Skessuhorn - 01.05.2019, Síða 30
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 201930
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Hvernig heldur þú að
sumarið verði?
Spurni g
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Pálmi Lórensson
Ég held að það verði bara ágætt.
Gerður Guðjónsdóttir
Það verður bara gott.
Ágústa Friðriksdóttir
Einhversstaðar verður það gott,
sérstaklega hér.
Jakob Baldursson
Kalt.
Lilja Karen Norðquist
Vonandi verður það betra en í
fyrra. Þetta er allavega góð byrjun.
„Eins og venjulega er tilhlökkun og
spenna í mannskapnum. Við erum
vel stemmdir og vonum að við get-
um gert góða hluti í sumar,“ seg-
ir Ejub Purisevic, þjálfari Víkings
Ó., í samtali við Skessuhorn. Vík-
ingur Ó. hefur leik í Inkasso deild
karla í knattspyrnu næstkomandi
sunnudag, 5. maí, þegar liðið mæt-
ir Gróttu á Ólafsvíkurvelli. Liðið
er mikið breytt frá fyrra ári og leik-
menn hafa verið að bætast við hóp-
inn þar til rétt fyrir mót. „Við not-
uðum mikið af ungum strákum á
undirbúningstímabilinu. Það gerð-
um við viljandi, vildum gefa þeim
fleiri leiki og fleiri mínútur, strák-
arnir þurfa að fá þessa reynslu sem
þeir fengu í vetur til að vaxa sem
leikmenn,“ segir Ejub. „En auðvi-
tað er erfitt að missa marga leik-
menn á milli ára. Hópurinn er mik-
ið breyttur og farnir margir þeirra
sem drógu vagninn á síðasta ári og
skoruðu mörkin,“ bætir hann við.
„Það tekur stundum tíma að fá
nýja leikmenn og það hefur geng-
ið hægar en í fyrra. Núna er mark-
miðið okkar að ná jafn stórum hópi
og í fyrra og vonandi tekst það, því
við erum enn að bæta í hópinn.
Best væri ef við gætum haldið 15
manns á milli ára og byggt ofan á
það, en svona er þetta bara. Leik-
menn í dag koma og fara og það
eru alltaf stærri klúbbar sem vilja
þá sem standa sig vel. Það er ekk-
ert að því og bara eðlilegt að menn
vilji reyna sig annars staðar líka,“
segir þjálfarinn.
Bætt aðstaða skilar
sér í framtíðinni
Liðinn vetur er sá fyrsti sem Vík-
ingur Ó. hefur átt þess kost að
æfa á nýja gervigrasinu í Ólafsvík
á meðan undirbúningstímabilinu
stendur. Ejub telur að bætt aðstaða
komi til með að hafa mikið að segja
til framtíðar. „Fyrir jól gátum við
nánast alltaf farið út á völl að æfa
en það var erfiðara eftir jólin, mik-
ill snjór og leiðinlegra veður. Það
var síðan ekki fyrr en í mars að
við komumst út aftur. En þetta er
betra en hefur verið undanfarin ár,
ekki spurning. En eins og í öllu þá
þurfum við meiri tíma til að sjá alla
kostina við bætta aðstöðu koma í
ljós. Ég er ekki í vafa um að þetta
muni skila sér í framtíðinni,“ seg-
ir hann. „En við búum auðvitað
áfram við það sem er svolítið öðru-
vísi en hjá klúbbum á Akranesi eða
í Reykjavík; hluti hópsins er fyrir
sunnan yfir veturinn, margir ungir
strákar í námi og svoleiðis. Þannig
að venjulega fáum við hópinn ekki
til okkar í Ólafsvík nema rétt fyrir
mót eða jafnvel bara þegar mótið
er að byrja. Þá byrjum við að vinna
í hlutum sem væri betra að vera að
fara yfir í mars,“ segir hann léttur í
bragði. „En svona er þetta bara, við
verðum bara að taka þessu eins og
þetta er og reyna að gera það besta
úr stöðunni,“ bætir hann við.
