Skessuhorn - 03.07.2019, Síða 20
MIÐVIKUDAGUR 3. júLí 201920
Elín Dögg Baldvinsdóttir opnar
myndlistarsýninguna „Ekki eins
og fólk er flest“ fimmtudaginn 4.
júli klukkan 16 í Galleríi Bjarna
Þórs við Kirkjubraut 1 á Akranesi.
Opið verður þann dag til kl. 22.
Elín er búin með eitt ár í sjónlist-
ardeild Myndlistarskóla Reykja-
vikur, nokkur módelteikningar-
námskeið, olíumálningarnám-
skeið í Tækniskólanum, er hús-
stjórnarskólamenntuð og með
stúdentspróf. Sýningin verður
svo opin föstudag, laugardag og
sunnudag yfir írsku dagana frá
klukkan 12-18. Sýningin stendur
til 4. ágúst og verður eftir helgina
opin á opnunartíma gallerísins.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
-fréttatilkynning
Næstkomandi laugardag, 6. júlí,
verður árleg hátíð Hvanneyringa
og gesta þeirra haldin. Að þessu
sinni verður sérstaklega fagnað 70
ára afmæli Ferguson dráttarvéla á
íslandi og að 130 ár eru liðin frá
því landbúnaðarfræðsla hófst á
Hvanneyri og hefur verið samfelld
síðan. Fergusonfélagið og jötunn
vélar ætla að setja upp sýningu þar
sem gestir geta séð þróun Fergu-
son dráttarvéla hér á landi. „Þarna
verður fyrsta vélin af þessari teg-
und sem kom til landsins og nýj-
ustu vélarnar sem verið er að selja í
dag, og allt þar á milli. Bjarni Guð-
mundsson verður með smá hugleið-
ingu varðandi Ferguson, þar sem
hann fer stuttlega yfir sögu þess-
ara véla hér á landi,“ segir Ragn-
hildur Helga jónsdóttir, safnstjóri
Landbúnaðarsafnsins á Hvanneyri
í samtali við Skessuhorn.
Meðal þess sem verður á dag-
skrá þennan hátíðardag er trak-
torafimi þar sem keppt verður í
leikni í akstri á eldri dráttarvélum.
Guðmundur Hallgrímsson stýr-
ir keppni og hvetur lipra búmenn
og bændasyni til þátttöku, ýmist
á eigin vélum eða lánsvélum sem
verða til taks. Þá verður markaðs-
stemning í gamla íþróttahúsinu og
Kvenfélagið 19. júní verður með
sýningu á lopapeysum í Frúargarð-
inum. Auk þess verður opið á hefð-
bundnar sýningar á Landbúnaðar-
safninu og í Ullarselinu.
í tilefni afmælis landbúnaðar-
fræðslu á Hvanneyri verður Land-
búnaðarháskólinn opinn gestum
sem vilja skoða og kynna sér að-
stöðu og námsframboð. „í skól-
anum verður hægt að kynna sér
aðeins söguna og skoða myndir
sem hanga þar á veggjum. Þá mun
Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rekt-
or halda stutt ávarp í upphafi há-
tíðar,“ segir Ragnhildur. í skóla-
stjóraíbúðinni verður ljósmynda-
sýning barna frá Hvanneyri. „Flóki
Kristinsson hefur verið með ljós-
myndanámskeið síðustu daga fyrir
börn á aldrinum 10-11 ára og á há-
tíðinni verður hægt að sjá afrakst-
ur námskeiðsins. Það er virkilega
skemmtilegt að fá að sjá hvað kem-
ur út úr því,“ segir Ragnhildur.
Fastir liðir eins og kaffisala
Kvenfélagsins 19. júní verður á
sínum stað, farið verður í leiðsögn
um Yndisgróður og hægt að fá
fræðslu um býflugnarækt. Skemm-
an verður opin og fleira skemmti-
legt. Að sögn Ragnhildar er von á
góða veðrinu og því ekki úr vegi
að leggja leið sína á Hvanneyri og
njóta dagsins.
arg
Bæjarhátíðin írskir dagar hefst á
morgun á Akranesi og mun standa
fram á sunnudagskvöld. Er þetta
jafnframt 20 ára afmæli hátíðarinn-
ar og eins og venja er fyrir verður
þétt dagskrá alla hátíðina og all-
ir ættu að geta fundið eitthvað við
sitt hæfi. Að sögn Fríðu Kristín-
ar Magnúsdóttur, viðburðarstjóra
Akraneskaupstaðar, hefur undir-
búningur fyrir hátíðina gengið
mjög vel. „Mikil stemning hefur
myndast í bænum fyrir hátíðina,“
segir Fríða. Hátíðin verður sett
klukkan 14 á morgun fyrir fram-
an bæjarskrifstofurnar við Stillholt
16-18. Sveppi og Villi mæta og taka
lagið með leikskólabörnum. Eft-
ir setninguna verður boðið upp á
ýmsa skemmtun eins og nerfbyssur
og boltafjör á túninu við Suðurgötu
og bóka- og sögugöngu frá Bóka-
safni Akraness. „Um kvöldið verður
Valgerður jónsdóttir með tónleika
í Stúkuhúsinu þar sem hún mun
syngja uppáhalds írsku lögin sín.
