Skessuhorn - 01.05.2019, Side 26
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 201926
Snorrastofa hefur tekist á hend-
ur, nú í annað sinn, að leiða barna-
menningarhátíð í Reykholti. Há-
tíðin verður haldin miðvikudaginn
8. maí næstkomandi í samstarfi við
Elísabetu Haraldsdóttur menning-
arfulltrúa Vesturlands, grunnskóla
í nágrenninu og Uppbyggingarsjóð
Vesturlands, sem hefur gert menn-
ingu fyrir og með börnum að sér-
stöku verkefni. Nemendum á mið-
stigi Auðarskóla í Búðardal, Grunn-
skóla Borgarfjarðar, Grunnskól-
ans í Borgarnesi, Reykhólaskóla og
Laugargerðisskóla er boðið að njóta
saman þessa vordags á höfuðbóli
Snorra Sturlusonar, kynna eigin
sköpun og hugverk hver fyrir öðr-
um og kynnast einnig ýmsu öðru,
sem lífið á miðöldum bauð.
Dagurinn hefst með framlögum
nemenda kl. 9:30 – 11 og eftir há-
degishressingu eykst miðaldablær
staðarins þegar lista- og handverks-
fólk setur upp líf í anda miðalda vítt
og breitt um staðinn, sem börnin fá
að taka þátt í og upplifa í stærri og
minni hópum.
Komedíuleikhúsið sýnir Gísla
Súrsson í flutningi Elvars Loga
Hannessonar, hljóðfæri og tónlist
miðalda kynnir Kristín Lárusdótt-
ir (Selló-Stína) og félagar. Mið-
aldaritstofa Árnastofnunar kynn-
ir fyrir nemendum aðstæðum og
vinnubrögðum skrifaranna í Reyk-
holti undir verkstjórn Svanhildar
M. Gunnarsdóttur og í Laufeyjar-
lundi verður sett upp brauðgerð þar
sem aðferðir þessa löngu liðna tíma
verða viðhafðar að hætti Bryndís-
ar Geirsdóttur og Hins blómlega
bús. Allir taka svo þátt í ratleik, sem
Snorrastofa setur upp í tilefni dags-
ins í Snorra-appinu, sem nú þegar
hefur verið gefið út og er í notkun á
staðnum. Ratleikurinn verður í um-
sjón Steinunnar Önnu Gunnlaugs-
dóttur hjá fyrirtækinu Locatify, sem
gefur út Snorra-appið og hefur ný-
lega flutt starfsemi sína í Borgar-
nes. Heimferð nemenda er áætluð
kl. 16.
Fyrsta hátíðin af þessu tagi í
Reykholti var fyrir þremur árum,
vorið 2016, og að henni lokinni
var ákveðið að stofna til hennar á
þriggja ára fresti. Það virðist geta
hentað vel fyrir miðstig grunn-
skólanna, sem nær yfir þrjá ár-
ganga þar sem tekist er á við náms-
efni um Snorra og samtíma hans.
Lagt er kapp á að hátíðin verði
viðráðanleg þannig að vilji og
gleði lifi og hvetji aðstandendur til
hún verði að taktföstum viðburði í
samfélaginu.
Miðvikudagurinn 8. maí 2019
verður, ef að líkum lætur, hinn
fjörugasti og öllum er frjálst að
koma og samgleðjast börnunum á
hátíð þeirra.
Fréttatilkynning
Eitt af öruggum merkjum sumar-
komu er Langasandsreið hesta-
manna á Akranesi á Sumardag-
inn fyrsta. Ferðatilhögun er ein-
att með þeim hætti að riðið er nið-
ur á Langasand á fjöru og var ferðin
því að þessu sinni farin um nónbil.
Dágóður hópur vaskra hestamanna
mætti á sandinn og leyfðu klárun-
um að bleyta í sér í sjónum. Áður
var að venju komið við á hlaðinu
við Sólmundarhöfða og gátu íbúar
á Höfða sem vildu kíkt út og heils-
að upp á menn og málleysingja. Ása
Hólmarsdóttir formaður Dreyra af-
henti Ólafi Elíssyni blómvönd og
tók hann við þeim fyrir hönd íbúa.
Fjögurra áratuga hefð er fyrir þeim
huggulegheitum Dreyrafólks. Eftir
viðkomu á Höfða var sprett úr spori
á sandinum. mm/ Ljósm. mkg.
Breytingar urðu á stjórn Umf. Vík-
ings/Reynis á aðalfundi sem fram
fór 23. apríl síðastliðinn. Þær Þór-
halla Baldursdóttir og Berglind
Magnúsdóttir gengu úr stjórn en
í þeirra stað voru kosnir þeir Al-
exander Kristinsson og Michael
Gluszuk. Nýju stjórnina mynda því
þau Margrét Sif Sævarsdóttir, Ari
Bent Ómarsson, Garðar Kristjáns-
son, Alexander Kristinsson, Micha-
el Gluszuk og Þorsteinn Haukur
Harðarson framkvæmdastjóri Vík-
ings. Mun stjórnin hittast á næstu
dögum og skipta með sér verkum.
þa
Svipmyndir frá
Sumardeginum fyrsta
Ný stjórn í Umf.
Víkingi/Reyni
Tindur er efnilegur
hvolpur og afar
fallegur. Á fyrsta
sumardag var hann
að spóka sig um
í góða veðrinu á
Akranesi ásamt Gróu
Þorsteinsdóttur
eiganda sínum.
Ljósm. mm.
Félag eldri borgara í Grundarfirði skelltu í vöfflur og meðlæti á sumardaginn
fyrsta í samkomuhúsi bæjarins. Fjöldi gesta lagði leið sína þangað og gæddu sér
á gómsætum vöfflum og kaffi. Einnig var glæsileg handverkssýning í húsinu þar
sem félagsmenn sýndu afrakstur vetrarins. Ljósm. tfk.
Slysavarnadeildin Sumargjöf í Ólafsvík fagnaði sumri með hefðbundnum hætti en
slysavarnakonur hafa í mörg ár staðið fyrir kökubasar á sumardaginn fyrsta. Árið
í ár var engin undantekning og svignuðu borðin í Mettubúð undan kræsingunum
sem slysavarnakonur buðu til sölu í fjáröflunarskini. Seldist fljótlega allt upp af
basarnum enda hafa bæjarbúar alltaf stutt vel við bakið á slysavarnadeildunum.
Ljósm. þa.
Dreyra fólk í Langasandsreið
á Sumardaginn fyrsta
Börnin mæta miðöldum í Reykholti