Berjast fyrir
hverjum bolta
Aðspurður vill þjálfarinn ekki gefa
upp nein markmið um árangur í
aðdraganda mótsins, heldur bíða
og sjá hvernig sumarið fer af stað.
„Ég er þannig týpa að mig langar
alltaf að vera í efri hlutanum í öll-
um deildum, en helsta markmið-
ið núna er að ná stöðugleika í leik-
mannahópinn. Ef hópurinn síðan
smellur saman þá gætum við far-
ið að huga að stærri hlutum,“ seg-
ir Ejub. „Fyrst er að ná svipuðum
hópi og í fyrra og vonandi góð-
um gæðum. Þá sjáum við hvort við
erum með lið sem getur ekki bar-
ist um efstu sætin í deildinni. Það
er ómögulegt að setja fram stór
markmið í upphafi mótsins, í ljósi
aðstæðna. Vonandi getum við gert
eins og í fyrra en það verður bara
að koma í ljós. Þá misstum við líka
marga leikmenn en vorum ein-
hvern veginn miklu fyrr komn-
ir með kjarnann í liðinu saman,
bara um miðjan mars, en núna tók
þetta aðeins lengri tíma. En þetta
kemur fljótlega í ljós eftir að mót-
ið fer af stað, eftir sex til sjö um-
ferðir kannski, hvað við getum gert
í sumar,“ segir hann. „Einu get ég
þó lofað og það er að við munum
koma vel stemmdir inn í mótið,
berjast fyrir hverjum einasta bolta
og hverju einasta stigi og gefa allt
sem við eigum. Við leggjum okk-
ur fram og getum vonandi gert eins
góða hluti í sumar og við höfum
verið að gera undanfarin ár,“ segir
Ejub Purisevic að endingu.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Undanfarnar tvær vikur hefur
knattspyrnudeild Víkings Ó. samið
við fjóra leikmenn um að leika með
liðinu í Inkasso deild karla í knatt-
spyrnu í sumar. Sallieu Tarawallie,
Martin Kuittinen, Jacob Ander-
sen og síðast en ekki síst Kristófer
Reyes.
Sallieu Tarawallie er 24 ára gam-
all og landsliðsmaður Síerra Leone.
Hann getur leikið bæði sem kant-
maður og framherji. Sallieu skrifaði
undir samning við Víking í febrú-
ar, en pappírsmál drógust á langinn
og því ekki hægt að kynna hann til
leiks fyrr en seinni part aprílmán-
aðar, að því er fram kemur á Fa-
cebook-síðu félagsins.
Martin Kuittinen er 22 ára gam-
all, finnskur kantmaður. Hann á að
baki leiki fyrir yngri landslið Pól-
lands, en þaðan er hann ættaður.
Undanfarin ár hefur Martin leik-
ið í Portúgal. Hann fór með Vík-
ingi í æfingaferð til Spánar nú í
vor þar sem hann stóð sig vel og
ákváðu Ólafsvíkingar því að ganga
til samninga við hann.
Jacob Andersen er danskur fram-
herji og 25 ára gamall. Hann geng-
ur til liðs við Víking frá Egersund
IK í Noregi.
Kristófer Reyes þarf ekki að
kynna fyrir stuðningsmönnum
Víkings Ó. Hann er uppalinn hjá
Ólafsvíkurliðinu og snýr nú heim
að nýju eftir þrjú ár með Fram.
Kristófer skrifaði undir tveggja ára
samning við liðið.
kgk/ Ljósm. Víkingur Ó.
Víkingur Ó. styrkir hópinn
Kristófer Reyes er kominn heim til Ólafsvíkur eftir þrjú ár í herbúðum Fram. Danski framherjinn Jacob Anderson í æfingaleik með Ólafsvíkurliðinu.
„Tilhlökkun og spenna í mannskapnum“
segir Ejub Purisevic, þjálfari Víkings Ó.
Fyrirliðinn Emir Dokara í baráttunni í leik með Ólafsvíkingum.
Ejub Purisevic, þjálfari Víkings Ó.
Leikmenn Víkings Ó. fagna marki síðasta sumar.