Skessuhorn - 03.07.2019, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 3. júLí 20198
Stýrivextir lækka
um 0,25 prósent-
ur
LANDIÐ: Peningastefnunefnd
Seðlabankans ákvað í síðustu
viku að lækka vexti bankans um
0,25 prósentur og eru stýrivext-
ir því orðnir 3,75%. Stutt er
síðan peningastefnunefnd lækk-
aði síðast vexti, en 22. maí síð-
astliðinn voru stýrivextir lækk-
aðir um 0,5 prósentur. Stýri-
vextir hafa þannig lækkað um
0,75 prósentur frá undirritun
kjarasamninga en meginmark-
mið kjarasamninganna var að
treysta lífskjör með hækkun
launa, lækkun vaxta og aðgerð-
um stjórnvalda. Vaxtalækkun nú
er bein afleiðing minni umsvifa
í efnahagslífinu. Stýrivextir hafa
ekki verið undir 4% síðan árið
2011. Seðlabankinn telur að
verðbólga, sem nú er 3,3%, hafi
náð hámarki og eigi eftir að fær-
ast nær 2,5% verðbólgumark-
miði bankans seinna á árinu.
-mm
Tíu þúsund
án vinnu
LANDIÐ: Samkvæmt árstíða-
leiðréttum tölum Hagstofunn-
ar var fjöldi fólks á vinnumark-
aði 209.900 í maí síðastliðnum.
Árstíðaleiðrétt atvinnuþátt-
taka var 81,1%, sem er 1,3 pró-
sentustigi lægra hlutfall en var í
apríl. Atvinnulausir voru 10.000
í maí, eða 4,7% vinnuafla, sem
er einu og hálfu prósentustigi
hærra en í apríl. -mm
Ráða tímabundið
eldvarnaeftirlits-
mann
AKRANES: Bæjarráð Akra-
neskaupstaðar hefur samþykkt
að ráða tímabundið til ársloka
2020 starfsmann til Slökkviliðs
Akraness og Hvalfjarðarsveit-
ar. Skal hann sinna eldvarnaeft-
irliti. Bæjarráð fól bæjarstjóra
og sviðsstjóra stjórnsýslu- og
fjármálasviðs frekari úrvinnslu
málsins. -mm
Jarðgöng og
lágbrú
RVK: Starfshópur á vegum
ríkisins og Samtaka sveitarfé-
laga á höfuðborgarsvæðinu sem
fjallaði um Sundabraut hefur
lokið störfum og skilað skýrslu
til samgöngu- og sveitarstjórn-
arráðherra. Sundabraut hefur
verið til skoðunar um árabil og
í skýrslunni eru nokkrir valkost-
ir vegnir og metnir. í niðurstöð-
um hópsins eru tveir valkost-
ir taldir koma til greina; jarð-
göng yfir í Gufunes og lágbrú
sem þverar hafnarsvæðið við
Kleppsvík. Hvorki botngöng né
hábrú yfir Kleppsvík voru taldir
fýsilegir kostir. Starfshópurinn
fór yfir öll fyrirliggjandi gögn
um framkvæmdina og lét upp-
færa kostnaðaráætlanir og um-
ferðarspár. Erfiðasti og dýr-
asti hluti mögulegrar Sunda-
brautar er þverun Kleppsvíkur.
í Kleppsvík er nú umfangsmik-
il starfsemi Sundahafnar, sem er
megingátt íslands í vöruflutn-
ingum á sjó. Sjá nánar í frétt á
vef Skessuhorns í gær.
-mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
22.-28. júní
Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu:
Akranes: 14 bátar.
Heildarlöndun: 18.499 kg.
Mestur afli: ísak AK: 4.388 kg í
fjórum löndunum.
Arnarstapi: 16 bátar.
Heildarlöndun: 20.330 kg.
Mestur afli: Gísli KÓ: 2.690 kg í
þremur löndunum.
Grundarfjörður: 16 bátar. Heild-
arlöndun: 227.937 kg.
Mestur afli: Hringur SH: 67.496
kg í einni löndun.
Ólafsvík: 28 bátar.
Heildarlöndun: 80.120 kg.
Mestur afli: Egill SH: 30.380 kg í
þremur löndunum.
Rif: 17 bátar.
Heildarlöndun: 64.649 kg.
Mestur afli: Rifnes SH: 29.552 kg
í einum róðri.
Stykkishólmur: 24 bátar. Heild-
arlöndun: 130.285 kg.
Mestur afli: Blíða SH: 13:199 kg í
fimm löndunum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Hringur SH – GRU: 67.496 kg.
26. júní.
