Skessuhorn - 01.05.2019, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2019 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Eftir stutt hlé léku Skagamenn sinn
fyrsta leik í efstu deild karla í knatt-
spyrnu á laugardaginn þegar þeir
tóku á móti KA á Akranesvelli í
fyrsta leik liðanna í Pepsí Max deild-
inni. Byrjunin lofar vissulega góðu
því heimamenn sóttu mun meira
allan leikinn og gáfu gestunum fá
tækifæri. Greinilegt er að Jóhannes
Karl þjálfari hefur byggt upp hör-
kulið sem til alls er líklegt í sumar.
Það var því í takti við gang leiksins
að Tryggvi Hrafn Haraldsson skor-
aði fyrsta markið á 32. mínútu eft-
ir mistök í vörn gestanna. Nokkr-
um mínútum síðar bætti Viktor
Jónsson öðru marki við fyrir ÍA.
Gestirnir náðu að klóra í bakkann
á lokamínútu fyrri hálfleiks með
marki Hallgríms Mar Hrafnssonar
og staðan því 2-1 í hléi.
Heimamenn tryggðu stöðu sína
ágætlega á 67. mínútu þegar þriðja
mark ÍA var staðreynd og aftur var
það Tryggvi Hrafn Haraldsson
sem var á ferðinni með glæsilegu
marki beint úr aukaspyrnu. Fleiri
urðu mörkin ekki þrátt fyrir ágætar
sóknir beggja liða.
Leikurinn í heild var býsna fjör-
ugur en heimamenn sköruðu fram
úr og 3-1 heimasigur var verð-
skuldaður. Aðstæður á Akranesvelli
voru ákjósanlegar á laugardaginn;
hægur vindur og hitinn um 11 stig.
Maður leiksins var Tryggvi Hrafn
Haraldsson.
mm/ Ljósm. Guðmundur Bjarki
Halldórsson.
ÍA fagnaði sigri í 1. deild karla
á síðasta ári og leikur því í deild
þeirra bestu í sumar, Pepsi Max
deildinni sem nú heitir. Skagamenn
léku sinn fyrsta leik í mótinu á laug-
ardaginn þegar þeir sigruðu KA 3-1
á Akranesvelli, eins og fram kemur í
fréttinni hér að ofan. Jóhannes Karl
Guðjónsson, þjálfari liðsins, var
fullur eftirvæntingar þegar Skessu-
horn ræddi við hann í síðustu viku.
„Sumarið leggst vel í okkur, við
erum búnir að undirbúa okkur vel í
allan vetur. Fyrst og fremst er mik-
il tilhlökkun í hópnum fyrir sumr-
inu. Strákarnir eru búnir að leggja
hart að sér í vetur. Hópurinn er í
toppstandi og allir klárir í slaginn,“
segir Jóhannes Karl í samtali við
Skessuhorn. „Aðstæðurnar virðast
líka ætla að verða með besta móti í
byrjun sumars. Akranesvöllur kem-
ur vel undan vetri, grænn og flottur
og við hlökkum til að byrja mótið á
heimavelli,“ bætir hann við.
Ætla að spila
skemmtilegan bolta
Liðið hefur átt góðu gengi að fagna
á undirbúningstímabilinu, fór með-
al annars í úrslit Lengjubikarsins.
Frá áramótum hefur ÍA spilað ell-
efu leiki, sigrað í níu þeirra en tap-
að tveimur. Í þessum ellefu leikj-
um hefur liðið skorað 34 mörk og
fengið átta á sig. „Okkur gekk vel
á undirbúningstímabilinu, fórum í
úrslit Lengjubikarsins og liðið hef-
ur staðið sig vel. Við höfum skor-
að mikið af mörkum en á sama tíma
hefur varnarleikurinn verið góð-
ur og við fengið fá mörk á okkur.
Við erum mjög ánægðir með það,“
segir þjálfarinn. „Bæði varnarleik-
ur og sóknarleikur hefur verið góð-
ur á undirbúningstímabilinu og við
erum líka komnir með aðeins meiri
breidd í sóknarlínuna en við höfð-
um. Við viljum vera lið sem kem-
ur sér í færi og ætlunin er að skora
mikið af mörkum og spila bolta
sem fólk hefur gaman af að horfa
á,“ segir hann.
Markið sett á
efri hlutann
Aðspurður segir Jóhannes að liðið
ætli sér að vera í efri hluta deildar-
innar í sumar. „Okkur hefur verið
spáð ágætis gengi og við ætlum að
stimpla okkur vel inn í efstu deild.
Þar viljum við vera. Það er alls ekki
þannig að við ætlum bara að halda
okkur uppi. Markmiðið er klár-
lega að berjast í efri hluta deildar-
innar. Við erum bara þannig hóp-
ur og ÍA þannig félag að við telj-
um okkur eiga heima þar. Fyrir því
ætlum við að berjast í sumar,“ segir
hann hvergi banginn. „Við höfum
fulla trú á því sem við erum að gera.
Leikmannahópurinn er tilbúinn að
leggja mikið á sig. Það hefur hann
sýnt og það mun halda áfram þegar
deildin byrjar. Strákarnir hafa trú á
sjálfum sér og hvorum öðrum. Með
það að leiðarljósi ætlum við okk-
ur að berjast í efri hlutanum. Upp-
leggið er fara inn í alla leiki til að
vinna þá. Við trúum því að við get-
um unnið öll liðin í deildinni. Það
verður ekki auðvelt en við teljum
okkur geta sótt þrjú stig úr öllum
leikjum, auðvitað með mismun-
andi hætti í hverjum og einum leik,
en það er ekkert lið í deildinni sem
við höfum ekki trú á að við getum
lagt að velli,“ segir Jóhannes Karl
að endingu.
kgk/ Ljósm. úr safni/ gbh
Knattspyrnumenn framtíðarinnar létu sig ekki vanta.
Verðskuldaður sigur Skagamanna í fyrsta leik sumarsins
Tryggvi Hrafn maður leiksins í sókn. Annað markið staðreynd og vel fagnað.
Liðin mæta hér á völlinn.
„Teljum okkur geta sótt þrjú stig úr öllum leikjum“
- segir Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari karlaliðs ÍA
Marki fagnað í leiknum síðastliðinn laugardag.
Jóhannes Karl Guðjónsson á hliðarlín-
unni á Akranesvelli síðastliðið sumar.
Skagamenn fögnuðu sigri í næstefstu deild að loknu síðasta keppnistímabili. Hér
er Árni Snær Ólafsson, markvörður og fyrirliði, með bikarana á lofti.