Skessuhorn - 01.05.2019, Page 28
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 201928
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Leikar hófust í 32 liða úrslitum
mjólkurbikars karla í knattspyrnu
um helgina og þá var einnig leikið
í gær, þriðjudag. Flestir leikir um-
ferðarinnar fara aftur á móti fram í
dag, miðvikudaginn 1. maí. Þeirra
á meðal er viðureign ÍA og Augna-
bliks, sem hefst kl. 14:00 á Würth-
vellinum í Árbæ Reykjavíkur. Önn-
ur Vesturlandslið hafa þegar lokið
þátttöku sinni í bikarkeppninni að
þessu sinni. Þau lið sem bera sigur
úr býtum í 32 liða úrslitum verða í
pottinum þegar dregið verður í 16
liða úrslit á föstudag.
Keppni hefst í Mjólkurbikar
kvenna á föstudaginn kemur með
sex leikjum. ÍA tekur þátt í keppn-
inni að þessu sinni, eitt Vesturlands-
liða. Skagakonur sitja hjá í fyrstu
umferð og leika því sinn fyrsta leik
í annarri umferð þegar þær mæta
FH í Hafnarfirði þriðjudaginn 14.
maí. kgk
Körfuboltadagur Umf. Víkings/
Reynis var haldinn í Íþróttahúsi
Snæfellsbæjar á sumardaginn fyrsta.
Það var Héraðssamband Snæfells-
og Hnappadalssýslu sem stóð fyrir
viðburðinum og var hann ætlaður
fyrir krakka á grunnskólaaldri. Vla-
dimir Ivankovic þjálfari Snæfells í
körfubolta mætti ásamt leikmönn-
um til að sýna krökkunum og kenna
en farið var í helstu undirstöðuat-
riðin ásamt ýmsu fleiru. Að nám-
skeiði loknu fengu krakkarnir svo
allir ís sem var viðeigandi á sumar-
daginn fyrsta. Voru þeir sem mættu
á viðburðinn mjög ánægðir. HSH
mun svo standa yfir knattspyrnu-
degi í Stykkishólmi laugardaginn
8. júní.
þa
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylf-
ingur úr Golfklúbbnum Leyni, náði
sér ekki á strik á Lalla Meryem Cup
mótsins í Marokkó í síðustu viku.
Mótið er hluti af Evrópumótaröð
kvenna.
Valdís lék fyrsta hring mótsins
á fimmtudag á 76 höggum, eða
þremur yfir pari vallarins. Hring-
inn á föstudag fór hún á 77 högg-
um, eða fjórum yfir pari. Þriðja
hring mótsins fór hún á 76 högg-
um og þann fjórða sömuleiðis. Hún
lauk því keppni á samtals 13 högg-
um yfir pari og hafnaði í 62. sæti.
Það var hin spænska Narcia Itur-
rios sem fagnaði sigri í mótinu á 13
höggum undir pari, sjö höggum á
undan næstu kylfingum.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Snæfell sigraði Björninn í undanúr-
slitum C deildar Lengjubikars karla
í knattspyrnu á sunnudaginn. Leik-
ið var í Akraneshöllinni og fengu
áhorfendur heldur betur fjörugan
leik því sex mörk litu dagsins ljós og
eitt rautt spjald fór á loft. Snæfell-
ingar fengu óskabyrjun þegar Eiv-
inas Zagurskas kom Stykkishólms-
liðinu yfir á 9. mínútu. Fleiri mörk
voru ekki skoruð í fyrri hálfleik
og Hólmarar því 1-0 yfir í hléinu.
Engin stór tíðindi voru af leiknum
framan af síðari hálfleik, en síðasta
hálftímann opnuðust allar flóð-
gáttir. Júlíus Orri Óskarsson jafn-
aði metin fyrir Björninn á 62. mín-
útu en Milos Janicijevic kom Snæ-
felli yfir að nýju aðeins mínútu síð-
ar. Gabrellius Zagurskas var vikið
af velli á 74. mínútu og Snæfelling-
ar orðnir manni færri. Það virtist
hins vegar ekki há þeim sérstaklega,
því fimm mínútum síðar juku þeir
forystu sína í 3-1 með marki Mar-
ius Ganusauskas. Í uppbótartíma
skoraði Eivinas annað mark sitt
og fjórða mark Snæfellinga. Sól-
on Kolbeinn Ingason klóraði að-
eins í bakkann fyrir gestina á fjórðu
mínútu uppbótartíma og lokatölur
urðu 4-2, Snæfelli í vil. Úrslitaleik-
ur Lengjubikarsins fer fram sunnu-
daginn 1. maí næstkomandi. Þar
mæta Snæfellingar liði GG. kgk
Bikarleikir framundan
Skagakonur sitja hjá í fyrstu umferð Mjólkurbikarsins og leika því ekki fyrr en 14.
maí næstkomandi. Ljósm. úr safni/ sas.
Náði sér ekki á strik
í Marokkó
Snæfell í úrslit Lengjubikarsins
Körfuboltadagur í Snæfellsbæ