Á föstudeginum verður líf og fjör
við Akratorg þar sem boðið verður
upp á lifandi tónlist, dans og fleira.
Við Kirkjubraut 11 verður sett upp
uppblásin 50 metra hindrunarbraut
sem ekki hefur verið boðið upp á
áður á írskum dögum,“ segir Fríða.
Á föstudagskvöldinu ef hefð fyr-
ir því að nágrannar komi saman og
haldi götugrill og að þessu sinni fær
mest skreytta gatan trúbador til að
halda uppi stemningunni yfir grill-
inu auk þess sem í verðlaun veðrur
glaðningur frá Einarsbúð.
Á laugardeginum verður Sand-
kastalakeppnin á sínum stað og
Sjóbaðsfélag Akraness mun standa
fyrir Helgasundi til minningar um
Helga Hannesson. „Settur verður
upp skottmarkaður á bílastæðinu
fyrir framan Brekkubæjarskóla þar
sem allir sem vilja geta verið með,
en mikilvægt er að skrá sig á irsk-
irdagar@akranes.is. Um hádegið
hefst skemmtidagskrá við Akratorg
þar verða meðal annars BMX Bros
að sýna listir sínar, Ingó Geirdal
töframaður kemur og rauðhærðasti
íslendingurinn verður krýndur.
Karnival stemning verður á Merk-
urtúni,“ segir Fríða. Um kvöldið
verður hinn vinsæli brekkusöng-
ur með Ingó á Þyrlupallinum við
Akranesvöll áður en Lopapeys-
an hefst, sem hefur oft verið sagt
skemmtilegasta sveitaball landsins.
Á sunnudaginn verður aftur karni-
val á Merkurtúni og Leikhópurinn
Lotta flytur leikritið Litla hafmeyj-
an í Garðalundi. Væringjar verða á
Byggðasafninu í Görðum þar sem
kynntar verða atskylmingar og
áhugasamir fá að spreyta sig. arg
Valgerður jónsdóttir, tónlistarkona
á Akranesi, syngur heillandi þjóð-
og popplög frá írlandi og segir sög-
ur tengdar lögunum á tónleikum
í Stúkuhúsinu við Byggðasafnið á
Akranesi, fímmtudagskvöldið 4.
júlí. Þennan dag hefst bæjarhátíðin
írskir dagar á Akranesi og stendur
yfir fram á sunnudag. Dagskrá tón-
leikanna er tvískipt. Fyrir hlé syng-
ur Valgerður úrval af írskum þjóð-
lögum, en eftir hlé verður skipt um
gír og þá taka við ýmis þekkt pop-
plög eftir írskt tónlistarfólk.
Um hljóðfæraleikinn sjá Sveinn
Arnar Sæmundsson á píanó, Kristín
Sigurjónsdóttir spilar á fiðlu og
syngur raddir, Þórður Sævarsson
sér um gítarleik og raddanir, Haral-
dur Ægir Guðmundsson á kontra-
bassa og Arnar Óðinn Arnþórsson
á trommur. Tónleikarnir hefjast
kl. 20 og boðið verður upp á léttar
veitingar í hléi.
Aðgangseyrir er 2000 krónur.
Athugið að sætapláss er takmarkað
svo hægt er að panta miða í síma:
841-7688 eða á valgerdur76@
gmail.com
-fréttatilkynning
Á Hvanneyrarhátíð verður keppt í traktorafimi. Slíkar keppnir hafa áður verið
haldnar undir stjórn Guðmundar ráðsmanns, meðal annars á Mýraeldahátíð
2012. Hér leggur Guðmundur línurnar fyrir Guðbrand á Staðarhrauni.
Hvanneyrarhátíðin verður á laugardaginn
Írskir dagar hefjast á morgun
Góð stemning var á Akratorgi á Írskum dögum í fyrra. Ljósm. úr safni.
Töfrandi tónlist frá Írlandi
Elín Dögg opnar sýningu á
Írskum dögum