Skessuhorn - 03.07.2019, Síða 21
MIÐVIKUDAGUR 3. júLí 2019 21
HVANNEYRARHÁTÍÐ6.júlí kl. 13 - 17
#HVANNEYRARHATID / NÁNARI DAGSKRÁ OG UPPLÝSINGAR Á f FACEBOOK
13:30 SETNING / Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor LbhÍ / 130 ára afmæli búnaðarfræðslu á Hvanneyri / Ferguson í 70 ár - Hugleiðingar Bjarna Guðmundssonar
14 Traktorafimi / 13 - 16 Ferguson á Íslandi í 70 ár - Sýning á vegum Fergusonfélagsins / 14 - 15:30 Kerruakstur með stoppi í fjósi / 14:30 - 15:30 Gróðursetning í gróðurhúsinu
14:30 Leiðsögn um Yndisgróður / Fræðsla um býflugnarækt / 14:30 - 16 Ásgarður opinn gestum og gangandi í tilefni 130 ára búnaðarfræðslu á Hvanneyri
Kvenfélagið 19. júní verður með kaffisölu í Gamla-Bút / Skemman Kaffihús verður opið / Sölubásar í Íþróttahöllinni / Ljósmyndasýning barna í Skólastjóraíbúðinni
Lopapeysusýning á vegum Kvenfélagsins 19. júní / Ullarselið - Landbúnaðarsafn Íslands - Gestastofa fyrir friðland fugla - Sýningin „Konur í landbúnaði í 100 ár“ opin / Jötunn vélar ehf sýna
Sýning á tækjum frá Jarðræktarmiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands / TÓNLEIKAR MEÐ KK á Hvanneyri Pub um kvöldið
1
2
2 3
3
4
5 6
7 8 9
10
10
11 12
13 14
14
13
11
12
8
9
7
6
5
4
1
Laust starf húsvarðar við Grunnskóla Borgarfjarðar
Grunnskóli Borgarfjarðar er þriggja starfsstöðva grunnskóli í Borgarbyggð með 180 nem-
endur. Starfsstöðvar hans eru á Kleppjárnsreykjum, Varmalandi og Hvanneyri.
Um er að ræða 80% starf húsvarðar við starfsstöðvar skólans á Kleppjárnsreykjum og Varma-
landi sem unnið er á dagvinnutíma. Húsvörður sér um daglegt viðhald á húsnæði og búnaði og
hefur eftirlit með öryggis- og eftirlitsbúnaði. Megin áhersla er lögð á heilsusamlegt og öruggt
umhverfi
Helstu verkefni:
Vinnur eftir gildum, stefnu og áherslum skólans•
Hefur umsjón með viðhaldi á húsnæði og búnaði skólans•
Gerir áætlun um endurnýjun og viðhald á búnaði í samráði við skólastjóra•
Hefur umsjón með öryggis- og eftirlitsbúnaði•
Sér um minniháttar viðgerðir á húsnæði og búnaði eftir því sem til fellur•
Sinnir öðrum þeim verkefnum sem skólastjóri eða aðrir stjórnendur skólans fela honum•
Hæfniskröfur:
Hreinlæti og snyrtimennska skilyrði•
Frumkvæði, sveigjanleiki og samstarfsvilji•
Lipurð og færni í samskiptum•
Reynsla af sambærilegu starfi kostur•
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og
viðkomandi stéttarfélags. Við hvetjum áhugasama til að sækja um óháð kyni og uppruna.
Umsóknarfrestur er til 6. ágúst 2019. Nánari upplýsingar veitir Helga Jensína Svavarsdóttir
skólastjóri í síma 861 1661 og skulu umsóknir sendar á helga.jensina.svavarsdottir@gbf.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Bæjarhátíðin Ólafsvíkurvaka verð-
ur haldin um komandi helgi og er
dagskráin í ár fjölbreytt og sniðin
að allri fjölskyldunni. Hátíðin hefst
annað kvöld þegar bæjarbúar hitt-
ast í sínum hverfum og skreyta en
venja er fyrir að hvert hverfi fái sinn
þemalit yfir hátíðina. Á föstudaginn
verður krakka crossfit á sparkvell-
inum fyrir káta krakka á aldrinum
6-15 ára. Hoppukastalar verða opn-
aðir við Sáið klukkan 17 og dorg-
veiðikeppni Sjósnæ hefst klukkan
17:30. Um kvöldið verður boðið
upp á boltaþrautir og vítaspyrnu-
keppni fyrir krakka á sparkvellinum
áður en leikur Víkings og Aftureld-
ingar hefst á Ólafsvíkurvelli klukk-
an 20. Þá verður Garðapartý í Sjó-
mannagarðinum og lifandi tónlist
fram eftir nóttu á Sker Restaurant.
Dagskrá laugardagsins er með
glæsilegasta móti og hefst á golf-
móti á Fróðárvelli og skákmóti í
íþróttaahúsi Snæfellsbæjar klukkan
9.30. Farið verður í átthagagöngu
undir leiðsögn Sævars Þórjóns-
sonar og jennýjar Guðmundsdóttir
klukkan 12. Gengið verður frá bíla-
stæðinu við kirkjugarð Ólafsvík-
ur. Eftir hádegið verður fjölbreytt
dagskrá við Sáið. Þar verður mark-
aður, frisbigolf, sápubolti og fleira
skemmtilegt. Klukkan 14 hefst há-
tíðardagskrá á Þorgrímspalli þar
sem Eir og Melkorka taka lagið,
Samúel sýnir töfrabrögð og Alda
Dís syngur nokkur vel valin lög og
fleira áður en Herra Hnetusmjör
mætir á svæðið. Kvölddagskráin
hefst með skrúðgöngu úr hverju
hverfi klukkan 20:30 og hittast allir
í Sjómannagarðinum þar sem sýnd
verða hverfaatriði og jón Sigurðs-
son stjórnar brekkusöng. Um mið-
nætti verður dansleikur í Félags-
heimilinu Klifi með Stjórninni.
arg
Mikið stuð var í brekkusöngnum á Ólafsvíkurvöku fyrir tveimur árum.
Ljósm. úr safni/ af
Glæsileg dagskrá á
Ólafsvíkurvöku um helgina