Skessuhorn - 10.07.2019, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 10. júLí 20192
Nú eru margir lesendur Skessuhorns
farnir eða á leið í sumarfrí og ætla að
nýta fríið sitt til þess að ferðast um
landið, dytta að heimili sínu eða jafnvel
fara í garðverkin sem eru búin að sitja á
hakanum alltof lengi. Engu að síður er
gott að minna á að gott getur verið að
kúpla sig algjörlega frá vinnuáreiti og
því ráðlagt að fjarlægja t.d. aðgang að
vinnutölvupósti heimavið eða í síman-
um, slíkt dregur úr þeirri slökun sem frí-
ið á að vera. Það er enginn ómissandi!
Á morgun verður austlæg eða breytileg
átt, bjart með köflum norðan- og vest-
anlands en líkur á skúrum síðdegis. Hiti
13-20 stig. Á föstudag er spáð svipuðu
veðri en skýjað að mestu leyti. Á laug-
ardag er spáð sunnan- og suðvestan-
átt 3-10 m/sek og skýjað, en úrkomulít-
ið. Hiti getur náð allt að 20 stigum. Mild
sunnanátt heldur áfram fram á sunnu-
dag en búast má við súld og jafnvel
rigningu. Á mánudag er útlit fyrir suð-
vestanátt og vætu um allt vestanvert
landið og svipaður hiti áfram.
Spurt var á vef Skessuhorns í liðinni
viku „Finnst þér íslenskt sumar hafa
verið gott fram að þessu?“ Langflest-
ir voru sammála að svo hefði verið,
en 75% svöruðu „Já, mjög gott.“ 17%
svöruðu „Já, alveg þokkalegt.“ Fæstir
eru óánægðir með sumarið. 4% sögðu
að það væri búið að vera afleitt, 3% að
það væri búið að vera fremur leiðin-
legt og þrír höfðu ekki skoðun á mál-
inu. Alls tóku 498 þátt í könnuninni.
Í næstu viku er spurt:
Hyggst þú sækja endurmenntun
eða fara í skóla á árinu?
Anna Bjarnadóttir hefur mikla ástríðu
fyrir bættri lýðheilsu og kennir ung-
um sem öldnum um mikilvægi hreyf-
ingar og hvað slíkt þýðir fyrir bætt lífs-
gæði. Anna Bjarnadóttir er Vestlend-
ingur vikunnar, en rætt er við hana í
blaðinu í dag.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Blöðin
framundan
SKESSUHORN: Skessuhorn
verður gefið út alla miðviku-
daga í þessum mánuði, þ.e.
17., 24. og 31. júlí. Starfsfólk
fer eftir það í viku sumarfrí og
kemur því EKKI út blað mið-
vikudaginn 7. ágúst, en hefð-
bundin útgáfa eftir það. -mm
Blóðskortur
LANDIÐ: Mikill skortur er
á blóði til blóðgjafar í Blóð-
bankanum. RUV greindi frá
því í gær. Að sögn Helgu jó-
hannsdóttur, hjúkrunarfræð-
ings hjá Blóðbankanum, er
lagerstaðan sérlega slæm um
þessar mundir og eru lands-
menn hvattir til þess að koma
við í bankanum og gefa blóð.
Starfsfólk hringir nú í vel-
unnara bankans og biður um
aðstoð, að sögn Helgu. Sér-
stakur skortur er á neyðar-
blóðinu, O mínus blóðflokki,
en einnig á O plús blóð-
flokki. Opið er í Blóðbankan-
um í Reykjavík og á Akureyri
til klukkan 15. Á fimmtudög-
um er opið til hálf sjö. Fólk
er hvatt til að gera sér ferð og
gefa blóð. -mm
Heldur dregur
úr fasteignavið-
skiptum
VESTURLAND: í nýliðnum
júnímánuði var 38 fasteigna-
samningum þinglýst á Vestur-
landi. Þar af voru ellefu samn-
ingar um eignir í fjölbýli, 16
samningar um eignir í sérbýli
og ellefu samningar um ann-
ars konar eignir. Heildarvelt-
an var 1.063 milljónir króna
og meðalupphæð á samning
28 milljónir króna. Af þessum
38 samningum voru 15 samn-
ingar um eignir á Akranesi.
Þar af voru sex samningar um
eignir í fjölbýli, sjö samning-
ar um eignir í sérbýli og tveir
samningar um annars konar
eignir. Heildarveltan var 550
milljónir króna og meðalupp-
hæð á samning 36,7 milljónir
króna. Nokkur samdráttur er
nú í fasteignaviðskiptum víð-
ast hvar á landinu, en á höf-
uðborgarsvæðinu var fjöldi
samninga 21% lægri í júní en í
sama mánuði í fyrra. -mm
Vestlendingar
taka yfir stjórn
Arionbanka
RVK: Um nýliðin mánaða-
mót tók Benedikt Gíslason
við starfi bankastjóra Arion-
banka. Á mánudag var svo til-
kynnt að Ásgeir Helgi Reyk-
fjörð Gylfason hafi verið ráð-
inn í nýtt starf aðstoðarbanka-
stjóra. Hefur hann störf með
haustinu. Gaman er að geta
þess að báðir slitu þeir Bene-
dikt og Ásgeir barnsskón-
um á Vesturlandi; Benedikt á
Hvanneyri en Ásgeir Helgi á
Akranesi. -mm
Á undanförnum 2–3 vikum hafa
tíu börn greinst á íslandi með al-
varlega sýkingu af völdum E. coli
bakteríu (STEC). Fjögur börn í
síðustu viku og síðan bættust sex
við um nýliðna helgi. Fólk getur
smitast af STEC með menguðum
matvælum eða vatni, með beinni
snertingu við dýr eða mengað-
an úrgang dýra. Bakterían kemst
þannig um munn og niður í melt-
ingarveg og framleiðir eiturefni
sem getur valdið blóðugum nið-
urgangi og í alvarlegum tilfellum
nýrnabilun og blóðleysi. í gær gaf
landlæknisembættið það út að níu
af þeim tíu börnum sem sýktust
smituðust á ferðaþjónustubæn-
um Efstadal 2 í Bláskógabyggð.
