Skessuhorn - 10.07.2019, Page 16
MIÐVIKUDAGUR 10. júLí 201916
Það var margt um manninn þegar Hvanneyrarhátíð var hald-
in á laugardaginn. Ýmissa tímamóta var minnst. Meðal annars
að 130 ár eru frá upphafi skólastarfs á Hvanneyri en auk þess
var með veglegum hætti haldið upp á 70 ára afmæli Ferguson
dráttarvélanna hér á landi. Af því tilefni var fjöldi eldri véla
hafður til sýnis en auk þess nýjasta dráttarvél landsins, öllu
stærri en þeir gömlu gráu. Eftir setningarathöfn sem fram fór
á kirkjutröppunum tók við fjölbreytt dagskrá víðsvegar um
þorpið. í Ásgarði var opið hús í skólanum, yndisgarðar kynnt-
ir, markaður var í íþróttahúsinu, kaffisala í gamla bútæknihús-
inu, útigrill, ljósmyndasýning í gamla skólastjórabústaðnum,
opnar sýningar í gamla fjósinu og keppt í dráttarvélafimi úti á
túni. Þá buðu jötunvélar upp á veislutertu. Lauslega er áætl-
að að hátt í tvö þúsund manns hafi mætt á Hvanneyri og nutu
gestir dagsins í einmuna veðurblíðu. mm
Fjölmenn Hvanneyrarhátíð í einmuna veðurblíðu
Þannig var veðrið allan daginn. Logn og hátt í 20 gráðu hiti við setningu hátíðarinnar.
Elísabet, Sigrún og Ingibjörg bökuðu pönnukökur í gríð og erg fyrir Kvenfélagið
19. júní.
Magnús Hannesson bóndi á Eystri-Leirárgörðum frumsýndi Farmal A dráttarvél
sína árg. 1946, sem er að miklu leyti uppgerð. Vél þessi á sér allmerka sögu. Með
sprungna blokk var vélin grafin árið 1991 þar sem ekki var pláss fyrir hana í húsi.
Var síðan grafin upp að nýju 2017 og nú er bóndinn langt kominn með uppgerð
hennar.
Jón Valgarðsson á Eystra-Miðfelli keppti í dráttarvélafimi á Farmal A.
Fjóla Ben í Mófellsstaðakoti tók þátt í dráttarvélafimi og fór með sigur af Hólmi í
kvennaflokki. Í karlaflokki varð hlutskarpastur Jóhann Ingi Haraldsson bóndi á
Ásgeirsbrekku í Skagafirði.
Jón Jónsson frá Haukagili, formaður Fergusonfélagsins, átti
stóran þátt í sýningunni. Flutti hann fjölmargar vélar til að
gera sýningu sem veglegasta.
Rita og Ásta í Ullarselinu.
Þeir grilluðu ofan í mannskapinn og seldu upp lagerinn.
Verðskulduðu einn kaldan að loknu góðu dagsverki.
Massey Ferguson S 7726 er nýjasta dráttarvélin í dag. Henni Dagnýju fannst ekki amalegt að fá að setjast í öku-
mannssætið á þessum.
Svipmynd af markaðinum í íþróttahúsinu. Fremst eru vörur
frá Geitfjársetrinu Háafelli.
Nafnar taka spjall saman. Grétar Jónsson á Hávarsstöðum
og Grétar Einarsson frá Hvanneyri.
Ragnheiður Steinunn Hjörleifsdóttir með sneið af Jötun-
vélaköku og vörur úr Ullarselinu, sem er svona ljómandi
snyrtilega pakkað inn!