyrra hér á landi, en þau námu um
144 þúsund krónum. Þetta er með-
al þess sem kemur fram í Hitamæl-
inum, riti Samtaka ferðaþjónust-
unnar þar sem fram fer efnahags-
leg greining á stöðu ferðaþjónust-
unnar.
„Hærri útgjöld Íslendinga eiga
sér sennilega margar skýringar, en
meðaldvalarlengd skiptir þar mestu.
Íslendingar dvelja að meðaltali um
19 nætur í utanlandsferð en meðal-
dvalarlengd erlendra ferðamanna
hér á landi voru 6,3 dagar á síðasta
ári,“ segir í Hitamælinum.
mm
Guðlaugur Gunnarsson á Hilmi
SH-197 var kátur þegar hann kom
í land síðasta miðvikudag með 3,2
tonn af boltafiski. Hafði hann far-
ið á sjó klukkan átta um morguninn
og var kominn í land tíu tímum síð-
ar, en þar af fóru rúmlega þrír tímar
í siglingu. Mjög góð handfæraveiði
hefur verið á Breiðafirði frá páskum
og talsvert um að bátar hafi tvíland-
að sama daginn.
Strandveiðar hefjast fimmtudag-
inn 2. maí og er mörgum sjömönn-
um farið að klæja í fingurnar að
hefja þær. Búið er að festa í lög að
strandveiðar mega vera tólf dagar í
mánuðunum maí til og með ágúst,
alls 48 dagar. þa
Það er árleg hefð hjá Lionsklúbbn-
um Rán í Snæfellsbæ að heimsækja
Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar
á sumardaginn fyrsta. Mæta Ránar-
konur þann dag og spila bingó með
heimilisfólki á Jaðri ásamt því að
bjóða upp á veglegar veitingar með
kaffinu að bingói loknu. Það er svo
spurning hverjir skemmta sér best á
bingóinu; Ránarkonur eða heimilis-
fólk, enda kátínan og gleðin í fyrir-
rúmi.
Þennan sama dag færði svo Lion-
sklúbburinn Rán og Lionsklúbbur
Ólafsvikur Jaðri handlyftu að gjöf.
Er hún af gerðinni Sara 3000. Lyf-
tan mun koma að góðum notum við
umönnun við heimilisfólk. þa
Félagar úr Lionsklúbbnum Öglu í
Borgarnesi færðu nýverið Björgun-
arsveitinni Brák 300 þúsund krónur
að gjöf í tilefni 70 ára afmælis björg-
unarstarfs í Borgarnesi. Einar Örn
Einarsson, formaður Brákar, veitti
gjöfinni viðtöku og þakkaði góðan
stuðning. Enn fremur var Öldunni
í Brákarey, sem er vinnustofa fólks
með skerta starfsgetu, færð tifsög
og ryksuga að gjöf. Það eru tæki
sem nýtast vel starfsemi Öldunnar.
Auk þess var Brákarhlíð í Borgar-
nesi færðar 300 þúsund krónur til
uppbyggingar á gróðurhúsi, eins og
áður hefur komið fram í blaðinu.
mm/meg
Laugardaginn 4. maí klukkan 11
hefst Sindratorfæran á Hellu. Mik-
il spenna er í fólki þar sem þetta
er fyrsta umferð Íslandsmótsins
og upphaf keppnistímabilsins. 19
keppendur er skráðir til leiks og
ef keppendalistinn er skoðaður
má þar sjá mörg ný nöfn. Þrír nýir
ökumenn í götubílaflokki og fimm
í sérútbúnum, þar af tveir bresk-
ir keppendur sem koma á vegum
Topgear og ætla að sýna Íslending-
unum hvernig á að gera þetta. Bíl-
arnir eru búnir að taka breyting-
um í vetur; búið að skipta um vél-
ar í einhverjum og sennilega búið
að skrúfa hverja skrúfu tíu sinn-
um og bæta nokkrum við í hverj-
um einasta. Einhverjir verða á ný-
smíðuðum bílum sem aldrei hafa
sést áður og aðrir búnir að breyta
það miklu að þeir eru óþekkjanleg-
ir. Þeir keppendur sem hafa ver-
ið að slást um titilinn undanfarin
ár eru að sjálfsögðu á keppenda-
listanum. Íslandsmeistarinn Þór
Þormar Pálson á Thor, Ingólfur
Guðvarðarson á Guttanum, Geir
Evert Grímsson og Haukur Viðar
Einarsson og fleiri til í sérútbúna
flokknum. Steingrímur Bjarnason
á Strumpnum situr hins vegar einn
gamalreyndur í Götubílaflokknum
með þrjá nýliða með sér.
Akstursíþróttasvæði Flugbjörg-
unarsveitarinnar á Hellu er rétt
austan við þorpið á Hellu og hef-
ur sjaldan litið betur út. Búið að
leggja mikinn metnað í svæðið og
brautirnar. Áin og mýrin verða að
sjálfsögðu á sínum stað, auk brauta
í börðum og sandbrekkum og mjög
hraðri tímabraut þar sem oft verða
mikil tilþrif.
Flugbjörgunarsveitin á Hellu
hefur haldið keppnina nær óslitið
síðan 1974 og því engir nýgræðing-
ar í hvernig á að framkvæma gott
mót. Torfæran er áhorfendavæn,
fjölskylduvæn og bráðskemmtileg
með mikið fyrir augað og helling
fyrir eyrað. Sjáumst á Sindrator-
færunni 4. maí!
-fréttatilkynning
Starfsfólk Öldunnar tekur við tækjunum frá Lionskonunum.
Lionsklúbburinn Agla
gefur góðar gjafir
María Guðmundsdóttir, Elfa Hauksdóttir, María Erla Geirsdóttir og Einar Örn
Einarsson formaður Brákar.
Lionsklúbbarnir gáfu
handlyftu á Jaðar
Sindratorfæran á Hellu
um næstu helgi
Kátur með veiðina
Hver Íslendingur að meðaltali
tvisvar á ári til útlanda