Skessuhorn - 10.07.2019, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 10. júLí 2019 19
Fjölmenni var á Ólafsvíkurvökunni sem fram fór um helgina í
blíðskaparveðri og var margt í boði fyrir alla aldurshópa. Há-
tíðin hófst á föstudaginn með Crossfit fyrir börnin og Hrafn
jökulsson stóð fyrir skákkennslu. Dorgveiðikeppni var einn-
ig í boði og þar á eftir var boðið upp á grillaðar pylsur. Fjör-
inu var síðan haldið áfram í Sjómannagarðinum með lifandi
tónlist í flutningi Lenu Örvarsdóttur og Trausta Leó Gunn-
arssonar.
Á laugardaginn náði svo hátíðin hámarki með fjölbreyttri
dagskrá með golfmóti, skákmóti og var margt í boði á Þor-
grímspalli þar sem meðal annars Alda Dís steig á stokk og
flutti nokkur lög. Soni töframaður sýndi listir sínar, dans-
hópurinn Pæjurnar dansaði fyrir gesti og herra Hnetusmjör
skemmti auk þess sem Vargurinn Snorri Rafnsson kynnti sinn
útbúnað og hunda sem hann notar í veiðimennsku. BMX
hópurinn BMX bros sýndi listir sínar.
Á laugardagskvöldinu mættust svo hverfin í bænum saman í
Sjómannagarðinum í sínum litum og fluttu skemmtiatriði og
þar fór gula hverfið með sigur af Hólmi, ásamt því að vera val-
ið sem best skreytta hverfið. Tónlistarmaðurinn jón Sigurðs-
son sá um brekkusöng ásamt því að Sigríður Beinteinsdóttir
og Grétar Örvarsson komu fram, en dagskránni lauk svo með
stórdansleik í Klifi þar sem Stjórnin spilaði langt fram eftir
nóttu. af
BMX bros sýndi listir sínar.
Fjölmenn Ólafsvíkurvaka
Fjölmenni á Brekkusöng. Þessar ungu dömur tóku þátt í dorgveiðikeppninni og voru ánægðar með sinn feng.
Snorri Rafnsson, öðru nafni Vargurinn, var með kynningu á því sem hann er búinn að vera að gera í sínu starfi sem
veiðimaður.
Börnin kunnu vel að meta blautboltann enda veður til þess að
sprella úti.
Pæjurnar sýndu dans.
Söngkonan Alda Dís söng nokkur lög.
Þessi ungi drengur lét sig ekki muna um að taka heljarstökk fram af bryggjunni og
í sjóinn.
Herra Hnetusmjör skemmti.Þessi unga dama var upptekin við að
borða sinn banana.