Eitt barnanna smitaðist líklega
af systkini sínu. Rannsóknir hafa
sýnt að e. coli bakterían sem sýkti
börnin finnst einnig í hægðasýni
frá kálfum á staðnum.
mm
Ríkislögreglustjóri, í samráði við
Lögreglustjórann á Vesturlandi,
hefur aflétt óvissustigi sem lýst
var yfir 11. júní síðastliðinn vegna
hættu á gróðureldum á Vesturlandi.
Það er mat lögreglunnar á Vestur-
Tvö tilraunamöstur hafa ver-
ið reist í landi Hróðnýjarstaða í
Dölum en fyrirtækið Storm Orka
áformar að reisa þar vindmyllu-
garð til raforkuframleiðslu. Storm
Orka eru í eigu bræðranna Magns-
úsar B. og Sigurðar E. jóhannes-
sona sem einnig eru landeigendur
að Hróðnýjarstöðum. Á vordög-
um kom starfshópur frá spænska
fyrirtækinu Mesawind á svæðið til
að reisa möstrin en fyrirtækið sér-
hæfir sig í smíði þeirra og upp-
setningu. Tilraunamöstrin eru 100
metrar á hæð og munu vera í sömu
hæð og áætlaðar vindmyllur að
spöðum frádregnum.
„Möstrin voru sett upp í bútum,
byggt smátt og smátt ofan á. Það
var vindasamt þegar hópurinn var
hjá okkur og ég get sagt þér að
Manuel hjá Mesawind hafði áhyg-
gjur af stöðunni um tíma. Hann
sagðist ekki geta sent mann til að
reisa möstrin í 100 metra hæð í
svona roki. Að endingu var ák-
veðið að vinna þetta á nóttunni
því þá reyndist vindur hægari. Það
er allt sem bendir til þess að þetta
sé gott svæði fyrir vindmyllur, það
blæs nóg,“ segir Magnús B. jóhan-
nesson framkvæmdastjóri Storm
Orku í samtali við fréttaritara.
Staða verkefnisins er sú að það
er nú í umhverfismati og búið að
senda inn gögn til Skipulagsstof-
nunar til umsagnar. Að sögn Ma-
gnúsar er ferlið á góðu róli og un-
dirbúnings- og rannsóknarvinna í
gangi. „Það er eðlilegur gangur á
þessu. Við höfum lokið einhver-
jum rannsóknum en eigum tölu-
vert eftir. Verkefnið tekur tíma,
við erum búnir að vinna að þessu í
þrjú ár og eigum örugglega annað
eins eftir,“ segir Magnús um fram-
gang verkefnisins.
sm
Tilraunamöstur komin upp á Hróðnýjarstöðum
Óvissustigi aflétt á Vesturlandi
landi að telja megi að ástand sé að
verða svipað og í venjulegu tíðar-
fari. Því hafi verulega dregið úr
eldhættu í þurrum gróðri. Þessi
ákvörðun var tilkynnt síðastliðinn
miðvikudag. Óvissustig almanna-
varna þýðir að aukið eftirlit er haft
með atburðarás sem á síðari stigum
gæti leitt til þess að heilsu og ör-
yggi fólks, umhverfis eða byggðar
verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi
er hluti af verkferlum í skipulagi al-
mannavarna til að tryggja form-
leg samskipti og upplýsingagjöf á
milli viðbragðsaðila og almenn-
ings. „Þótt óvissustigi hafi nú ver-
ið aflýst hvetja viðbragðsaðilar eftir
sem áður til að aðgát sé höfð í með-
ferð opins elds og eldunartækja þar
sem mikill gróður er,“ segir í til-
kynningu frá ríkislögreglustjóra.
Enn er eldhætta
til staðar
Á vef RUV síðastliðinn mánu-
dag er haft eftir Árna Hjörleifssyni
oddvita Skorradalshrepps að sveit-
arfélagið hafi sent erindi til Vega-
gerðarinnar til að knýja á um bætt-
ar samgöngur í Skorradal. Fyrst
og fremst til að tryggja flóttaleiðir.
Árni segir að eldhættan sé ekki liðin
hjá jafnvel þótt óvissustigi hafi ver-
ið aflétt. „Fólk áttar sig ekki alveg
á því að þó að það hafi rignt fyr-
ir nokkrum dögum er jarðvegurinn
orðinn svo langþurr, eins og þerri-
pappír. Það þarf miklar rigningar
til að menn séu nokkuð öruggir,“
segir Árni. „Ef þetta heldur áfram
að vera svona, þurrkar eins og hafa
verið síðustu tvo daga, þá náttúr-
lega verður ástandið aftur svipað.
En það er spáð rigningu þannig að
það gæti verið að það bleytti aðeins
í,“ sagði Árni og brýnir fyrir fólki
að vera áfram á varðbergi gagnvart
eldhættu.
mm
Frá samæfingu Slökkviliðs Borgarbyggðar í Skorradal 14. júní síðastliðinn.
Ljósm. kgk.
Hrina alvarlegra E. coli
sýkinga rakin til Efstadals
Grís á bæjar-
hlaðinu í
Efstadal.