2. Sigurborg SH – GRU: 54.625
kg. 24. júní.
3. Helgi SH – GRU: 44.718 kg.
24. júní.
4. Farsæll SH – GRU: 40.231 kg.
25. júní.
5. Rifnes SH – RIF: 29.552 kg. 28.
júní. -arg
Síðdegis sunnudaginn 30.
júní fóru tvær mæður með
börnin sín þrjú upp á háls-
inn í Reykholtsskógi til að
gróðursetja. Þau eru Elyn,
Marni, Maui, Haukur Mik-
ael og Kristján Einar. Þau
voru í fylgd með Laufeyju
Hannesdóttur í Skógrækt-
arfélagi Borgarfjarðar. Þau
gróðursettu 67 birkiplöntur
og 67 stafafurur. Myndin er
tekin uppi á hálsinum norð-
an við Skáneyjarbungu í lok
gróðursetningar. í baksýn er
Eiríksjökull dillandi glaður
yfir framtakinu. lh
Hjá Ríkiskaupum voru í síðustu
viku opnuð tilboð í byggingu nýrr-
ar Þjóðgarðsmiðstöðvar á Hell-
issandi. Þrjú tilboð bárust og var
lægsta boð frá ístaki sem bauð 622
milljónir króna í verkið. Eykt bauð
716 milljónir og Framkvæmdafé-
lagið Arnarhvoll 738 milljónir. Til-
boðin voru öll langt yfir kostnaðar-
áætlun við verkið sem hljóðaði upp
á rúma 461 milljón króna. Tilboð
ístaks var því 35% yfir kostnaðar-
áætlun. Framkvæmdasýsla ríkisins
og Ríkiskaup munu nú yfirfara til-
boðin. Á Hellissandi er nú búið að
girða svæðið af, grafa fyrir vænt-
anlegu húsi og jarðvegsskipta fyrir
bílastæðum. mm
Nýverið voru hjá Ríkiskaupum
opnuð útboð í skólaakstur fyr-
ir Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit,
alls fimm akstursleiðir með grunn-
skólabörn. Þrír buðu í tvær akst-
ursleiðanna, en tveir í þrjár þeirra.
Skagaverk átti lægsta boð í allar
akstursleiðirnar fimm, þ.e. A-leið
á Hvalfjarðarströnd, B-leið Svína-
dalsleið, C-leið Akrafjallsleið Aust-
ur, D leið Akrafjallsleið Vestur og
Melasveitarleið. Verð Skagaverks
pr. ekinn kílómeter var frá 528 til
698 krónur. Auk Skagaverks buðu
Hópferðabílar Reynis jóhanns-
sonar í akstur á öllum aksturs-
leiðum og Sigurður Sverrir jóns-
son í akstur um Hvalfjarðarströnd
og Svínadalsleið. Að sögn Lindu B
Pálsdóttur sveitarstjóra mun Rík-
iskaup nú fara yfir innkomin til-
boð, en endanleg afgreiðsla er í
höndum sveitarstjórnar sem fund-
ar næst 9. júlí.
mm
Dagana 25.- 27. júní síðastliðna vann markaðsfyr-
irtækið Zenter könnun fyrir Fréttablaðið á fylgi
stjórnmálaflokkanna. Samkvæmt henni er talsverð
hreyfing á fylgi milli flokka frá síðustu könnun.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur með 22,6%
og tapar fylgi frá síðustu könnun. Píratar mæl-
ast næststærsti stjórnmálaflokkurinn, bæta við sig
rúmum tveimur prósentum frá síðustu könnun og
fara úr 13% upp í 15,2%. Miðflokkurinn mælist
nú með 9,8% fylgi og bætir rúmum þremur pró-
sentustigum við sig frá síðustu könnun. Framsókn-
arflokkurinn tapar að sama skapi rúmum tveimur
prósentum, mælist nú með 7,1%. Vinstri grænir
eru eini flokkur ríkisstjórnarinnar sem bætir við
sig fylgi milli kannana, hefur nú 13,1%. Samfylk-
ingin mælist með 14,1% og tapar talsverðu fylgi
frá síðustu könnun. Fylgi Viðreisnar er 10% og
breytist lítið, en fylgi Flokks fólksins er við mörk
þess að fá ekki menn á þing, er 4,3%.
mm/ Graf: Fréttablaðið.is
Ístak átti lægsta boð í byggingu
Þjóðgarðsmiðstöðvar
Skagaverk bauð lægst í
skólaakstur fyrir Hvalfjarðarsveit
Talsverð hreyfing á
fylgi stjórnmálaflokka
Gróðursett í stækkuðum Reykholtsskógi